Sjálfkjörið í bankaráðið 4. nóvember 2004 00:01
Sjálfkjörið var í bankaráð Íslandsbanka í gær því samkomulag náðist fyrir hluthafafund. Ekkert varð því af æsilegri baráttu um völd eins og sumir höfðu búist við. Einar Sveinsson verður áfram formaður bankaráðs, en með honum sitja þar þau Jón Snorrason, varaformaður bankaráðsins, Helgi Magnússon, Karl Wernersson, Róbert Melax, annar stofandi Lyfju og Steinunn Jónsdóttir, innanhúsarkitekt og Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Brúar Venture Capital, dótturfélags Straums fjárfestingarfélags. Straumur sem á rúmlega nítján prósenta hlut í bankanum naut aðeins atkvæðisréttar sem nemur níu komma níutíu og níu prósenta hlut vegna þess að Fjármálaeftirlitið hefur ekki enn gefið samþykki sitt fyrir eignarhlutnum, eins og þörf er á þegar um meira en tíu prósenta hlut er að ræða. Tveir menn drógu framboð sín til baka fyrir fundinn, Guðmundur B. Ólafsson og Ólafur B. Thors. Orri Vigfússon var kjörinn varamaður í bankaráðið en bæði viðskipti hans og Helga Magnússonar með bréf í bankanum eru til rannsóknar hjá opinberum aðilum. Lengi hefur verið barist um völd í Íslandsbanka og oft gengið mikið á. Þótt allt virðist í lukkunar velstandi þessa stundina er óvíst hve lengi það muni halda. Á markaði hefur verið talað um drauma Björgólfsfeðga um áhrif í bankanum, meðal annars hugmyndir um að sameina Straum Burðarási og að saman myndu þessi fjárfestingarfélög sölsa undir sig Íslandsbanka og skipta honum upp. Þá bárust fréttir af kaupum Baugs í Íslandsbanka í gær, og teljast það dálítil tíðindi þótt hófleg hafi verið,í ljósi forsögunnar þegar forstjóri Baugs varð ásamt félaga sínum undir í baráttu um bankann.
Fréttir Innlent Mest lesið Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent Kalt í veðri miðað við árstíma Veður Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni Erlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Fleiri fréttir Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent