
Hafa fengið gögn frá Íslandi og Noregi
Yfirvöld í Namibíu hafa fengið afhent gögn frá Íslandi og Noregi sem sögð eru nýtast við rannsókn spillingarlögreglunnar.

Segja fyrirtæki í eigu Samherja hafa greitt fyrir kvóta í gegn um lögmannsstofur
Namibískt dótturfyrirtæki Samherja greiddi fyrir aflaheimildir með millifærslum inn á reikning tveggja lögmannsstofa. Þetta kemur fram í frétt The Namibian í dag.

Gjöld vegna veiðiheimilda töluvert hærri í Namibíu en á Íslandi árið 2018
Samherji greiddi árið 2018 meira fyrir tímabundnar veiðiheimildir í Namibíu en ótímabundnar veiðiheimildir hér á landi.

Samherji framleiðir eigin þætti
Samherji boðar útgáfu vefþátta, hvers ætlunarverk er að miðla sýn útgerðafélagsins á Samherjamálið svokallaða og umfjöllun Kveiks um starfsemi Samherja í Namibíu.

Yfirheyrslur hafa farið fram í rannsókn á Samherja
Héraðssaksóknari hefur yfirheyrt einstaklinga í tengslum við rannsókn hans á málefnum Samherja í Namibíu. Kjarninn fullyrðir að nokkrir einstaklingar hafi réttarstöðu grunaðra í íslenskri rannsókn málsins.

Samherjaskjölin: Fyrrverandi ráðherra synjað um lausn gegn tryggingu
Dómstóll í Namibíu hafnaði ósk Bernhardt Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, og tengdasonar hans um að þeir verði látnir lausir gegn tryggingu í dag, að sögn namibískra fjölmiðla.

Segir Samherja aldrei hafa greitt SWAPO-flokknum
Fullyrt er í namibískum fjölmiðlum að fyrirtækið hafi gert það árið 2017.

Hissa á að teljast eigandi landareignar sem sögð er keypt fyrir fé frá Samherja
Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu sem er einn þeirra sem nefndur var í Samherjaskjölunum sagðist hafa verið steinhissa þegar hann komst að því að landareign á Otjiwarongo svæðinu í Namibíu væri í hans eigu. Rannsakandi segir að Samherji hafi fjármagnað kaupin.

Meintar mútugreiðslur hafi fjármagnað kosningabaráttu SWAPO
Namibískur rannsakandi sagði í dómsal þar í landi í dag að rannsókn hefði leitt í ljós að meintar mútugreiðslur Samherja til þarlendra embættismanna hefðu meðal annars fjármagnað kosningabaráttu SWAPO

Esau kannast ekki við spillingu í ráðherratíð sinni
Bernhardt Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu, þvertekur fyrir að hafa nýtt sér ráðherrastöðu sína til þess að hagnast persónulega.

Samherji kannast ekki við mögulegar handtökur á Íslandi
Namibísk stjórnvöld hafa ekki verið í sambandi við starfsfólk Samherja vegna spillingarrannsóknar þar í landi, að sögn fyrirtækisins. Aðstoðarríkissaksóknari í Namibíu hélt því fram að handtökur á Íslandi væru væntanlegar.

Býst við handtökum á Íslandi
Aðstoðarríkissaksóknari í Namibíu er sagður búast við handtökum á Íslandi í rannsókn á mútumáli sem íslenska sjávarútvegfyrirtækið Samherji er sakaður um að tengjast. Dómari veitti saksóknurum lengri tíma til að rannsaka málið í dag.


Nýtti dvölina í Namibíu til að ferðast: „Ég hélt nú ekki að ég gæti heillast af sandi“
Arngrímur Brynjólfsson, fyrrverandi skipstjóri togarans Heinaste í eigu Samherja, sem handtekinn var í Namibíu þann 30. nóvember vegna gruns um ólöglegar veiðar, segist hafa notað þann tíma sem hann mátti ekki yfirgefa landið til þess að ferðast um Namibíu ásamt eiginkonu sinni.

Beiðnum namibískra yfirvalda miðar áfram hjá héraðssaksóknara
Embætti héraðssaksóknara á í samskiptum við ríkissaksóknara í Namibíu sem rannsakar meint brot í Samherjamálinu svonefnda og framvinda hefur orðið í réttarbeiðnum sem hafa borist að utan, að sögn héraðssaksóknara. Einn namibísku rannsakendanna kvartaði undan því að Ísland og þrjú önnur ríki hefðu enn ekki verið hjálpleg við rannsóknina í vikunni.

Vissi að hann myndi hata ákvörðunina það sem eftir væri
Arngrímur Brynjólfsson, skipstjóri sem stýrði togaranum Heinaste í eigu Samherja í Namibíu, segist hafa neyðst til þess að játa sök í dómsmáli gegn honum í landinu. Að öðrum kosti hefði málið dregist í marga mánuði.

RÚV leiðréttir frétt í kjölfar gagnrýni Samherja
Fréttastofa RÚV telur rétt að leiðrétta fullyrðingu um Samherja sem birtist í frétt um þróunaraðstoð og spillingu síðasta fimmtudag. Forsvarsmenn Samherja kröfðust þess fyrr í dag að RÚV myndi biðjast afsökunar og leiðrétta "meiðandi frétt“ sem sýnd var í tíufréttum RÚV síðasta fimmtudagskvöld.

Umstang að skrapa saman átta milljónum í reiðufé
Lögregluyfirvöld í Namibíu hafa kyrrsett á ný togarann Heinaste. Björgólfur Jóhansson, settur forstjóri Samherja, telur kyrrsetninguna ekki standast lög og hyggst láta reyna á lögmæti hennar fyrir namibískum dómstólum.

Heitir því að uppfylla skyldur Samherja gagnvart skipverjum
Samherji segist ætla að reyna að halda eins mörgum sjómönnum í Namibíu í vinnu áfram og fyrirtækið geti þrátt fyrir að tvö skip af þremur hafi verið færð úr landi.

Arngrímur dæmdur til að greiða milljónasekt í Namibíu
Íslenski skipstjórinn stýrði skipum Samherja í namibískri landhelgi um árabil. Hann játaði ólöglegar veiðar og var gerð refsing í dag.