Erlent

Sprengjubúnaður virkaði ekki

Á götum Amman. Jórdanir með mynd af Abdullah II. framan á bílnum sínum í skrúðgöngu gegn hryðjuverkum sem fram fór í gær
Á götum Amman. Jórdanir með mynd af Abdullah II. framan á bílnum sínum í skrúðgöngu gegn hryðjuverkum sem fram fór í gær

Konan, sem var handtekin heitir Sajida Mubarak Atrous al-Rishawi. Hún tók þátt í sjálfsmorðssprengjutilræðunum sem skóku höfuðborg Jóraníu, Amman, á miðvikudag. Þá voru samtímis sprengdar sprengjur á þremur hótelum og urðu þær 57 manns að bana auk tilræðismannanna.

Í viðtalinu lýsir al-Rishawi aðdraganda tilræðanna og hvernig eiginmaður hennar hafi kennt sér hvernig hún ætti að sprengja sig og aðra í loft upp. Hún fór ásamt manni sínum inn á hótelið þar sem meðal annars stóð yfir brúðkaupsveisla en þegar á hólminn var komið virkaði sprengjubúnaður hennar ekki. Sprengjuefnið sem þau notuðu var gríðarlega kraftmikið og er því haldið fram að tilræðið hafi verið framið til þess að drepa eins marga og mögulegt væri.

Í viðtalinu er al-Rishawi mjög stressuð en þar sýndi hún meðal annars sprengjubúnaðinn sem notast var við. Hún var handtekin í gær en að sögn yfirvalda í Jórdaníu kom ábending úr röðum al-Kaída sem leiddi til handtöku hennar. Al-Rishawi þessi er systir Mubarak Atrous al-Rishawi, sem er talinn hafa verið hægri hönd al-Zarqawi, hæstráðanda al-Kaída í Írak.

Handtaka konunnar er talin geta leitt til þess að hægt verði að afla mikilvægum upplýsingum um hryðjuverkastarfsemi al-Zarqawi. Mubarak al-Rishawi var hins vegar skotinn af Bandaríkjaher í Írak fyrir nokkru síðan. Al-Kaída í Írak hefur nú þegar lýst yfir ábyrgð á sprengjutilræðunum og segja að þau hafi verið gerð til þess að mótmæla stuðningi Jórdaníumanna við Bandaríkjamenn og önnur vestræn ríki.

Konungur Jórdaníu, Abdullah II, segir að árásirnar hafi ekkert með Vesturveldin að gera, þær hafi beinst að saklausum, jórdönskum ríkisborgurum. Hann bætir því hins vegar við að Jórdanía sé að taka afleiðingum stríðsrekstrar Bandaríkjamanna í Írak. Hann telur mikilvægt að Írak verði hluti af alþjóðlegu samfélagi. Abdullah segir að allt verði gert til þess að hafa uppi á þeim sem eiga sök á þessum glæpum, þó að leita þurfi út fyrir landsteina Jórdaníu og að handtaka al-Rishawi eigi eftir að hjálpa til í þeirri baráttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×