Súðavíkurhreppur

Sveitarstjórinn fékk flest atkvæði í Súðavíkurhreppi
Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, fékk flest atkvæði í óhlutbundnum kosningum í Súðavíkurhreppi síðastliðinn laugardag. Hlutkesti réði því hverjir tóku fjórða og fimmta sætið í sveitarstjórn.

Mun skoða hvort æskilegt sé að virkja í friðlandi
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra útilokar ekki að hann muni breyta friðlýsingarskilmálum í Vatnsfirði til að hægt verði að virkja þar. Hugmyndin er eitur í beinum sumra þingmanna Vinstri grænna.

Fólksfjölgun í fyrsta skipti í þrjátíu ár
Mikið uppbyggingarskeið er hafið á norðanverðum Vestfjörðum í fyrsta skipti í þrjá áratugi. Um hundrað íbúðir fara í byggingu þar í ár og gera sveitarstjórar þar ráð fyrir að nokkur hundruð manns muni flytja vestur á næstu árum.

„Þetta er ekki boðlegt eins og þetta er í dag“
Ef nægt rafmagn verður ekki tryggt til Súðavíkur á næstu tveimur árum mun stærsta kalkþörungaverksmiðja landsins sem á að rísa þar keyrð á jarðefnaeldsneyti. Sveitarstjóri segir ríkið verða að bæta raforkumál svæðisins, annað væri galið. Orkumálaráðherra segir ljóst að forgangsraða þurfi verkefnum til að flýta fyrir orkuskiptum. Allt verði gert til að koma í veg fyrir að brenna jarðefnaeldsneyti.

Aðeins eitt sem kemst að hjá Súðvíkingum fyrir kosningar
Það er aðeins eitt sem Súðvíkingar vilja á næsta kjörtímabili - göng. Sveitarfélagið segir skilið við flokkakerfið og velur í kosningum þá fimm í sveitarfélaginu sem eru best til þess fallnir að stjórna bænum og fá ríkið til að leggja göngin.

Hugleiðingar um Djúpveg og Súðavíkurhlíð
Nú er stysti mánuður ársins liðinn. Febrúar 2022 telur 28 daga.

Súðavíkurhlíð lokuð vegna snjóflóðs
Uppfært 14:25: Búið er að opna veginn um Súðavíkurhlíð tímabundið á nýjan leik eftir að veginum var lokað fyrr í dag vefna lítils snjóflóðs. Á vef lögreglunnar á Vestfjörðum segir að veginum verði lokað í síðasta lagi klukkan 18 í kvöld og ekki opnaður fyrr en búið verður að meta aðstæður með tilliti til snjóflóðahættu í fyrramálið. Þó er hætta á að vegurinn gæti lokast fyrr.

Opna fjöldahjálparstöð í kjölfar lokunar Súðavíkurhlíðar
Sveitarstjóri í Súðavíkurhreppi hefur tekið ákvörðun um að opna fjöldahjálparstöð til þess að taka á móti þeim sem ekki komast leiðar sinnar vegna lokunar Súðavíkurhlíðar, sem var lokað fyrr í dag vegna snjóflóðahættu.

Rúmur áratugur í Súðavíkurgöng samkvæmt áætlunum
Innviðaráðherra segir verið að skoða að stofna opinbert félag um jarðgangagerð að færeyskri fyrirmynd. Þannig yrði hægt í samvinnu við aðra að grafa göng á fleiri stöðum í einu með innheimtu veggjalds. Forgangsverkefnin í vegakerfinu séu mörg og brýn.

Súðavíkurgöng verða í næstu samgönguáætlun
Innviðaráðherra segir stefnt að þvi að jarðgöng milli Súðavíkur og Ísafjarðar verði í næstu samgönguáætlun stjórnvalda. Úrbótum í vegakerfinu hafi verið raðað eftir áhættusvæðum og þau svæði væru mörg á Íslandi.

Farðu varlega, það gæti komið snjóflóð
Þorrinn er á næsta leiti með öllum sínum tilbrigðum í veðri sem okkur býðst á þessu landi. En það þarf ekki þorrann til að vá liggi yfir á vegum landsins. Í þessari viku urðu öfgar í veðrabrigðum þess valdandi að vegir um Súðavíkur- og Eyrarhlíð lokuðust vegna snjóflóða.

„Þetta er bara spurning um tíma“
Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, hefur áhyggjur af viðvarandi snjóflóðahættu og segir það ekki spurningu um hvort heldur hvenær illa fer. Ítrekað hafi verið bent á nauðsyn þess að leggja jarðgöng að en íbúar tali fyrir daufum eyrum stjórnvalda.

Munaði örfáum sekúndum á að snjóflóð hefði fallið á bílinn
Fjöldi snjóflóða hefur fallið niður á veg við Súðavíkurhlíð í kvöld. Vegagerðin lokaði veginum á tíunda tímanum í kvöld en þeir sem fóru veginn fyrr í kvöld furða sig á að honum hafi ekki verið lokað fyrr. Einn vegfarandi segist hafa rétt sloppið við snjóflóð sem féll á veginn nokkrum sekúndum áður en hann keyrði þar að.

Vestfirðir við árslok 2021
Vestfirðir eru í sókn. Færin eru fjölmörg og ef horft er til ársins 2021 má segja að nokkrum góðum áföngum hafi verið náð á árinu. Rétt er við áramót að staldra við og líta til baka og reyna að meta hvað beri hæst á árinu varðandi þróun samfélaga og atvinnulífs á Vestfjörðum.

Raggagarður fær umhverfisverðlaun Ferðamálastofu
Vilborg Arnarsdóttir fékk í dag umhverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir uppbyggingu Raggagarðs á Súðavík.

Bíða spennt eftir 2022 og segja landsbyggðina eiga mikið inni
Vestfirðir eru efst á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 að mati ferðabókaútgefandans Lonely Planet. Sviðstjóri hjá áfangastofu Vestfjarða segir að viðurkenningin muni nýtast þeim næstu árin en mikilvægt sé að uppbygging verði í takt við aukna eftirspurn.

Vestfirðir efstir á lista Lonely Planet yfir bestu áfangastaði í heimi 2022
Vestfirðir eru efst á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 í árlegu vali ferðabókaútgefandans Lonely Planet yfir lönd, svæði og borgir til að heimsækja árið 2022, eða svokallaða Best in Travel viðurkenningu, sem birt var í gærkvöldi.

Stærstu snjóflóðin féllu á Súðavík og Flateyri
Töluvert af snjóflóðum féllu á norðanverðum Vestfjörðum í og eftir hríðarveðrið sem geisaði í gær. Þau stærstu sem frést hefur af féllu í nágrenni Flateyrar og í Súðavíkurhlíð.

Einhvers staðar lengst vestur á Vestfjörðum…
Við byggjum lítið þorp hér vestur á fjörðum liðlega 180 manns – Súðavík. Þorpið liggur á mörkum 66°01’ 40”Norður og 22°59’30”Vestur.

Varaþingmaður ætlar að kenna nýliðum á sveitaballamenninguna
Hið árlega Ögurball verður haldið í Ögri við Ísafjarðardjúp laugardaginn 17. júlí. Aðgöngumiða fylgir tjaldstæði, aðgangur að sveitaballinu og rabarbaragrautur með rjóma. Hátíðin byrjar með barsvari föstudagskvöldið 16. júlí, fylgt eftir með brennu og brekkusöng um kvöldið.