Gríms­nes- og Grafnings­hreppur

Gríms­nes- og Grafnings­hreppur

Mannfjöldi: 575 (2025). Flatarmál: 899 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Írafoss, Borg, Sólheimar.


Fréttamynd

Út­sæði á diskinn minn!

Margir þekkja sögu af Eskfirðinum sem áttu að hafa í kreppunni, um 1930, étið útsæðið sitt frekar en að setja það niður. Þetta var auðvitað skröksaga sem sögð var til að gera lítið úr þeim. Enda með eindæmum vitlaust að éta útsæðið og stefna þarf með framtíðinni í hættu. Síðan er þetta orðatiltæki sem vísar til þess að fórna einhverju fyrir stundarhagsmuni á kostnað framtíðarinnar. Það myndi auðvitað enginn gera í dag, eða hvað?

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Að­förin gegn lands­byggðinni

Það skaut verulega skökku við þegar við fréttum nú síðsumars að leggja ætti niður leið landsbyggðarstrætós hér í uppsveitum. Í kjölfar mótmæla fékkst í gegn að halda inni tveimur ferðum á dag, að morgni og síðdegis, en þó aðeins á virkum dögum.

Skoðun
Fréttamynd

Tólf barna móðir selur sveitadraum

Að Vaðstigi 5 í Grímsnes- og Grafningshreppi býr tíu manna fjölskylda í tæplega 120 fermetra einbýlishúsi sem er nú komið á sölu. Í húsinu eru fimm svefnherbergi, stór pallur með heitum potti og útsýni yfir fjöll og sveit.

Lífið
Fréttamynd

„Það er ekki leið­togi“

Oddviti framboðsins Betri sveitar segir Fjólu Kristinsdóttur sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps ekki óháða í umræðu um kosningamál í hreppnum. Hann  tekur undir orð hennar um að siðferðislega rangt sé að skrá sig á kjörskrá fyrir kosningar og aftur út að þeim loknum.

Innlent
Fréttamynd

„Mér finnst það ekki sið­ferðis­lega rétt“

Fjöldi íbúa með ótilgreint heimilisfang hefur margfaldast í Grímsnes- og Grafningshreppi frá síðustu kosningum. Sveitarstjóri segir ekki siðferðislega rétt ef fólk skráir lögheimili sitt í sveitarfélaginu fyrir kosningar og svo til baka að þeim loknum og kallar eftir betri upplýsingagjöf frá Þjóðskrá.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“

Í Grímsnes- og Grafningshreppi eiga tæplega 700 manns löghemili. Þar er einnig stærsta sumarbústaðabyggð landsins en á fjórða þúsund frístundahús eru skráð í sveitarfélaginu. Stærsta kosningamálið í hreppnum tengist einmitt frístundahúsum og þar eru ekki allir sammála.

Innlent
Fréttamynd

Sól­heimar segja upp þjónustusamningnum

Stjórn Sólheima í Grímsnesi hefur sagt upp þjónustusamningi við sveitarfélög á Suðurlandi þar sem ekki tókst að semja um aukin rekstrarframlög. Samningurinn tryggði búsetu- og atvinnuþjónustu fyrir fatlað fólk í landshlutanum en nú tekur gildi tólf mánaða uppsagnarfrestur. Engar breytingar verða á starfseminni á meðan samningaviðræður halda áfram.

Innlent
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Tíu manns í á­rekstri á Suður­landi

Að minnsta kosti tveir eru slasaðir eftir að tíu manns lentu í umferðarslysi á Biskupstungnabraut nálægt Geysi eftir hádegi í dag, þegar árekstur varð milli smárútu og fólksbíls. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang og hópslysaáætlun virkjuð.

Innlent
Fréttamynd

Viðar Örn hefur störf á Sól­heimum

Knattspyrnumaðurinn Viðar Örn Kjartansson hóf störf á Sólheimum í Grímsnesi í síðustu viku. Hann nýtur starfsins og á von á því að næsta skref á knattspyrnuferlinum skýrist fljótlega. 

Lífið
Fréttamynd

Sveitar­stjóra ekki heimilt að banna hunda­hald

Sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps var ekki heimilt að taka ákvörðun um að banna íbúa að halda hund. Íbúinn hafði fengið áminningu vegna brota á samþykkt um hundahald. Kæru hans til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála var vísað frá vegna þess að sveitarstjórn hefði átt að taka ákvörðun um að svipta manninn leyfi til hundahalds. 

Innlent
Fréttamynd

Goddur er látinn

Listamaðurinn og hönnuðurinn Guðmundur Oddur Magnússon, eða Goddur, er látinn 70 ára að aldri. Goddur var líklega þekktasti listagagnrýnandi Íslands. Síðustu árum ævi sinnar varði hann í kennslu, þar sem hann starfaði sem rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands þar til hann fór á eftirlaun.

Innlent
Fréttamynd

Bana­slys á Biskupstungnabraut

Einn er látinn eftir umferðarslys sem varð á Biskupstungnabraut skammt frá Þrastarlundi í dag. Tveir til viðbótar voru fluttir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Innlent
Fréttamynd

Sveitar­stjórn Gríms­nes- og Grafnings­hrepps neitar að vinna vinnuna sína

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur með samþykkt sinni frá 26. nóvember síðastliðnum ekki aðeins byggt stjórnsýslu sína á rangri fullyrðingu, heldur hefur hún einnig brotið gegn grundvallarskyldum sveitarfélaga samkvæmt sveitarstjórnarlögum með því að neita að afgreiða lögbundin erindi varðandi frístundabyggðir, nema gerðar verði lagabreytingar á Alþingi. Þetta eru stjórnsýsluleg afglöp.

Skoðun