Erlent

Komin upp að nýju í Kína

Fuglaflensa hefur aftur greinst í Kína, í annað sinn á einni viku. Veiran greindist í tæplega tvö þúsund gæsum í Austur-Kína. Jafnframt hafa índónesísk yfirvöld staðfest fjórða dauðsfallið af völdum veirunnar.

H5N1-stofn veirunnar hefur fundist allvíða um heim, meðal annars í Evrópu, en yfirvöld óttast þessa tegund meira en aðrar þar sem þau telja hana geta stökkbreyst þannig að hún berist manna á millum. Ríflega sextíu manns hafa þegar látist úr flensunni. n




Fleiri fréttir

Sjá meira


×