Erlent

Sendimenn sendir heim

Tyrknesk stjórnvöld hafa kallað tvo háttsetta sendimenn í sendiráði sínu í Tel Aviv heim frá Ísrael. Með þessu vilja þeir mótmæla framferði Ísraelsstjórnar gegn Palestínumönnum. Stjórnir beggja landa gerðu í fyrradag lítið úr því að mennirnir hefðu verið kallaðir heim. Heimköllunin kemur þó í kjölfar harðrar gagnrýni Tyrkja á Ísraela, þar sem tyrkneski forsætisráðherrann Recep Erdogan hótaði meðal annars að kalla sendiherra sinn heim. Ríki sýna oft óánægju sína með önnur ríki með því að kalla sendimenn sína heim um stundarsakir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×