Erlent

Stal leifum dýrlinga

Serbneska hreintrúarkirkjan í Kosovo hefur sakað franskan herprest um að stela líkamsleifum tveggja serbneskra dýrlinga. Klerkarnir segja að herpresturinn hafi fjarlægt leifarnar úr líkkistum sem voru geymdar í tveimur kirkjum sem höfðu eyðilagst í árásum Kosovo-Albana. Að þeirra sögn sagðist herpresturinn ætla að verja líkamsleifarnar fyrir árásum múslima og afhenda þær serbneskum klerkum í Kosovo. Það gerði hann hins vegar ekki. Alþjóðlega friðargæsluliðið vísaði þessu á bug.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×