Erlent

Nautahakkið reyndist of feitt

Danskt nautahakk inniheldur oft töluvert meiri fitu en sagt er til um á pakkningum. Þetta kemur fram í nýrri könnun þar sem meðal annars var mæld fita í nautahakki sem auglýst var að væri að hámarki átta prósent fita.

Þriðjungur pakkninganna reyndist hins vegar fitumeiri og mest mældist fitan sautján prósent. Þau sláturhús sem komu hvað verst út úr könnuninni hafa verið sektuð og einnig hefur samband slátrara ávítt þau fyrir slæm vinnubrögð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×