Ríkustu þjóðirnar hafa brugðist 27. október 2005 06:15 Táradalur. Shama Bibi, 25 ára ófrísk ekkja, grætur í tjaldi sínu í Muzaffarabad á meðan frænka hennar horfir í gaupnir sér. 40.000 ófrískar konur eru á meðal þeirra sem misst hafa heimili sín og þær líta veturinn ekki björtum augum.
Sameinuðu þjóðirnar fara nú fram á að ríki heims leggi fórnarlömbum jarðskjálftans í Kasmír til tvöfalda þá upphæð sem stofnunin bað fyrst um. Mörg af ríkustu löndunum hafa ekkert látið af hendi rakna. "Þessar hörmungar eru alvarlegri en við gátum nokkurn tímann ímyndað okkur," sagði Kofi Annan á ráðstefnu styrktarríkjanna í Genf í gær. Sameinuðu þjóðirnar telja nú nauðsynlegt að þau leggi fram 35 milljarða króna og það sem sem allra fyrst. Himalaya-veturinn er skammt undan og berist ekki þeim 3,3 milljónum manna sem eru heimilislaus hjálpargögn á næstunni er víst að mun fleiri munu látast í Kasmír en þeir 79.000 sem þegar eru taldir af. Bresku góðgerðarsamtökin Oxfam birtu hins vegar skýrslu í gær þar sem fram kemur að mörg af auðugustu ríkjum heims, til dæmis Frakkland, Finnland og Spánn, hafa ekkert gefið og ríki á borð við Bandaríkin, Japan og Þýskaland gætu staðið sig mun betur. Einungis fimmtungur þeirrar upphæðar sem SÞ hafa farið fram á hefur borist. Hjá íslenska utanríkisráðuneytinu fengust þær upplýsingar að þegar hafi 300.000 dölum, eða um átján milljónum króna, verið varið til neyðaraðstoðar til fórnarlambanna. Ekki hefur verið ákveðið hvort aukið verði við þá upphæð.
Erlent Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira