Lífið

Ég er þunglynd

Leikkonan Mischa Barton, 24 ára, hefur stigið fram og viðurkennt að hún tekst á við þunglyndi. Mischa vill horfa fram á við og gleyma árinu 2009 sem var erfitt fyrir hana á margan máta. „Þetta var rosalegt ár fyrir mig. Eitt leiddi af öðru og ég endaði á að fá taugaáfall. Ég bókstaflega brotnaði niður," viðurkenndi Mischa.

Lífið

Kristinn syngur með Frostrósum

Kristinn Sigmundsson óperusöngvari syngur á fyrstu klassísku tónleikum Frostrósa, sem haldnir verða í Háskólabíó 19. desember næstkomandi.

Lífið

Helgin hennar Yoko Ono

Yoko Ono málaði Reykjavík í friðarlitunum um helgina þegar hún minntist þess að sjötíu ár voru liðin frá fæðingu Johns Lennon. Á föstudag var hún viðstödd frumsýningu heimildarmyndarinnar Imagine Peace eftir Ara

Lífið

Uppdópuð í Star Wars

Star Wars stjarnan Carrie Fisher hefur viðurkennt opinberlega að hún notaði eiturlyf við tökur á Star Wars myndinni The Empire Strikes Back. Carrie sem fór með hlutverk prinsessu Leiu í fyrstu þremur Star Wars lét hafa eftir sér: Við notuðum kókaín við tökur á Empire. Þrátt fyrir að ég var ekki hrifin af því að nota kókaín. Þetta var bara spurningum að komast í vímu á hvaða hátt sem var." Carrie ákvað að takast á við vandann og leita sér hjálpar þegar Blues Brothers stjarnan John Belushi dó eftir of stóran eiturlyfjaskammt árið 1982. Ég áttaði mig á því að ég tók inn of mikið af eiturlyfjum og þurfti að takast á við vandann. Þá var ég háð alkohóli en gat ekki haft stjórn á neyslunni."

Lífið

Elskar alltaf Spice Girls

Kryddpían fyrrverandi Mel B lýsir yfir ást sinni á hljómsveitinni Spice Girls og meðlimum hennar í nýlegu viðtali. Mel B, sem var þekkt sem Scary Spice, segir þær Emmu Bunton, Geri Halliwell, Mel C og Victoriu Beckham vera sínar æskuvinkonur. „Þó að það slettist stundu

Lífið

Á þremur stöðvum sama kvöldið

Gunnar Hansson náði einstakri þrennu í íslenskri sjónvarpssögu. Hann talaði inn á heimildarmynd föður síns, Hans Kristjáns Árnasonar, Frá torfbæ á forsíðu Time, hann var auðvitað Frímann Gunnarsson í þáttunum Mér er gamanmál, sem sýndir er á Stöð 2, og á meðan á þessu stóð var hann að

Lífið

Hótel Borg áttræð

Hótel Borg hélt hátíðlega upp á áttræðisafmæli hótelsins á dögunum. Herbergin og svíturnar á hótelinu voru opnar afmælisgestum og haustmatseðillinn sem var með norrænu ívafi var kynntur.

Lífið

Kokkalandsliðið í ham - myndband

Í hádeginu í dag eldaði íslenska kokkalandsliðið fyrir fjölda boðsgesta á veitingastaðnum Grillinu. Um var að ræða einskonar generalprufu þar sem liðið eldaði meðal annars bleikju og lambafillet sem gestir renndu niður með íslköldu vatni. Um var að ræða æfingu fyrir heimsmeistarakeppni sem ber heitið Expogast- Culinary world cup og fer fram í Lúxemborg 0. - 24. nóvember næstkomandi. Við litum við inn í eldhús og fylgdumst með kokkunum í ham eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.

Lífið

Parar fólk saman í Hollywood

Victoria Beckham sér til þess að vinkonur hennar hitti karlmenn í Hollywood. Núna leitar hún að lífsförunaut fyrir Kelly Brook leikkonu. Fyrrum Kryddpían sem varð fatahönnuður leggur Kelly lið í leit hennar að rómantískum vin er haft eftir heimildarmanni sem er nákominn Victoriu. Victoria er hamingjusöm með David og veit hvað þarf til að góð sambönd gangi upp. Nú leitar hún að félaga fyrir Kelly en þær kynntust í tískuviðburði sem þær hafa sótt saman undanfarið. Þær eru með svipaðan húmor og þeim kemur vel saman," sagði heimildarmaðurinn. Victoria áttaði sig á því hvað það er erfitt fyrir Kelly að kynnast góðum m-önnum og ákvað að aðstoða hana. Það er erfitt fyrir konur í Hollywood að hitta karlmenn sem eru þess virði að eyða tíma í." Kelly var með íþróttakappanum Danny Cipriani en sagði honum upp í júní á þessu ári. Núna er hún á höttunum eftir rómantískum kynnum.

Lífið

Sætur bíll sem gleður augað

Ólína Sigurjónsdóttir ekur um göturnar á afskaplega fallegum bíl og hefur vakið verðskuldaða athygli meðal annarra ökumanna. Bíll Ólínu skartar fallegum, löngum augnhárum yfir framljósunum og er án efa einn sætasti bíll landsins um þessar mundir.

Lífið

Stelpurnar í Ungfrú Samúel

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru af stúlkunum sem keppa í fyrirsætukeppninni Ungfrú Samúel sem fram fer... Þá má sjá Erp Eyvindarson og Friðrik Dór skemmta sér og öðrum á 800 Bar á Selfossi. Myndirnar tók Sveinbi ljósmyndari superman.is.

Lífið

Sean Penn fær styrk frá Bill Clinton

Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og stofnun hans hafa ákveðið að styrkja góðgerðarsamtök bandaríska leikarans Sean Penn um 500 þúsund dala, sem samsvarar 55 milljónum íslenskra króna. Penn hefur verið ötull talsmaður mannúðarmála en það er Haítí sem á hug hans allan. Íbúar

Lífið

Elskar að kela og borða - myndir

Ed Westwick ein aðalstjarnan í Gossip Girl sjónvarpsþáttunum vinsælu elskar að eyða heilu dögunum upp í rúmi þar sem hann sefur, knúsar og borðar mat með fallegri konu. Ed, sem leikur Chuck Bass, hefur undanfarið verið í haltu mér slepptu mér sambandi við meðleikkonu sinni, Jessicu Szohr, en í dag eru þau ekki saman að hans sögn. Kelerí og matur upp í rúmi heilu dagna. Ég elska það," sagði Ed.

Lífið

Rúnar Freyr og Selma saman á ný

„Ég hlakka mikið til að troða upp í Hörpu, það er búið að bíða lengi eftir þessu húsi,“ segir Rúnar Freyr Gíslason leikari. Hann mun leika stórt hlutverk í söngleiknum Chess eftir Abba-félagana Björn og Benny og textahöfundinn Tim Rice sem verður frumsýndur í nýju tónlistar- og

Lífið

Fjölskylduvænir í Turninum - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Sigurður Friðrik Gíslason framkvæmdastjóri Veisluturnsins hvað hann er með í boði á veitingahúsinu Nítjándu þar sem hann leggur sérstaka áherslu á að sinna ungu gestunum. Það sem athygli vekur er að gestum er boðið upp á alls sextán tegundir af desertum. Börnum stendur til boða sérstakt barnahlaðborð og ævintýralegt barnaleikherbergi þar sem starfsmaður fylgist með börnunum á meðan foreldrar njóta matarins. Í leikherberginu er heill ævintýraheimur fullur af Disney leikföngum, bíó og lesefni. Sjá Disneyheim barnanna hér (myndband á Facebooksíðu Lífsins).

Lífið

Hélt partí fyrir ömmu

Rapparinn Jay-Z hélt veglegt partí fyrir ömmu sína þegar hún varð 85 ára á dögunum. Jay-Z og unnusta hans Beyoncé Knowles sóttu ömmuna á glæsibifreið og fóru með hana í sal með útsýni yfir New York borg. Þar beið fjöldinn allur af gestum og skemmti amman sér hið besta.

Lífið

Samdi við risann Macmillan

Yrsa Sigurðardóttir hefur samið við bandarískt risaforlag um útgáfu á einni glæpasögu sinni. Útgefendur þar í landi eru að leita að hinum næsta Stieg Larsson.

Lífið

Rækta hjónabandið með samkvæmisdönsum

„Hann er ekkert á tátiljunum þarna. Hann heldur enn þá í karlmennskuna,“ segir Sigurlaug Halldórsdóttir, eða Dillý, flugfreyja og eiginkona leikarans Pálma Gestssonar. Stutt er síðan þau byrjuðu að stunda samkvæmisdansa einu sinni í viku eftir að hafa frestað því í mörg ár.

Lífið

Lítið um safarík kvenhlutverk

Gwyneth Paltrow segir að það hafi verið erfitt að slá í gegn í Hollywood. Hún óttast að margar ungar leikkonur lendi í vandræðum þegar þeim er stillt upp við vegg í kvikmyndaborginni. „Þegar ég var að hefja ferilinn lagði einhver til að við myndum ljúka fundinum í svefnherberginu,“ sagði Paltrow í viðtali við tímaritið Elle.

Lífið

Ljósvakaljóð í fimmta sinn

Stuttmynda- og handritahátíð unga fólksins, Ljósvakaljóð, verður haldin í fimmta sinn í ár. Ungu fólki á aldrinum 15-25 ára gefst kostur á að keppa um bestu stuttmyndina eða besta frumsamda stuttmyndahandritið. Hátíðin verður haldin föstudaginn 22. október í Norræna húsinu.

Lífið

LeAnn með leiðindi

Sveitasöngkonan LeAnn Rimes á að hafa treyst vinkonu sinni fyrir því að í hvert sinn sem hún lemur í boxpúða í líkamsræktinni ímyndi hún sér fyrrverandi eiginkonu kærasta síns, Brandi Glanville.

Lífið

Halle fann ástina á ný

Leikkonan Halle Berry er farin að slá sér upp með mótleikara sínum, hinum franska Olivier Martinez. Parið kynntist við tökur á kvikmyndinni Dark Tide sem frumsýnd verður á næsta ári.

Lífið

Ráðist á Kim Kardashian

Kim Kardashian, 29 ára, segist vera heil heilsu eftir að kona réðist á hana á bar í New York í gærkvöldi. Ég vil fá að koma því á framfæri að það er allt í lagi með mig eftir þennan slag sem ég lenti í á barnum í gærkvöldi. Það eru allir að spyrja mig hvort ég sé OK," sagði Kim í yfirlýsngu sem hún sendi frá sér á blogginu hennar í gær. Í gærkvöldi fór ég ásamt Kourtney, Scott og Khloe í drykk á bar í New York borg. Drukkinn karlmaður kom upp að mér og bað um að fá að taka mynd. Ég gaf leyfi en kærastan hans, sem var mjög drukkin, missti stjórna á sér, henti glasi í mig og hlutirnir fóru úr böndunum. Sem betur fer voru Scott og Khloe þarna til að vernda mig. Enginn af þeim var að drekka. Þetta var fjölskyldukvöld. Við yfirgáfum staðinn og blönduðum okkur því ekki í dramað hjá parinu.

Lífið

Í kröppum dansi í Las Vegas

„Ég var tekin bak við og haldið þar í klukkutíma. Svo var ég spurð spjörunum úr og allt tekið upp úr öllum töskum mínum. Fyrst vissi ég ekkert hvað var í gangi en þeir útskýrðu svo hvað var í gangi,“ segir fyrirsætan Bryndís Gyða Michelsen.

Lífið

Svona færðu stinnan bossa - myndband

Sigrún Björg Ingvadóttir einkaþjálfari og Tabata kennari í World Class í Kringlunni sýnir okkur heimaæfingar fyrir efri og neðri hluta líkamans sem auðvelt er að framkvæma. Eina sem Sigrún notast við er stóll og teygja. Sjá æfingarnar í meðfylgjandi myndasafni.

Lífið

Detox dúndur fyrir kroppinn - myndband

Solla Eiríks leyfir okkur að kíkja inn í eldhús á veitingahúsinu hennar, Gló þar sem hún gefur okkur einfalda en dúndurgóða uppskrift að detox djús sem inniheldur steinselju, mintu, korianter, sítrónugras sellerí, agúrku, engifer, lime og vatn. Solla sýnir okkur aðferðina og fræðir okkur um hollustu safans í meðfylgjandi myndskeiði.

Lífið

Hilmir Snær fluttur á sjúkrahús í London

„Þetta reyndist vera aðeins meira en mér sýndist í fyrstu,“ segir Hilmir Snær Guðnason leikari. Vesturport varð að hætta við sýningu á Faust fyrir fullu húsi í Young Vic-leikhúsinu á fimmtudagskvöld þegar tuttugu mínútur voru liðnar af leikritinu, vegna skurðar sem Hilmir Snær hlaut. Leikarinn vildi halda áfram en Bretarnir sendu hann rakleiðis upp á sjúkrahús í sjúkrabíl þar sem hann varð að bíða í fjóra tíma eftir að fá aðstoð. „Maður saknaði svolítið íslensku slysavarðsstofunnar þá,“ segir Hilmir.

Lífið

Spilar Barry White í svefnherberginu

Söngkonan Mel B sem er um það bil að hleypa heiminum inn í líf sitt því nú er að hefja göngu sína raunveruleikaþáttur í Bretlandi, sem ber heitið Mel B: It's a Scary World, þar sem fylgst er með Mel, eiginmanni og börnum hennar takast á við daglegt líf. Mel segir að áhorfendur fái að sjá nánast allt sem hún aðhefst nema þegar klukkan er eitt yfir miðnætti og Barry White er settur á fóninn þá krefst hún þess að slökkt verði á kvikmyndatökuvélunum. „Það verða atriði tekin upp í svefnherberginu okkar en ekki eftir klukkan eitt. Þá set ég Barry White tónlist í gang og guð veit hvað gerist spennandi þá," sagði Mel.

Lífið

Afi er afi Sveppa - myndband

Glæný þáttaröð af Algjörum Sveppa hefst í fyrramálið á Stöð 2 í opinni dagskrá. Þetta er þriðja þáttaröðin en síðustu tvo vetur hefur Sveppa sannarlega tekist að vinna hug og hjörtu yngstu áhorfenda Stöðvar 2.

Lífið