Erlent

Milljónir flýja heimili sín

Á þriðja hundrað manns hafa látið lífið og milljónir neyðst til að flýja heimili sín vegna flóða sem hafa lagt stór landsvæði í Indlandi, Bangladess og Nepal undir vatn. Þrjár milljónir íbúa Bangladess hafa ýmist neyðst til að flýja heimili sín eða eru innilokaðir á þeim. Tvær milljónir Indverja hafast við í tjöldum. Flóðin hófust í síðasta mánuði en 40 manns létu lífið af völdum þeirra um helgina. Í Bangladess létust ellefu einstaklingar, flestir þeirra börn. Nítján manns hið minnsta létust í Nepal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×