Erlent

Bandaríkjamenn kaupa flensulyf

Bandaríkjamenn eru farnir að vera uggandi vegna fuglaflensunnar, líkt og Evrópubúar. Flensulyfið Tamiflu hefur þar selst í nær sjötíuþúsund skömmtum undanfarna daga. Það er nær fjórum sinnum meira en seldist af lyfinu á sama tíma í fyrra. H5N1-stofn fuglaflensunnar hefur lagt 62 af velli í Asíu síðan árið 2003 og undanfarnar vikur hefur smitið fundist í fuglum í Evrópu. Sérfræðingar segja aðeins tímaspursmál hvenær flensan stökkbreytist þannig að hún smitist á milli manna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×