Erlent

Styðja Æskulýðshúsið

Stuðningsmenn Æskulýðshússins á Norðurbrú í Kaupmannahöfn krotuðu í nótt á dönsku ræðisskrifstofuna í Björgvin í Noregi til að mótmæla því að heimilislausir og aðrir sem hafst hafa við í ungdómshúsinu danska séu þvingaðir til að yfirgefa það. "Ungeren blir", með stórum rauðum stöfum, er til marks um kröfuna um að unga fólkið fái að hafast þar við áfram.

Erlent

Maður handtekinn vegna vændiskonumorða

37 ára karlmaður var handtekinn í morgun vegna morðanna á fimm vændiskonum á Suðaustur-Englandi. Lögreglan segir ekkert um nafn mannsins eða hvernig hann tengist vændiskonunum. Breskir fjölmiðlar hafa hins vegar þegar nafngreint manninn og segja hann starfsmann stórmarkaðar í Ipswich-borg á Suðaustur-Englandi.

Erlent

Norður-Kóreumenn með strangar kröfur

Norður-Kóreumenn krefjast þess að öllum viðskiptaþvingunum verði aflétt áður en rætt verði um kjarnorkuafvopnun landsins. Að auki vilja þeir fá léttvatnskjarnakljúf í staðinn fyrir kjarnorkuver sín. Þessar kröfur setti Norður-Kórea fram í upphafi viðræðna sex landa um áætlun til að afvopna kommúnistaríkið.

Erlent

Dæmdur fyrir módelmorð

Manu Sharma, sonur áhrifamikils félaga í stjórnarflokki Indlands var í dag dæmdur fyrir að hafa myrt fyrirsætu árið 1999. Málið hefur fengið mikla umfjöllun í landinu. Sharma var sýknaður fyrr á þessu ári, sem vakti víðtæk mótmæli í landinu, þar sem það þótti sanna að hinir ríku og valdamiklu þyrftu ekki að gegna lögum sem gilda í landinu.

Erlent

Kastró ekki við dauðans dyr

Fulltrúar stjórnvalda á Kúbu þvertaka fyrir að Kastró sé við dauðans dyr, þeir neita orðrómi um að hann sé með krabbamein og segja að hann muni snúa aftur til valda og koma aftur fram á almannafæri þegar hann hefur jafnað sig. Þetta sögðu kúbönsk yfirvöld sendinefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings sem voru í heimsókn í eyríkinu í Karíbahafi.

Erlent

Þrír í gæsluvarðhaldi eftir mótmælin á Norðurbrú

Þrír sitja í gæsluvarðhaldi eftir mótmælin á Norðurbrú í Kaupmannahöfn á laugardagskvöldið. Af þeim eru tveir erlendir ríkisborgarar og einn Dani. Alls voru 273 fluttir í fangageymslur á laugardagskvöld eftir það sem lögreglan kallar stærstu mótmæli í áratugi.

Erlent

Segja sig úr bandarísku Biskupakirkjunni

Tvær stórar sóknir bandarísku Biskupakirkjunnar samþykktu í gær með yfirgnæfandi meirihluta að segja sig úr Biskupakirkjunni og ganga til liðs við íhaldssama félaga sína sem ætla að mynda útibú frá ensku Biskupakirkjunni í Bandaíkjunum. Sóknarbörnin munu þá ganga undir yfirvald erkibiskupsins Peters Akinola, frá Nígeríu, sem hefur kallað samþykki samkynhneigðra sambanda "sataníska árás" á kirkjuna.

Erlent

Áhættuleikari lenti á hausnum

Bandarískum áhættuleikara, Svarousky Oldrich, hefndist fífldirfskan á laugardaginn í Kína. Hann átti að stökkva af þaki bíls á ferð í gegnum þrjá logandi hringi. Hann komst í gegnum þrjá þeirra en fataðist flugið og lenti beint á hausnum. Hann missti meðvitund og fékk slæman heilahristing en kúpan virtist ekki hafa brotnað. Áður hafði Oldrich leikið áhættuatriði í myndum á borð við Men in Black og Taxi Driver.

Erlent

Norður-Kórea aftur að samningaborðinu

Samninganefnd sex ríkja um kjarnavopnaeign Norður-Kóreumanna kom saman í morgun í fyrsta skipti í rúmt ár. Þar kemur í ljós hvort kommúnistastjórn Norður-Kóreu er til í að semja um afvopnun gegn því að viðskiptaþvingunum Sameinuðu þjóðanna verði aflétt.

Erlent

Hamas og Fatah semja um frið

Hamas- og Fatah-hreyfingarnar í Palestínu sögðust í gærkvöldi hafa samið um vopnahlé. Enn mátti samt heyra skothríð á Gaza-ströndinni í morgun og ekki víst hvenær eða hvort vopnahléð myndi taka gildi. Þetta kemur degi eftir að allt virtist stefna í borgarastríð milli andstæðu hreyfinganna tveggja, þar sem Hamas varpaði sprengjum á skrifstofur Abbas forseta og Fatah réðist inn í tvö ráðuneyti.

Erlent

Bandamenn kýta um þotukaup

Stjórnvöld í Noregi og Danmörku þurfa nú fyrir áramót að taka ákvörðun um það hvort þau hyggist taka þátt í næsta þróunaráfanga bandarísk-fjölþjóðlegu orrustuþotunnar F-35 og greiða sinn skerf af kostnaði við hann.

Erlent

Viðgerðir seinka lendingu

Ákveðið hefur verið að lengja dvöl geimferjunnar Discovery í geimnum fram á föstudag til að gjörnýta ferðina til viðgerða á alþjóðlegu geimstöðinni, sem er í smíðum.

Erlent

Tvö símtöl á ellefu dögum

Fídel Kastró hringdi á föstudag til kúbverskra stjórnmálamanna og forseta Venesúela, Hugo Chavez, að því er flokksblaðið Granma greindi frá um helgina. Símtölin voru fyrsta lífsmarkið frá Kastró í 11 daga.

Erlent

Hafnarlögreglan sleppir ungmennum

Lögreglan í Kaupmannahöfn lét í gær laus 186 af þeim hátt í 300 ungmennum sem handtekin voru í götuóeirðum á Nørrebro í fyrrinótt. Mótmæli gegn áformuðu niðurrifi Æskulýðshússins snerust upp í skemmdarverk og slag við lögreglu.

Erlent

Mótmæla drápi í lögregluskothríð

Séra Al Sharpton og aðrir mannréttindaleiðtogar í Bandaríkjunum stóðu í fyrradag fyrir þögulli fjöldagöngu á fjölfarinni verslunargötu á Manhattan í New York. Þeir vilja mótmæla drápi lögreglunnar á Sean Bell, óvopnuðum blökkumanni á brúðkaupsdegi hans í nóvember.

Erlent

Kynskipta- aðgerð kærð

Kínversk hjón hafa kært sjúkrahús í Suður-Kína fyrir að hafa gert kynskiptaaðgerð á eina syni þeirra, því þar með varð úti um vonir þeirra um að eignast afkomendur í beinan karllegg. Fara hjónin fram á skaðabætur og að læknar sjúkrahússins geri uppkomið barn þeirra aftur að karlmanni.

Erlent

Hófsöm öfl fái stuðning

Byssumenn í einkennisbúningum írakska stjórnarhersins réðust inn á skrifstofur Rauða hálfmánans, systurstofnunar Rauða krossins, í Bagdad í gær og námu þaðan á brott hátt á þriðja tug manna í gærmorgun. Mannránið er til vitnis um síversnandi óöldina í landinu.

Erlent

Klofningur í Bólivíu vegna stjórnarskrár

Auðugir afkomendur evrópskra landnema og fátækir indíánar takast nú á í Bólivíu þar sem Evo Morales forseti vill að réttindi indíána verði tryggð í nýrri stjórnarskrá. Aðskilnaðarhreyfing hótar að kljúfa landið í tvö ríki gefi Morales ekki eftir.

Erlent

Fjórðungur kjósenda sam-sinnir Le Pen

Um fjórðungur franskra kjósenda segist í grundvallaratriðum vera sammála stefnu Jean-Marie Le Pens, yfirlýsingaglaða þjóðernissinnans yst á jaðri franskra stjórnmála. Þetta kemur fram í niðurstöðum viðhorfskönnunar TNS-Sofres, fimm mánuðum áður en Frakkar ganga að kjörborðinu í forsetakosningum.

Erlent

Ríkisstjórinn frestar aftökum

Ríkisstjóri Flórída, Jeb Bush, hefur frestað öllum aftökum í ríkinu eftir að illa gekk að framfylgja líflátsdómi Angel Diaz, sem dæmdur var fyrir morð árið 1979.

Erlent

Kínverjar fá fjóra kjarnakljúfa

Fulltrúar Kína og Bandaríkjanna skrifuðu á laugardag undir samning sem greiðir leið Westinghouse Electric Co. til að byggja fjóra kjarnakljúfa í Kína. Bandarísk fyrirtæki skutu með þessu frönskum og rússneskum samkeppnisaðilum ref fyrir rass og hljóðar verkefnið upp á marga milljarða bandaríkjadala.

Erlent

Óðagot vegna músaflótta

Yfir hundrað farþegar í sádiarabískri flugvél urðu felmtri slegnir þegar fjöldi músa hljóp skyndilega um flugvélina. Mýsnar höfðu sloppið úr poka eins farþegans og farið á flakk um farþegarýmið, að því er greint var frá á fréttavef BBC.

Erlent

Írak auðveldar nýliðun öfgaafla

Öfgamenn notfæra sér ástandið í Írak sem áróðurstæki til þess að vinna menn á sitt band og fá þá til að fremja hryðjuverk í Evrópu. Þetta segir Gijs de Vries, sem fer með hryðjuverkamál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Erlent

Einkavæðingaráform kynnt

Sænska ríkisstjórnin, undir forystu hægrimannsins Frederiks Reinfeldts, tilkynnti fyrir helgina að hún hygðist selja hlut ríkisins í sex fyrirtækjum. Þar á meðal eru fjarskiptafyrirtækið TeliaSonera, Nordea-bankinn og kauphallarfyrirtækið OMX, sem Kauphöll Íslands gekk nýlega til liðs við.

Erlent

Nágrannar fái kjarnorkutækni

Íranar munu halda kjarnorkuáætlun sinni til streitu, jafnvel þótt Sameinuðu þjóðirnar ákveði refsiaðgerðir. Þessu lýstu bæði utanríkisráðuneytið í Teheran og Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti yfir í gær.

Erlent

Hundruð manna yfirheyrð

Fimm hundruð manna sérsveit bresku lögreglunnar vinnur nú að því að rekja hvert spor í leitinni að morðingja fimm vændiskvenna í enska bænum Ipswich. Yfir 400 vegfarendur, sem leið áttu um rauðljósahverfi bæjarins um helgina, voru stöðvaðir og yfirheyrðir í von um að þannig fengjust betri upplýsingar um síðustu stundir hinna myrtu.

Erlent

Átján fangar sendir heim

Bandaríkjaher sendi átján fanga úr Guantanamo-búðunum á Kúbu um helgina til heimalanda sinna, að því er talsmaður varnarmálaráðuneytisins í Washington greindi frá í gær.

Erlent

Hundruð lýðræðissinna handteknir

Yfir tvö þúsund manns tóku þátt í sjaldséðum mótmælum gegn ríkisstjórninni í Moskvu í fyrradag. Mótmælendur sökuðu Kremlarstjórnina um valdstjórnartilburði og mótmæltu breytingum á kosningalöggjöf.

Erlent