Mikil viðhöfn við útför Reagans 11. júní 2004 00:01
Útför Ronalds Reagans, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fer fram frá dómkirkjunni í Washington í dag. Helstu leiðtogar heims munu votta forsetanum fyrrverandi virðingu sína við athöfnina. Mikil viðhöfn verður við útförina og verður opinberum stofnunum í Washington og víðar um Bandaríkin lokað á meðan hún fer fram. Þá verða helstu umferðargötur í Washington einnig lokaðar og hefur lögregla ráðlagt fólki að notast við neðanjarðarlestir í dag, til að koma í veg fyrir öngþveiti. Meðal þeirra sem viðstaddir verða útförina eru George Bush bandaríkjaforseti, faðir hans George Bush eldri, Margret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, Tony Blair forsætisráðherra Bretlands, Gerhard Schröder kanslari Þýskalands og Davíð Oddsson forsætisráðherra Íslands. Bush yngri mun flytja fimmtán mínútna ræðu við útförina og einnig verða spiluð af snældu minningarorð frá Margret Thatcher, sem er of heilsuveil til að koma fram við athöfnina. Alls hafa tæplega tvöhundruð þúsund manns vottað Reagan virðingu sína undanfarna daga með því að leggja leið sína að líkkistu hans. Kista Reagans stóð uppi í Ronald Reagan bókasafninu í Washington á þriðjudag og var síðan ekið í bandaríska þinghúsið, þar sem hún stóð í gær og fyrradag. Reagan verður síðan borinn til grafar í Kaliforníu á morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Fleiri fréttir Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent