Erlent

Rúmlega 66 ára nýbökuð móðir

Elsta mamma í heimi hefur loks staðfestingu á nafnbót sinni. Rúmenska konan Adriana Iliescu eignaðist dótturina Maríu Elísu seint í hitteðfyrra en þá var hún 66 ára og 230 daga gömul. Starfsmenn Heimsmetabókar Guinness tóku sér hins vegar góðan tíma í að fara yfir metið og sannreyna aldur hinnar öldruðu móður áður en þeir kváðu upp úrskurð sinn. Mæðgurnar fengu peningaupphæð að launum en hún verður geymd þangað til María Elísa er nógu gömul til að fara í skóla. Þá verður mamman komin vel á áttræðisaldur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×