Hefði ekki getað orðið á verri tíma 1. nóvember 2005 19:45
Ramadan, föstumánuður múslíma var nýhafinn þegar jarðskjálftinn stóri reið yfir fjallahéruð Pakistans. Örþreyttir hjálparstarfsmenn vinna því á fastandi maga frá morgni til kvölds. Skjálftinn hefði því varla getað riðið yfir á verri tíma, að sögn íslensks sendifulltrúa Rauða krossins sem þar er að störfum. Jarðskjálftinn varð fyrir rúmum þremur vikum og nú er vitað að fórnarlömbin eru ekki færri en sextíu þúsund, og slasaðir mun fleiri. Sólveig Ólafsdóttir er í Pakistan á vegum Alþjóða Rauða krossins og hún segir ekki ólíklegt að tala látinna eigi eftir að tvöfaldast, jafnvel þrefaldast þegar öll kurl eru komin til grafar. Hún kom til Pakistans fyrir tíu dögum og fór beina leið á vettvang í Katardalnum þar sem eru , eða voru , fjölmörg smærri þorp. Sólveig segir bæinn nokkur þúsund manna, en varla eitt einasta hús standi enn. Hús í hlíðum hafi hreinlega runnið niður og ekkert sé eftir. Sólveig hefur unnið á hamfarasvæðum víða um heim og segir þetta vissulega vera með því verra sem hún hefur séð, ekki síst vegna þess að tíminn hefði ekki getað verið verri. Vetur vofi yfir en einnig sé gríðarlega erfitt að koma hjálpargögnum þangað sem þörf er á þeim, þegar vegasamgöngur eru litlar sem engar. Ekki bætti úr skák að Ramadan, föstumánuður múslima var nýgenginn í garð, en þá fasta þeir frá sólarupprás til sólarlags. Mikið álag sé á fólk í hjálparstarfi og það sé vart hægt á fastandi maga. Meirihlutinn hafi haldið föstuna þrátt fyrir jarðskjálftann og því sé álagið mikið. Mikil matar-og fjölskylduhátíð er framundan, í lok Ramadans, en það er hætt við að margir munu ekki hafa möguleika né löngun til mikilla hátíðahalda. Hjálparstarf mun þó að miklu leyti liggja niðri þessa hátíðisdaga, því innlendir hjálparstarfsmenn halda hana hátíðlega. Sólveig segir að eins og er sé um helmingur þess fjár sem metið er að þurfi til að koma flestum til hjálpar kominn, en framundan sé gríðarlegt kapphlaup við tímann.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira