Erlent

Hundruð minntust Rosu Parks

Rosa parks syrgð. Syrgjendur Rosa Parks eru fjölmargir víðsvegar um heiminn.
Rosa parks syrgð. Syrgjendur Rosa Parks eru fjölmargir víðsvegar um heiminn.

Hundruð manna voru viðstödd minningarathöfn vegna Rosu Parks, sem vakti aðdáun blökkumanna þegar hún neitaði að víkja fyrir hvítum manni í strætisvangi í Alabama árið 1955. Parks lést á dögunum 92 ára að aldri. Var hún talin hafa átt stóran þátt í baráttunni fyrir jafnrétti í Bandaríkjunum.

Á meðal þeirra sem héldu ræðu á minningarathöfninni voru Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og blökkumannaleiðtoginn Jesse Jackson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×