Erlent

Skógareldar í Portúgal

Miklir skógareldar hafa brotist út víða í Portúgal. Yfir 400 slökkviliðsmenn berjast nú við eldinn til að koma í veg fyrir að hann nái að valda jafn miklu tjóni og í fyrra þegar minnst 18 manns fórust. Svæðið sem hefur orðið verst úti er um 200 km suður af Lisbon vinsælum ferðamannastað á Algarve. Þar notast menn meðal annars við herþyrlur og vatnssprengjur. Vindáttir breytast stöðugt sem gerir það að verkum að eldurinn tekur sig upp aftur og aftur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×