Erlent

Sjálfsvígum fækkar

Sjálfsvígum bandarískra ungmenna hefur fækkað undanfarin ár og aðferðirnar sem þau beita til þess hafa breyst. Fyrir tólf árum frömdu að meðaltali 6,2 af hverjum hundrað þúsund tíu til nítján ára Bandaríkjamönnum sjálfsvíg. Árið 2001 var tíðnin komin niður í 4,6 sjálfsvíg á hver 100.000 ungmenni. Algengast er að ungmenni skjóti sig en mjög hefur aukist að þau hengi sig eða kæfi með öðrum hætti. Þetta á sérstaklega við meðal tíu til fjórtán ára ungmenna, 163 kæfðu sig árið 2001 en 90 skutu sig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×