Erlent

Hjálpaði við hengingu konu sinnar

Íranskur eiginmaður rauf sáttmála sem hann hafði gert við konu sína þess efnis að þau myndu svipta hvort annað lífi vegna sektarkenndar yfir því að hafa stundað kynlíf fyrir giftingu. Hjónin höfðu verið gift í aðeins tvo daga þegar þau gerðu með sér sáttmála um að drepa hvort annað samtímis. Maðurinn hjálpaði konunni við að hengja sig en hætti svo við að svipta sjálfan sig lífi og gaf sig fram við lögregluna. Í íslömskum samfélögum er kynlíf fyrir hjónaband ekki talið leyfilegt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×