Norski boltinn

Lærisveinar Freys töpuðu fyrir norsku meisturunum
Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Brann mættu Bodö/Glimt í dag, í norskum toppslag. Brann tapaði leiknum 3-0.

„Meiri möguleikar fyrir mig til þess að sýna mig í Evrópu“
Landsliðsmaðurinn Logi Tómasson er á leið til tyrkneska félagsins Samsunspor eftir tveggja ára veru hjá Strömsgodset í Noregi. Hann segir þátttöku liðsins í Evrópukeppni hafa átt stóran þátt í ákvörðuninni og skrifaði undir fjögurra ára samning án þess að heimsækja borgina Samsun.

Sædís með tvö og lagði upp í stórsigri Vålerenga
Leikir fóru fram í efstu deildum kvenna í Noregi og Svíþjóð í dag. Þar voru þónokkrir Íslendingar að spila, og meðal annars einn íslendingaslagur.

Þjálfari sleppir leik vegna brúðkaups Martins Ödegaard
Hans Erik Ödegaard er aðalþjálfari Lilleström í norsku B-deildinni en hann verður þó hvergi sjáanlegur á laugardaginn þegar lið hans spilar við Ranheim.

Vont tap hjá Álasund en Óskar Borgþórs lagði upp fyrir Sogndal
Leikir fóru fram í næst efstu deild Noregs í dag en þar voru Íslendingar sem spiluðu.

Áhorf á kvennaboltann eykst mikið í Noregi en hrynur á Íslandi
Mæting á leiki í norsku kvennadeildinni í fótbolta hefur tekið mikið stökk í sumar og forráðamenn Toppserien er mjög ánægðir með nýjustu tölur um áhorfstölur.

Davíð Snær skoraði og lagði upp
Davíð Snær Jóhannsson kom að báðum mörkum Álasunds þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Stabæk í norsku B-deildinni í fótbolta.

Freyr missir stjörnuleikmann í marga mánuði
Norska félagið Brann verður án lykilmanns næstu mánuði eftir að staðfest varð að Niklas Castro þurfi að gangast undir aðgerð á ökkla.

Haaland: Ég mun spila bæði á HM og á EM
Framherji Manchester City var yfirlýsingaglaður eftir frábæran sigur Norðmanna á Ítölum í gærkvöldi.

Leikmenn í liði íslenskrar landsliðskonu féllu á lyfjaprófi
Átta leikmenn norsku kvennaliðanna Vålerenga og Lilleström féllu á lyfjaprófi á dögunum en ekki hefur verið opinberað hvaða leikmenn þetta eru.

Dómarinn fékk gult spjald og glotti
Það líður varla sá fótboltaleikur að dómarar þurfi ekki að lyfta gula spjaldinu en í Noregi í dag var það dómarinn sjálfur sem fékk áminningu, eftir að hafa veitt leikmanni högg.

Sex mörk í fyrri þegar Eggert og Freyr fóru upp í annað sæti
Eggert Aron Guðmundsson lagði upp eitt marka Brann þegar liðið, undir stjórn Freys Alexanderssonar, kom sér upp í 2. sæti norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, í síðasta leik fyrir þriggja vikna sumarfrí.

Sævar hundeltur af blaðamönnum í Danmörku og Noregi
Sævar Atli Magnússon vildi taka næsta skref á sínum ferli og úr varð að hann samdi við norska stórliðið Brann. Hann komst fljótt að því hversu fótboltasjúkt samfélagið í kringum félagið er.

Lið Loga fer illa af stað
Logi Tómasson og liðsfélagar hans í norska liðinu Stromsgodset hafa ekki farið vel af stað á tímabilinu. 0-3 tap á heimavelli varð niðurstaðan í dag gegn HamKam, sem Viðar Ari Jónsson og Brynjar Ingi Bjarnason leika með.

„Skeptískir að einhver Íslendingur gæti gert Brann að góðu fótboltaliði“
Eftir tap í fyrsta leik fann Freyr Alexandersson fyrir þeirri gríðarlegu pressu sem fylgir því að vera þjálfari Brann í Noregi. Liðið fór sem betur fer af stað með látum eftir tapið.

Sævar Atli orðinn leikmaður Brann
Sævar Atli Magnússon er genginn í raðir norska úrvalsdeildarfélagsins Brann og mun þar spila undir stjórn Freys Alexanderssonar sem hann þekkir frá fyrri tíð hjá Lyngby í Danmörku.

Sævar Atli sagður á leið í hlýjan faðm Freys
Það stefnir allt í að Sævar Atli Magnússon muni vinna undir stjórn Freys Alexanderssonar á nýjan leik. Þeir koma báðir frá Leikni Reykjavík og var Sævar Atli einn af fyrstu mönnunum sem Freyr sótti eftir að hafa tekið við Lyngby í Danmörku.

Maðurinn sem Óskar Hrafn taldi vinna gegn sér rekinn
Sancheev Manoharan hefur verið rekinn úr starfi þjálfara norska úrvalsdeildarfélagsins FK Haugesund eftir tap liðsins gegn Brann í gær og afleit úrslit upp á síðkastið. Téður Sancheev tók við þjálfun liðsins eftir að Óskar Hrafn Þorvaldsson hætti sem þjálfari Haugesund á sínum tíma.

Athæfi Freys og Eggerts vekur athygli í Noregi
Félagsleg færni Íslendinganna Freys Alexanderssonar, þjálfara norska úrvalsdeildarliðsins Brann í fótbolta og Eggerts Arons Guðmundssonar, leikmanns liðsins hefur vakið athygli hjá fjölmiðlum í Noregi og fengu stuðningsmenn Brann að njóta góðs af því eftir sigurleik í gær.

Þriggja leikja banns Stefáns gagnrýnt: „Aldrei reynt að meiða neinn“
Stefán Ingi Sigurðarson, leikmaður Sandefjord í Noregi, hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir brot sem átti sér stað í leik fyrir skemmstu. Forráðamenn félags hans skilja hvorki upp né niður í banninu.

Glódís rústaði Guðrúnu og Ísabellu í sjö manna bolta
Glódís Perla Viggósdóttir, Guðrún Arnardóttir og Ísabella Sara Tryggvadóttir, landsliðskonur í fótbolta, mættust með félagsliðum sínum Bayern Munchen og Rosengard á skemmtilegu móti þar sem aðeins sjö leikmenn eru í hverju liði. Glódís og stöllur í Bayern báru 4-0 sigur úr býtum.

Sveinn Aron skoraði, lagði upp og klúðraði vítaspyrnu
Sveinn Aron Guðjohnsen átti fanta góða leik þegar Sarpsborg lagði Egersund í norsku bikarkeppninni í knattspyrnu. Sveinn Aron skoraði og lagði upp. Þá heldur ævintýri Álasunds áfram.

Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald
Íslendingar voru áberandi í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Eggert Aron Guðmundsson skoraði fyrir Brann í afar svekkjandi jafntefli við Sarpsborg, Logi Tómasson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og Stefán Ingi Sigurðarson fékk að líta rauða spjaldið.

Logi á leið í burtu en ekki til Freys
Norska knattspyrnufélagið Strömsgodset hefur samþykkt að selja landsliðsbakvörðinn Loga Tómasson sem mun vera á leið til Tyrklands.

Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum
Íslendingalið Álasund gerði sér lítið fyrir og sló Noregsmeistara Bodø/Glimt út þegar liðin mættust í 32-liða úrslitum norsku bikarkeppni karla.

Hilmir Rafn innsiglaði sigurinn hjá toppliðinu
Íslenski framherjinn Hilmir Rafn Mikaelsson skoraði síðasta markið í 4-1 útisigri Viking á FK Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Stefán Ingi og Sveinn Aron báðir á skotskónum í sigurleikjum
Þetta var góður dagur fyrir Stefán Inga Sigurðarson og Sveinn Aron Guðjohnsen í norska fótboltanum. Báðir skoruðu þeir og hjálpuðu sínum liðum að ná í þrjú stig.

Amanda varð bikarmeistari og Sædís lagði upp mark í stórsigri
Íslensku landsliðskonurnar Amanda Andradóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir fögnuðu báðar sigrum með liðum sínum í dag en þó í sitthvoru landinu.

Tottenham einu skrefi nær titli eftir sigur í norður Noregi
Tottenham er komið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á móti Manchester United eftir 2-0 útisigur á Bodö/Glimt í kvöld. Það verður því enskur úrslitaleikur í Bilbao.

Alfons mættur til norður Noregs til að styðja gömlu félagana á móti Tottenham
Alfons Sampsted sást skemmta sér með stuðningsmönnum Bodø/Glimt, fyrir leik þeirra gegn Tottenham í kvöld.