Hrottafengnar myndir af ofbeldi breskra hermanna 12. febrúar 2006 11:09
Myndbandsupptaka sem sýnir breska hermenn misþyrma íröskum unglingum á hrottafenginn hátt hefur vakið athygli og reiði. Breska varnarmálaráðuneytið sver af sér allar sakir og segir rannsókn á málinu þegar hafna. Það var breska blaðið News of the World sem birti myndirnar óhugnanlegu sem það segir liðþjálfa í breska herliðinu hafa tekið í suðurhluta Íraks fyrir um tveimur árum. Á myndunum sjást einhvers konar uppþot þar sem breskum hermönnum og íröskum unglingspiltum, hermönnum lýstur greinilega saman. Á meðan þessu stendur tekur hópur hermanna nokkra pilta, fer með þá inn í port og lætur svo barsmíðarnar dynja á þeim. Á meðan á þessu stendur hlakkar í tökumanninum og virðist hann gleðjast við hvert högg. Í yfirlýsingu frá breska varnarmálaráðuneytinu frá því í morgun kemur fram að myndirnar séu litnar mjög alvarlegum augum og rannsókn á málinu sé þegar hafin. Enn er of snemmt að segja til um hver áhrif myndanna verða á tengsl Íraka og breska herliðsins verða en hingað til hefur sú sambúð gengið að mestu snurðulaust fyrir sig. Skemmst er hins vegar að minnast reiðinnar sem greip um sig í Írak og á alþjóðavettvangi eftir að myndirnar af misþyrmingunum úr Abu Ghraib fangelsinu komust í hámæli vorið 2004. Níu bandarískir hermenn hafa verið dæmdir fyrir þátt sinn í þeim. Á síðasta ári voru þrír Bretar fangelsaðir eftir að myndir sýndu þá beita íraska fanga grófu ofbeldi. Rannsókn þessa nýjasta hneykslis er vitaskuld enn ekki hafin en ef að líkum lætur verða illvirkjarnir dregnir fyrir dóm og þeim refsað.
Erlent Fréttir Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sjá meira