Ræningjar léku á lögreglu 12. nóvember 2005 08:00 Rbótar leita sprengju.Sænska lögreglan beitti ýtrustu varkárni vegna sprengjuhótunar ræningjanna við Háskólann í Jönköping og notaði fjarstýrða róbóta til að ganga úr skugga um það hvort sprengja væri í bílnum eða ekki. Stóru svæði í kringum skólann var lokað af meðan á leitinni stóð en engin sprengja fannst.
Lögreglunni í Jönköping barst tilkynning um að sprengja væri í bíl við Háskólabókasafnið þar í bæ um hálf átta leytið í gærmorgun. Á sama tíma rændu fjórir til sjö vopnaðir menn peningageymslu öryggisfyrirtækisins Securitas. Ræningjarnir óku pallbíl í gegnum hurð á öryggisfyrirtækinu og flúðu af vettvangi á bílum og mótorhjólum. Tæplega tíu þúsund nemendum og starfsfólki skólans var gert að yfirgefa háskólasvæðið á meðan lögreglan leitaði sprengjunnar. Síðdegis kom í ljós að engin sprengja var í bílnum. Arnar Viðarsson, sem stundar nám við Alþjóða viðskiptaháskólann í Jönköping, var meðal nemenda sem var gert að rýma háskólasvæðið. "Nemendur voru beðnir að yfirgefa skólann en þetta fór allt saman mjög rólega fram," segir Arnar sem áttaði sig ekki á því í fyrstu hvers vegna byggingarnar voru rýmdar. "Nei, ég varð ekki hræddur. Ég fór fyrst að athuga hvort einkunnirnar mínar væru komnar áður en ég áttaði mig á hvað um væri að vera," segir Arnar. Meðan lögreglan gerði viðeigandi varúðarráðstafanir við bókasafnið rændu vopnaðir menn öryggisgeymslu Securitas. Fjórir öryggisverðir Securitas læstu sig inni á meðan ræningjarnir athöfnuðu sig en að sögn vitna tók ránið ekki nema um hálfa mínútu. Lögreglan kom ekki í öryggisgeymsluna fyrr en um klukkustund eftir að ræningjarnir voru á bak og burt, þótt það væri einungis tæpur kílómetri á milli öryggisgeymslunnar og háskólabókasafnsins. Sprengjusveit lögreglunnar í Malmö var kölluð til við háskólabókasafnið. Hún notaðist meðal annars við tvö vélmenni til að ganga úr skugga um hvort sprengja væri í bílnum. Ekki er vitað hversu miklum peningum ræningjarnir stálu. Að sögn talsmanna Securitas náðu þeir aðeins lítilli fjárhæð en að sögn vitna báru ræningjarnir fimm peningasekki út úr öryggisgeymslunni. Ránið í gær er eitt fjölmargra rána sem framin hafa verið í Svíþjóð síðustu mánuði. Í síðustu viku var peningaflutningabíll frá Securitas sprengdur og peningum úr honum rænt. Öryggisverðir Securitas hafa lagt niður störf þar sem þeir óttast um öryggi sitt. Sérsveit lögreglunnar, sem var sérstaklega stofnuð til að vinna gegn ránum á peningaflutningabílum, hafði ekki verið kölluð út í gærkvöld.
Erlent Mest lesið Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Ingibjörg býður sig fram í formanninn Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Erlent Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Innlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Fleiri fréttir Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Sjá meira