Lífið

Tólf barna móðir selur sveitadraum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Dr. Guðrún Helga Diop Jóhannsdóttir og Yakhya Ragnar Ibrahimason Diop hafa sett hús sitt á sölu.
Dr. Guðrún Helga Diop Jóhannsdóttir og Yakhya Ragnar Ibrahimason Diop hafa sett hús sitt á sölu.

Að Vaðstigi 5 í Grímsnes- og Grafningshreppi býr tíu manna fjölskylda í tæplega 120 fermetra einbýlishúsi sem er nú komið á sölu. Í húsinu eru fimm svefnherbergi, stór pallur með heitum potti og útsýni yfir fjöll og sveit.

Húsið er í eigu þróunarfræðingsins Guðrúnar Helgu Diop Jóhannsdóttur og eiginmanns hennar Yakhya Ragnars Ibrahimasonar Diop. Á Instagram lýsir Guðrún sér sem ferðasjúkri tólf barna móður en hún er jafnframt stofnandi félagasamtakanna Amsis sem sérhæfa sig í þróunarsamvinnu, mannúðaraðstoð, rannsóknum, kennslu og mannréttindastarfi samkvæmt heimasíðu. 

Heimilið er huggulegt og vel skipulagt, bjart og rúmgott og stendur á 9300 fermetra eignarlóð. Nánari upplýsingar má finna á fasteignavef Vísis og hér má sjá myndir af húsinu: 

Í húsinu eru fimm svefnherbergi.TORG fasteignasala
Húsið stendur á friðsælum stað.TORG fasteignasala
Stórir gluggar og bjart rými.TORG fasteignasala
Heitur pottur og stór pallur.TORG fasteignasala
Gott útsýni úr stofu.TORG fasteignasala
Opið eldhús.TORG fasteignasala





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.