Nýrra aðlögunarleiða leitað 12. nóvember 2005 09:00 Úthverfastríðið. Lögreglumenn skoða skilríki hettuklæddra ungra manna í Cenon, "vandræðaúthverfi" Bordeaux í SV-Frakklandi.
Síðla fimmtudagsins 27. október létu tveir unglingsdrengir, annar ættaður frá Malí, hinn frá Túnis, lífið er þeir reyndu að fela sig í spennustöð jarðlestarstöðvar í Parísarúthverfinu Clichy-sous-Bois. Sú saga gekk að drengirnir hefðu verið á flótta undan lögreglu og allt fór í bál og brand. Það var sem kveikt hefði verið í púðurtunnu. Franski forsætisráðherrann Dominique de Villepin sagði ekki orð um ófremdarástandið í úthverfunum fyrr en óeirðabylgjan hafði geisað í fimm sólarhringa. Forsetinn Jacques Chirac tjáði sig ekki fyrr en að ellefu óeirðanóttum liðnum. Það var engu líkara en þeir ætluðu að láta innanríkisráðherrann metnaðarfulla, Nicolas Sarkozy, einn um að taka slaginn. Þar til það rann upp fyrir þeim að sjálfum grundvelli lýðveldisins var hætta búin. "Öllum þremur virðist vera ljóst, að aðlögun "a la francaise", sem hefur frá frönsku byltingunni gert innflytjendur af margvíslegasta uppruna að fullveðja - citoyens', hefur beðið skipbrot," segir í úttekt þýska fréttatímaritsins Der Spiegel á ástandinu í Frakklandi. "Franska leiðin" virkar ekki Félagslegar klofningslínur fransks þjóðfélags fara nú eftir þjóðernisuppruna og trúarbakgrunni. Þær eru jafnframt markalínur ólíkra menningarheima sem lifa hlið við hlið, án teljanlegra tengsla sín í milli þótt í sama landinu séu. Opinberlega hafa franskir ráðamenn jafnan fordæmt fjölmenningarhyggju - þeir trúðu á að innflytjendur lærðu að tileinka sér gildi franska lýðveldisins ("frelsi, jafnrétti og bræðralag") og úr yrði sterkt samfélag jafningja, stoltra borgara "La grande nation". En sú trú er nú á hröðu undanhaldi andspænis þeirri staðreynd að stærsti innflytjendahópur síðustu áratuga - milljónir manna frá araba- og Afríkulöndum sem flestir eru íslamstrúar - aðlagast ekki nema að mjög takmörkuðu leyti. Við þessar aðstæður verður ein af grunnstoðum sjálfsmyndar franska lýðveldisins - hin stranga aðgreining ríkis og trúar - að innantómri tálsýn. Að vísu er það ekki "heilagt stríð" sem vakir fyrir óeirðaunglingunum í innflytjendaúthverfunum, en íslam er óaðskiljanlegur þáttur sjálfsmyndar þeirra. Íslam eflir samkennd þeirra, ljær verkum þeirra lögmætisblæ og skapar skýra afmörkun gagnvart "hinum" - kristnum, hvítum Frökkum. Der Spiegel hefur eftir ónafngreindum lögreglustjóra að í uppþotunum felist í raun að úthverfa-innflytjendurnir séu að segja sig úr lögum við afganginn af frönsku samfélagi. Heilu borgarhlutarnir séu orðnir svæði þar sem önnur lög og lögmál gilda, svæði þar sem fulltrúar ríkisvaldsins hafa ekkert að segja; lögreglan er álitin fjandsamlegur innrásaraðili. Í aldarfjórðung hafa frönsk stjórnvöld reynt allar mögulegar leiðir til úrbóta í "vandræðaúthverfunum". Skólar, félagsmiðstöðvar, bókasöfn, lystigarðar. En allt kemur fyrir ekki. Stöðugt brenna sorpgámar og bílar, skemmdarverk daglegt brauð. Og nú virðist þróunin vera að fara algerlega úr böndunum. Frá því í byrjun þessa árs hafa yfir 70.000 tilfelli skemmdarverka, íkveikja og gengjaglæpa verið tilkynnt í "vandræðahverfunum" í kring um París og aðrar helstu borgir Frakklands svo sem Marseille, Lyon og Strassborgar. Um 30.000 bílar hafa verið eyðilagðir. Og það eru engir ráðherrabílar heldur bílar hinna fátæku, vinnubílar einyrkja, strætisvagnar. "Kynslóð heilags stríðs" Svo vildi til að óeirðirnar í úthverfum Parísar brutust út á sama tíma og opinber minningarathafnir fóru fram í Bretlandi um þá sem fórust í jarðlesta-sjálfsmorðssprengjuárásunum í Lundúnum í júlí. Að þeim stóðu ungir synir múslima-innflytjenda, uppaldir í Englandi. Það var líka tilviljun að á sama tíma var þess minnst í Hollandi að rétt ár var liðið frá morðinu á kvikmyndagerðarmanninum Theo van Gogh, en morðingi hans var ungur háskólanemi, ættaður frá Marokkó en uppalinn í Hollandi. En þessar tilviljanir hafa táknrænt gildi. "Kynslóð heilags stríðs" er að verki í Evrópu skrifar bandaríska vikuritið Time af þessu tilefni. "Evrabía" er þessi "nýja Evrópa" nefnd vestanhafs - "gamla Evrópa", mótuð af hinni kristnu arfleifð, er álitin vera að mótast í æ meiri mæli af hinum íslömsku innflytjendum, af "Arabíu". Í Frakklandi búa um fimm og hálf milljón múslima, í Hollandi um ein milljón, að minnsta kosti ein og hálf milljón í Bretlandi. Í Vestur-Evrópu búa alls á bilinu 13-20 milljónir múslima. Ólgan í innflytjendahverfunum - Birmingham, París, Amsterdam og þannig mætti lengi telja - á sér að vísu í fæstum tilvikum hryðjuverkabakgrunn. Átökin snúast ekki um heilagt stríð, Írak eða Palestínu. En auðvitað vex óttinn við að úr þessum jarðvegi spretti menn sem gangi til liðs við hryðjuverkahópa eins og al-Kaída. Fjölmenningardraumurinn úti "Við sýndum of mikla linkind. Tími tedrykkju er liðinn," hefur Spiegel eftir Ritu Verdonk, innflytjendamálaráðherra Hollands. Hún lætur nú senda alla hælisleitendur sem ekki fá hæli úr landi, einnig þá sem fram til þessa höfðu þrátt fyrir það fengið að dvelja í landinu. Út um alla Evrópu er það runnið upp fyrir flestum að draumurinn um fjölmenningarsamfélagið, um að hið frjálslynda umburðarlyndi evrópska nútíma-velferðarríkisins gerði "öllum dýrunum í skóginum kleift að vera vinir", er úti.
Erlent Mest lesið Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Innlent Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Erlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Fleiri fréttir Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Sjá meira