Erlent

Sex létust í sprengingu

Sex létu lífið og fjórtán særðust, þar af þrír alvarlega, þegar sprengjur sprungu við skóla í borginni Karachi í Pakistan. Þúsundir sunníta eru við nám í skólanum að sögn yfirvalda. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á sprengingunni. Að sögn sjónarvotta sprungu tvær sprengjur við skólann. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ráðist er á skólann, í maí á þessu ári var skólastjóri hans skotinn en hann var yfirlýstur stuðningsmaður talíbana. Karachi er talin vera athvarf margra hryðjuverkamanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×