Erlent
Tveir snarpir skjálftar í Christchurch Tveir snarpir jarðskjálftar riðu yfir Nýsjálensku borgina Christchurch í nótt. Báðir mældust þeir um 5,8 stig, sá fyrri kom rétt fyrir klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma og sá seinni áttatíu mínútum síðar. Vitað er til að einn hafi slasast en fregnir af stórfelldu tjóni hafa ekki borist. Aðeins tíu mánuðir eru liðnir frá því stór hluti borgarinnar var lagður í rúst í jarðskjálfta en þá fórust um 180 manns. Jarðskjálftarnir áttu báðir upptök sín tæpa 30 kílómetra utan við borgina. Erlent 23.12.2011 07:05
Tyrknesk stjórnvöld mótmæla banninu Franska þingið bannar fólki að neita því að fjöldamorð Tyrkja á Armenum fyrir nærri hundrað árum hafi í reynd verið þjóðarmorð. Tyrknesk stjórnvöld bregðast ókvæða við og hafa kallað sendiherra sinn heim frá Frakklandi. Erlent 23.12.2011 05:30
Hefði aldrei átt að fara til Íraks Verjendur Bradley Manning, hermannsins sem sakaður er um að hafa lekið ógrynni leyniskjala til Wikileaks, kölluðu aðeins tvö vitni fyrir í undirbúningsdómþingi, sem lauk í gær. Erlent 23.12.2011 03:15
Hamas gengur til liðs við PLO Hamas-samtökin ætla að ganga til liðs við PLO, regnhlífarsamtökin sem í tuttugu ár hafa notið alþjóðlegrar viðurkenningar sem réttmætur málsvari Palestínumanna. Erlent 23.12.2011 03:00
Fyrsta nýja eindin fundin Vísindamenn við öreindahraðal Evrópsku kjarnorkurannsóknastofnunarinnar (CERN) hafa gert fyrstu nýju uppgötvunina með hraðlinum sem opnaður var árið 2009. Staðfest hefur verið að ný öreind hefur greinst í hraðlinum en til að uppgötvun sé staðfest þarf hún að uppfylla mjög ströng skilyrði. Erlent 23.12.2011 01:00
Krabbamein í gjafalíffærum Tæplega fimmtug kona lést í Danmörku í síðasta mánuði af völdum illvígs krabbameins eftir að hafa gengist undir lungnaígræðslu á Rigshospitalet. Erlent 22.12.2011 23:45
Varð fyrir eigin bíl og lét lífið Ríflega áttræður maður lét lífið í gærmorgun þegar hann varð fyrir eigin bifreið. Atvikið átti sér stað í bænum Korsör á Sjálandi. Erlent 22.12.2011 23:15
Froskur slær í gegn á netinu Tæknin er orðin svo mikil nú til dags að meira að segja dýrin eru orðin ringluð. Það sannar sig í meðfylgjandi myndbandi en þar er froskur sem heldur að hann sé að borða pöddur. Pöddurnar eru þó ekki til í alvöru, heldur eru þær hluti af leik í farsíma. Hann gefst þó upp að lokum og ræðst á eiganda sinn. Sjón er sögu ríkari. Erlent 22.12.2011 23:09
Siku vekur lukku í Danmörku Ísbjarnarhúnn að nafni Siku er nýjasti meðlimur dýralífsgarðsins í Danmörku. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann nú þegar sigrað hjörtu internetnotenda víðsvegar um heim. Erlent 22.12.2011 23:00
Járnkúla féll af himnum ofan í Namibíu Stór járnkúla féll af himnum ofan í Namibíu fyrir stuttu. Yfirvöld höfðu samband við Geimferðastofnun Bandaríkjanna og Geimvísindastofnun Evrópu. Erlent 22.12.2011 22:00
Vann Lamborghini og ók í gegnum girðingu Vörubílstjóri í Bandaríkjunum vann spánýjan Lamborghini í happdrætti. Hann fór með fjölskylduna í bílferð stuttu seinna og tókst að aka bílnum í gegnum girðingu. Hann ætlar að selja bílinn. Erlent 22.12.2011 21:30
Dýrkaði Michael Jordan og spilaði tölvuleiki Nýskipaður leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong Un, var arfaslakur nemandi. Hann stundaði nám í Sviss en hætti án þess að taka eitt einasta próf. Hann eyddi tíma sínum í að horfa á körfubolta og spila tölvuleiki. Erlent 22.12.2011 21:00
Obama keypti jólagjafir ásamt hundinum Bo - myndir Þegar forsetafrú Bandaríkjanna fór í sína árlegu ferð til Hawaii ákvað Barack Obama að nýta tækifærið og kaupa inn fyrir jólin. Hann skrapp út í búð ásamt hundinum Bo og nokkrum lífvörðum. Erlent 22.12.2011 20:15
Fann dóttur sína á lífi sjö árum eftir flóðbylgju Það eru ekki oft sem kraftaverk gerast en það má með sanni segja að sagan af litlu stúlkunni sem talið var að hefði týnt líf í flóðbylgjunni í Indónesíu árið 2004, sé kraftaverki líkust. Erlent 22.12.2011 20:03
Gervitunglamyndir varpa ljósi á daglegt líf í Norður-Kóreu Bandaríska fyrirtækið IHS Jane's hefur birt gervitunglamyndir sem teknar voru af helstu kennileitum Norður-Kóreu og höfuðborgarinnar Pyongyang. Erlent 22.12.2011 14:10
Google Maps vísar leiðina til Mordor Tolkien aðdáendur sem þrá að komast frá Héraðinu til Mordor er velkomið að biðja um leiðbeiningar í Google Maps. Forritið hefur þó áríðandi skilaboð til þeirra sem höfðu hugsað sér að rölta þangað. Erlent 22.12.2011 13:33
Bandaríkjaher viðurkennir ábyrgð eftir loftárás í Afganistan Bandaríski herinn viðurkennir ábyrgð sína í máli 24 pakistanskra hermanna sem féllu í aðgerðum hersins í síðasta mánuði. Mennirnir féllu í loftárás í suðurhluta Afganistan. Erlent 22.12.2011 13:02
Boðar ný gögn í Lockerbie málinu Maðurinn sem dæmdur var fyrir að sprengja vél Pan Am flugfélagsins yfir Lockerbie í Skotlandi árið 1988 boðaði í morgun að ný gögn myndu koma fram í málinu sem gætu hreinsað nafn hans. Erlent 22.12.2011 12:59
Sögulegur "fyrsti koss" Lesbískt par í sjóher Bandaríkjanna braut blað í réttindabaráttu samkynhneigðra í gær. Ákveðið var að parið myndi heiðra rótgróna hefð á herskipum sjóhersins og það fyrir framan myndavélarnar. Erlent 22.12.2011 12:12
Mikið mengunarslys í uppsiglingu í Nígeríu Gríðarlegt mengunarslys virðist í uppsiglingu undan ströndum Nígeríu. Óhapp átti sér stað þegar verið var að dæla olíu af borpalli Royal Dutch Shell og yfir í tankskip. Borpallinum hefur nú verið lokað en mikið magn olíu fór í sjóinn. Olían hefur nú dreift úr sér um 100 sjómílna langt svæði og búast yfirvöld í Nígeríu við því að olían nái að ströndum landsins í dag. Líklegt þykir að slysið sé það versta við strendur Nígeríu í áratug. Erlent 22.12.2011 11:32
Að minnsta kosti 63 fórust í Bagdad Nú er komið í ljós að 63 létust hið minnsta og 183 eru særðir eftir röð sprengjuárása í Bagdad í Írak í morgun. Að minnsta kosti fjórtán sprengjur sprungu víðsvegar um borgina að sögn yfirvalda. Erlent 22.12.2011 10:46
Náttúruundur fylgdu fráfalli Kim Jong-il Enn syrgja íbúar Norður-Kóreu en nú eru þrír dagar liðnir síðan tilkynnt var um fráfall Kim Jong-il, einræðisherra og andlegs leiðtoga kjarnorkuveldisins. Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa nú birt ótrúlegar lýsingar á náttúrufyrirbærum sem áttu sér stað þegar leiðtoginn féll frá. Erlent 22.12.2011 10:30
Amagermaðurinn í lífstíðarfangelsi Marcel Lychau Hansen, 46 ára gamall karlmaður sem danskir fjölmiðlar kalla Amagermanninn, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í morgun fyrir tvö morð og fjölmargar nauðganir. Þegar Jacob Scherfig, aðaldómari í málinu, las upp dóminn var klappað í réttarsalnum. Á meðal þeirra sem voru samankomnir í réttarsalnum voru nokkrir þeirra sem hinn dæmdi hafði ráðist á. Það var undirréttur í Kaupmannahöfn sem kvað upp dóminn. Erlent 22.12.2011 10:13
Staðfesta sakhæfismatið á Breivik Nefnd réttargeðlækna, sem hafði það hlutverk að yfirfara geðlæknismatið á Anders Breivik fjöldamorðingja, gerir engar efnislegar athugasemdir við við matið. Áður höfðu réttargeðlæknar, sem töluðu við Breivik og mátu sakhæfi hans, komist að þeirri niðurstöðu að hann væri ósakhæfur sökum geðveiki. Erlent 22.12.2011 09:52
Óskarinn fyrir Citizen Kane fór á hundrað milljónir Óskarsverðlaunastyttan sem Orson Welles fékk fyrir að skrifa handritið að kvikmyndinni Citizen Kane árið 1941 seldist á uppboði í Kalíforníu í gær á 850 þúsund dollara eða rúmar hundrað milljónir króna. Erlent 22.12.2011 09:02
Finnar kyrrsetja skip: Patriot flaugar merktar sem flugeldar Hafnaryfirvöld í finnsku borginni Kotka hafa stöðvað för flutningaskips sem siglir undir fána eyjarinnar Manar. Skipið var á leið til Kína en um borð fundust bandarískar Patriot eldflaugar og öflugt sprengjuefni. Innanríkisráðherra Finnlands segir að í farmskrá hafi eldflaugarnar, sem eru af fullkominni gerð, verið skráðar sem flugeldar. Skipið, sem heitir MS Thor Liberty, var að koma frá Þýskalandi. Erlent 22.12.2011 08:11
Mannskæðar árásir í Írak Að minnsta kosti átján létust og fimmtán eru særðir eftir röð sprengjuárása í Bagdad í Írak í morgun. Tvær vegasprengjur sprungu í einu héraðinu á meðan bílsprengja olli usla í öðru. Árásir af þessu tagi eru enn algengar í Írak þótt dregið hafi töluvert úr ofbeldinu þar í landi síðustu misserin. Erlent 22.12.2011 08:08
Eftirlitsmenn Arababandalagsins til Sýrlands Sérskipaðir eftirlitsmenn frá Arababandalaginu kom líklegast til Sýrlands í dag en þeim er falið að fylgjast með þróun mála í landinu og er vonast til að vera þeirra þar dragi úr átökunum sem þar hafa geisað síðustu mánuði. Erlent 22.12.2011 08:07
Evrópuríki mega rukka Evrópudómstóllinn hefur hafnað rökum bandarískra og kanadískra flugfélaga, sem kærðu evrópsk stjórnvöld fyrir að leggja kolefnisgjald á flug til Evrópu. Erlent 22.12.2011 08:00
Hvatt til neyðarfundar hjá SÞ Sýrlenskir stjórnarandstæðingar hvetja öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til að koma saman til neyðarfundar vegna blóðbaðsins í Sýrlandi, sem sagt er hafa náð nýjum hæðum á allra síðustu dögum. Erlent 22.12.2011 06:00
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði Innlent