Erlent

Lokkar ekki til sín ferðamenn

Tvö hundruð ár eru liðin á þessu ári frá fæðingu rithöfundarins H.C. Andersen og af því tilefni hafa verið settar upp margvíslegar sýningar í Danmörku. Alþjóðlegri auglýsingaherferð var hrundið af stað til að fá erlenda ferðamenn til landsins.

Samkvæmt nýjustu tölum um fjölda gistinátta á dönskum hótelum hefur þessi herferð ekki heppnast sem skyldi því gistinóttum hefur að sögn dagblaðsins Berlingske Tidende fækkað í ár frá því í fyrra. Aðsókn að söfnum tengdum H.C. Andersen hefur hins vegar verið góð á árinu, sem sýnir að áhugi Dana á ævi og verkum rithöfundarins er mikill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×