Erlent

Misnota íþróttamót

Færst hefur í aukana að þátttakendur á íþróttamótum í Danmörku hafi nýtt þau til að gerast ólöglegir innflytjendur í landinu. Samkvæmt frétt dagblaðsins Urban urðu 125 íþróttamenn, flestir frá Afríku, eftir í landinu í fyrra eftir að hafa komið til keppni í Danmörku. Nú í sumar struku fjórtán drengir frá Burkina Faso. Sjö af þeim hafa sótt um hæli í Svíþjóð en ekki er vitað hvað varð um hina. Einnig hefur ekkert spurst til 41 keppanda frá Moldóvu.

Í viðtali við Urban segir Anni Fode frá danska útlendingaeftirlitinu að herða verði reglurnar um þátttöku fólks frá ákveðnum löndum í íþróttamótum í Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×