Bjerregaard er sigurstrangleg 15. nóvember 2005 03:00 SØren Pind
Í dag verður kosið til sveitarstjórna í Danmörku. Kosningabaráttan í Kaupmannahöfn hefur verið lífleg undanfarnar vikur enda eru frambjóðendur þriggja stærstu flokkanna litríkar og mjög ólíkar persónur. Stefnumálin hafa ekki bara verið í brennidepli. Allt stefnir í að hin 64 ára Ritt Bjerregaard, borgarstjóraefni Jafnaðarmanna, vinni stórsigur í Kaupmannahöfn. Hún hefur verið áberandi í dönskum stjórnmálum í nær 35 ár og var á áttunda áratugnum ráðherra og þingmaður en starfaði síðan fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Stjórnmálaskýrendur segja Bjerregaard hafa háð gamaldags en árangursríka kosningabaráttu sem gengur út á að ná persónulegu sambandi við kjósendur. Hún hafi því verið áberandi á götum úti, ferðast um borgina á hjóli og rætt við fólk. Þetta virðist hafa heppnast því samkvæmt könnun sem blaðið gerði í síðustu viku vilja 46 prósent kjósenda í Kaupmannahöfn að hún verði næsti borgarstjóri. Þrátt fyrir ungan aldur er þingmaðurinn Søren Pind, borgarstjóraefni Venstre, að bjóða sig fram í þriðja skipti. Stefna hans í innflytjendamálum hefur verið gagnrýnd í baráttunni og önnur stefnumál Venstre hafa því ekki fengið mikla athygli. Dönsku blöðin segja Pind ekki hafa verið með puttana á púlsinum og því ekki náð til kjósenda, þrátt fyrir fokdýra baráttu. Óhætt er hins vegar að segja að oddviti Radikale Venstre í Kaupmannahöfn sé senuþjófur kosningabaráttunnar í Kaupmannahöfn. Klaus Bondam heitir hann og er leikari að mennt og samkynhneigður. Hann hefur litla reynslu af stjórnmálum en þrátt fyrir það bætir flokkur hans við sig töluverðu fylgi ef marka má skoðanakannanir. Hann hefur sagt að samstarf við Danska þjóðarflokkinn komi ekki til greina en sá flokkur hefur harða stefnu í málefnum innflytjenda. Eins hefur hann sagt að ef borgaraflokkarnir myndi meirihluta komi ekki annað til greina en að hann verði borgarstjóri. Hann muni ekki styðja Søren Pind. Aftur á móti stefnir allt í að þeir verði í minnihluta á næsta kjörtímabili en Ritt Bjerregaard muni hafa tögl og haldir í stjórn borgarinnar.
Erlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Sjá meira