Liverpool hefur ekki unnið þegar Mane byrjar ekki og nú er tímabilið búið hjá honum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2017 13:26 Sadio Mane. Vísir/Getty
Sadio Mane, framherji Liverpool, verður ekki með liðinu í síðustu sjö leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Sadio Mane meiddist á hné í 3-1 sigurleiknum á Everton og knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp sagði á blaðamannafundi í dag að það væri nokkuð ljóst að Mane þurfi að fara í aðgerð. „Það er næstum því ómögulegt fyrir hann að spila aftur á þessu tímabili,“ sagði Jürgen Klopp á fundinum. Liverpool keypti Sadio Mane á 34 milljónir punda frá Southampton í sumar og hefur Senegalinn byrjað alla leiki liðsins nema fimm í ensku úrvalsdeildinni. Sadio Mane hefur spilað mjög vel á sínu fyrsta tímabili á Anfield og er með 13 mörk og 6 stoðsendingar í 27 leikjum. Liðið saknaði hans mikið þegar hann fór í Afríkukeppnina og mun örugglega sakna hans mikið í síðustu leikjum tímabilsins. Árangur Liverpool án hans segir líka mikið. Liverpool hefur nefnilega ekki unnið neinn af þeim fimm leikjum sem Sadio Mane hefur ekki verið í byrjunarliðinu. Af þessum fimm töpuðust tveir en þrír enduðu með jafntefli. Liverpool er í 3. sæti deildarinnar þegar sjö umferðir eru eftir. Liðið á góða möguleika á Meistaradeildarsæti en má þá ekki tapa stigum eins og á móti Bournemouth um síðustu helgi. Ensku landsliðsmennirnir Adam Lallana og Jordan Henderson eru líka meiddir. Þeir eru enn að ná sér og eru ekki að æfa með Liverpool þessa dagana. Það má sjá meira um tölfræði Liverpool án Sadio Mane með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira