Erlent
Lagt til að búðunum við Guantanamo-flóa verði lokað Rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu Þjóðanna leggur til að fangabúðum Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu verði lokað. Í skýrslu frá rannsakendunum, sem bandaríska dagblaðið Los Angeles Times hefur komist yfir, segir að meðferð fanganna þar stangist á við alþjóðalög og að þeir megi þola hreinar og beinar pyntingar. Erlent 14.2.2006 07:08
Breska þingið samþykkir lög um nafskírteini Breska þingið samþykkti í kvöld frumvarp ríkisstjórnar Tonys Blairs, forsætisráðherra, um nafnskírteini. Frumvarpið var samþykkt naumlega með 310 atkvæðum gegn 279. Erlent 13.2.2006 22:31
Pólska þingið verður ekki rofið Þing verður ekki rofið og ekki verður boðað til kosninga fyrr en ella samkvæmt ákvörðun Kaczynski, Póllandsforseta, sem hann kynnti í kvöld. Í dag var síðasta tækifæri forsetans á þessu kjörtímabili til að beita stjórnskipulegu valdi sínu og rjúfa þing. Fjölmiðlar höfðu heimildir fyrir því að forsetinn ætlaði að leysa upp þing til að refsa þingmönnum fyrir að hafa ekki samþykkt fjárlög í síðasta mánuði. Erlent 13.2.2006 22:26
Abbas fær víðtækari völd - Hamas-liðar ævareiðir Hamas-samtökin eru ævareið vegna þeirrar ákvörðunar fráfarandi þings palestínsku heimastjórnarinnar að veita Mahmoud Abbas, forseta, víðtæk völd til viðbótar þeim sem hann hefur nú þegar. Erlent 13.2.2006 22:16
Önnur sprengjuárás á fjórum dögum Að minnsta kosti sex særðust alvarlega en enginn týndi lífi þegar sprengja sprakk í stórmarkaði í Istanbúl, stærstu borg Tyrklands, í dag. Þetta er önnur sprengjuárásin þar í borg á fjórum dögum. Erlent 13.2.2006 20:57
Átta kíló af kókíni gerð upptæk á Kastrup 35 ára gamall Spánverji var handtekinn með átta kíló af kókíni á Kastrup flugvelli í gær. Maðurinn kom með flugvél frá Rio de Janeiro í Brasilíu og var stöðvaður á landgöngubrúnni frá flugvélinni að flugstöðvarbyggingunni. Maðurinn hefur verið dæmdur í 25 ára gæsluvarðhald, þar af 11 daga íeinangrun. Erlent 13.2.2006 20:56
Mikil flóð í Kína Ekki er vitað um mannfall í miklum flóðum í norður og norð-vestur Kína síðustu daga. Mikið hefur flætt vegna ofankomu en einnig hefur flætt þar sem snjór og ís hefur bráðnað. Erlent 13.2.2006 20:15
Fuglaflensa á Ítalíu og í Grikklandi Evrópusambandið ætlar að herða eftirlit með svæðum á Ítalíu þar sem hið hættulega H5N1 afbrigði fuglaflensu hefur greinst í villtum fuglum. Flensan hefur einnig greinst í fuglum í Norður-Grikklandi en tilfellin þar og á Ítalíu eru þau fyrstu í ríkjum Evrópusambandsins. Erlent 13.2.2006 20:12
Íranar ætla að auðga úran Íranar ætla að hefja auðgun úrans þann 7. mars næstkomandi. Þeir hafa frestað viðræðum við Rússa um að þeir auðgi fyrir þá úran í Rússlandi og flytji það til Írans. Bandaríkjamenn hafa sagt að það komi ekki til greina að Íranar fái að halda áfram áætlunum sínum og útiloka ekki árásir á landið. Erlent 13.2.2006 20:01
Breytingar á vörugjöldum til að lækka matvælaverð Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, boðar breytingar á vörugjöldum til að lækka matvælaverð. Hann vonast til að nefnd, sem hann skipaði til að kanna orsakir hás verðlags matvæla hérlendis, skili tillögum í haust. Innlent 13.2.2006 19:16
Þingkosningar í Póllandi? Flest bendi til að Kaczynski, forseti Póllands, leysi upp þing landsins og boði til þingkosninga í ræðu sem hann heldur í kvöld. Sú ákvörðun væru svar hans við þeirri ákvörðun þingsins að samþykkti ekki fjárlög þegar greidd voru atkvæði um þau í lok janúar. Erlent 13.2.2006 17:45
Mannskæð sprenging í Afganistan Fjórir bandarískir hermenn féllu þegar sprengja sprakk í Afganistan í dag. Hermennirnir voru við eftirlit í Uruzgan-héraði ásamt afgönskum hersveitum þegar sprengja sprakk undir bíl þeirra með fyrrgreindum afleiðingum. Erlent 13.2.2006 17:38
Bandaríkjamenn útiloka ekki hernaðaraðgerðir gegn Íran Bandaríkjamenn útiloka ekki hernaðaraðgerðir gegn Íran, en munu reyna samningaviðræður fram í lengstu lög. Þetta sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í sjónvarpsþætti í gær. Erlent 13.2.2006 17:33
Saddam Hússein lætur ófriðlega í réttarsal Réttarhöldunum yfir Saddam Hússein, fyrrverandi forseta Íraks, var í frestað fram á morgun eftir viðburðarríkan dag í réttarsalnum. Saddam lét þá loks sjá sig eftir nokkurra daga fjarveru en hann virtist þó fyrst og fremst hafa mætt til að valda óskunda. Erlent 13.2.2006 16:13
Snjóbylur í Bandaríkjunum Mörg þúsund opinberir starfsmenn á austurströnd Bandaríkjanna hafa í dag reynt hvað þeir geta til að koma borgurum til vinnu eftir mesta bylur sem sögur fara af á svæðinu. Borgaryfirvöld í New Yorkhafa meira að segja gripið til þess ráðs að ráða starfsmenn tímabundið með tíu dali á tímann til að moka burt mesta snjónum. Erlent 13.2.2006 16:04
Ekkert lát á voðaverkum í Írak Bið fátækra Íraka eftir matarstyrk breyttist í martröð í morgun, þegar maður hlaðinn sprengiefni gekk að röðinni og sprengdi sig í loft upp. En í skugganum af hrinu ódæðisverka virðist ný ríkisstjórn loks í sjónmáli í Írak. Erlent 13.2.2006 15:33
Saddam með ólæti í réttarsal Saddam Hússein lét loks sjá sig við réttarhöld yfir honum í morgun. Hann virtist þó fyrst og fremst hafa mætt til að valda óskunda. Saddam kvartaði sáran yfir að vera neyddur til að mæta og hrópaði ,,niður með Bush og lengi lifi hin íslamska þjóð." Ekki er vitað til að honum hafi verið vísað úr réttarsalnum enn sem komið er. Erlent 13.2.2006 12:02
Efast um að fuglaflensa verði að heimsfaraldri Dönsk heilbrigðisyfirvöld draga í efa að fuglaflensan verða að næsta heimsfaraldri eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin óttast. Þetta kemur fram í viðbragðsáætlun sem yfirvöldin hafa sent frá sér og greint er frá í Jótlandspóstinum. Erlent 13.2.2006 09:02
Létust þegar sýningarflugvél flaug á hús Tveir létust þegar lítil sýningarflugvél flaug á hús í úthverfi Roseville í Kaliforníu í gær. Húsið er gjörónýt enda klauf vélin það nánast í tvennt auk þess sem mikill eldur blossaði upp. Erlent 13.2.2006 08:51
Ofsaveður í New York Íbúar New York borgar eru hvattir til að halda sig sem mest innandyra í dag vegna ofsaveðurs sem geisað hefur í borginni síðan í gær. Í gærkvöldi var nærri sextíu sentímetra nýfallinn snjór í Central Park, og hafa snjóalög ekki mælst meiri í áratugi í borginni. Þá er hávaðarok og þúsundir heimila hafa verið án rafmagns undanfarinn sólarhring. Erlent 13.2.2006 08:46
Sprengdi sig í loft upp innan um fátæka Íraka Bið fátækra Íraka eftir matarstyrk breyttist í martröð í morgun þegar maður hlaðinn sprengiefni gekk að röðinni og sprengdi sig í loft upp. Sjö féllu og nærri fimmtíu særðust. Að sögn vitna hafði fólkið safnast saman til að sækja um vikulegan matarstyrk þegar ógæfan dundi yfir. Erlent 13.2.2006 09:04
Cheney skaut veiðifélaga sinn Varaforseti Bandaríkjanna skaut veiðifélaga sinn fyrir slysni um helgina. Dick Cheney var að veiða kornhænur ásamt félaga sínum í Texas þegar ekki vildi betur til en svo að hann skaut úr haglabyssu í andlit og brjóstkassa auðkýfingsins Harrys Whittingtons sem var með honum að veiðum. Erlent 13.2.2006 08:57
Ísrael fari af landakortinu fyrr en síðar Ísrael fer af landakortinu fyrr en síðar með góðu eða illu. Þetta sagði Mahmoud Ahmedinajad, forseti Írans, á fjöldasamkomu í Teheran um helgina. Vestræn ríki yrðu að afmá það sem þau hefðu skapað fyrir sextíu árum, en ef ekki myndu Palestínumenn og fleiri sjá um það fyrir þau. Erlent 13.2.2006 08:44
Ný ríkisstjórn í sjónmáli í Írak Ný ríkisstjórn er í sjónmáli í Írak, eftir að bandalag sjía ákvað í gær að tilnefna Ibrahim al-Jaafari sem forsætisráðherra landsins. Hann hefur gegnt embættinu síðan í apríl og flest bendir til að svo verði áfram, enda kemur nærri helmingur þingmanna í Írak úr röðum bandalags sjía. Erlent 13.2.2006 08:36
Hrottafengnar myndir af ofbeldi breskra hermanna Myndbandsupptaka sem sýnir breska hermenn misþyrma íröskum unglingum á hrottafenginn hátt hefur vakið athygli og reiði. Breska varnarmálaráðuneytið sver af sér allar sakir og segir rannsókn á málinu þegar hafna. Erlent 12.2.2006 11:09
Líðan Sharons óbreytt Líðan Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, er óbreytt eftir aðgerðina sem hann gekkst undir í gær. Sharon veiktist alvarlega í gærmorgun og komu þá í ljós svo alvarlegar skemmdir á meltingarfærum hans að líf hans hékk á bláþræði. Læknar við Hadassah-sjúkrahúsið í Jerúsalem gáfu út yfirlýsingu í morgun þar sem fram kom að aðgerðin hefði heppnast vel og líðan forsætisráðherrans væri stöðug Erlent 12.2.2006 10:31
Þurfa að kjósa aftur Útlit er fyrir að boða þurfi til annarrar umferðar í forsetakosningunum á Haítí þar sem enginn frambjóðendanna fékk hreinan meirihluta í fyrri umferðinni á sunnudag. Fyrstu tölur bentu til að Rene Preval, hægri hönd Jean Bernard Aristide fyrrverandi forseta, hefði unnið yfirburðasigur en þegar 72 prósent atkvæða höfðu verið talin í gær hafði hann einungis fengið 49,6 prósent þeirra. Erlent 12.2.2006 10:28
Hvetja Dani til að yfirgefa Indónesíu Dönsk stjórnvöld hafa hvatt Dani sem staddir eru í Indónesíu til að yfirgefa landið þegar í stað vegna "eindreginnar og yfirvofandi hættu" eins og það er orðað en mikil reiði ríkir í landinu vegna Múhameðsmyndanna umdeildu. Nokkur hundruð Dani er að finna á helstu ferðamannastöðum Indónesíu og er verið að leita leiða til að koma þeim á brott. Erlent 12.2.2006 10:23
Fuglaflensan þokast vestur Heilbrigðisyfirvöld í þremur Evrópulöndum staðfestu í dag að flensa af H5N1-stofni hefði greinst í þarlendum fuglum. Þessi skæða sótt virðist því feta sig hægt en örugglega vestur á bóginn - og þar með hingað til lands. Erlent 11.2.2006 19:22
Rúmlega 66 ára nýbökuð móðir Elsta mamma í heimi hefur loks staðfestingu á nafnbót sinni. Rúmenska konan Adriana Iliescu eignaðist dótturina Maríu Elísu seint í hitteðfyrra en þá var hún 66 ára og 230 daga gömul. Starfsmenn Heimsmetabókar Guinness tóku sér hins vegar góðan tíma í að fara yfir metið og sannreyna aldur hinnar öldruðu móður áður en þeir kváðu upp úrskurð sinn. Erlent 11.2.2006 15:04