Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar 3. nóvember 2026 08:47 Margir þekkja sögu af Eskfirðinum sem áttu að hafa í kreppunni, um 1930, étið útsæðið sitt frekar en að setja það niður. Þetta var auðvitað skröksaga sem sögð var til að gera lítið úr þeim. Enda með eindæmum vitlaust að éta útsæðið og stefna þarf með framtíðinni í hættu. Síðan er þetta orðatiltæki sem vísar til þess að fórna einhverju fyrir stundarhagsmuni á kostnað framtíðarinnar. Það myndi auðvitað enginn gera í dag, eða hvað? Það var þess vegna sérkennileg upplifun að sitja í gömlu kartöflugeymslunum á Selfossi síðastliðinn sunnudag og hlusta á fjármálaráðherra útskýra fyrir fundargestum hvers vegna best væri fyrir okkur öll að borða útsæðið. Staðsetningin fyrir þennan fyrirlestur hjálpaði auðvitað ekki til. Salurinn var fullur af áhyggjufullu sveitarstjórnarfólki og fólki og enn áhyggjufyllra fólki úr ferðaþjónustu. Það óttast að við séum einmitt í þann mund að setjast til borðs í boði ríkisstjórnarinnar og háma í okkur útsæðið. Hér er auðvitað verð að tala um skattahækkanirnar sem boðaðar eru á ferðaþjónustuna á Suðurlandi í ýmsum myndum. Ferðaþjónustan greiðir nú þegar um 200 milljarða króna á ári til ríkisins í formi ýmissa skatta. Hún hefur jafnframt ítrekað lýst sig reiðubúna til að styðja við og standa undir þeim kostnaði sem af henni hlýst. Hér er því ekki byrjað á auðu blaði. Þvert á móti er greinin einn stærsti greiðandi skatta og gjalda á Íslandi. Það skiptir hins vegar miklu máli hvernig breytingar eru gerðar. Úr því að ríkisstjórnin vill meina að þessi ljúffenga útsæðismáltíð hafi nánast verið hugmynd ferðaþjónustunnar sjálfrar er rétt að staldra við og ræða hvernig samráðinu hefur verið háttað. Ráðherrar segja að öllum hafi mátt vera þetta ljóst, enda hafi málið verið rætt lengi. Þess vegna eigi að vera í lagi að leggja nýjar álögur með nokkurra mánaða fyrirvara á grein sem gerir samninga og selur þjónustu sína stundum þrjú ár fram í tímann. Og þess vegna eigi líka að vera í lagi að sækja yfir 10 milljarða króna í einn landshluta (og helming þess í eitt sveitarfélag), með nokkurra mánaða fyrirvara. Sú upphæð samsvarar nærri helmingi tekna ferðaþjónustunnar á þessu ári. Voru ekki örugglega allir búnir að láta sína viðskiptavini vita að lítið væri að marka fyrirvara ríkisins á Íslandi? Þessi aðferð gekk ekki vel þegar kom að gjaldahækkunum á skemmtiferðaskip. En er þetta kannski bara hið besta mál? Er útsæði ekki hollt og gott? Setjum þetta í samhengi. Á Suðurlandi eru nærri 650 fyrirtæki í ferðaþjónustu og þeim hefur fjölgað mikið á undanförnum árum, úr 221 árið 2008. Þau greiða yfir 3.400 manns laun og á bak við þann hóp standa mörg þúsund fjölskyldur. Ferðaþjónustufyrirtæki sem hafa staðið í mikilli uppbyggingu og vöruþróun undanfarin ár með tilheyrandi kostnaði munu ekki öll standa af sér 5–30% fækkun ferðamanna á næsta ári. Jafnvel þótt fækkunin yrði aðeins á Suðurlandi. Hér er verið að tala um fyrirtækin sem hafa geymt útsæðið sitt og ætluðu að setja það niður í sumar til að lifa af næsta vetur. Þannig vaxa þau og tryggja afkomu sína þegar bjátar á. Til dæmis ef vextir hækka á Bandaríkja- eða Evrópumarkaði, eða ef samkeppnislönd á borð við Noreg, Finnland og Svíþjóð auka markaðssetningu sína. Við þurfum að vera undir slíkar áskoranir búin. Í staðinn eiga þessi fyrirtæki að nota sína varasjóði í heimatilbúna krísu vegna þess að stjórnvöld ætla að skattleggja þau út af markaðnum. Ekki nærri öll eiga slíka varsjóði. En hvað á þá að gera? Hvernig á að skrapa saman þeim krónum sem þarf til að loka fjárlagagatinu? Ef dvöl ferðamanna á Íslandi lengdist um eina nótt að meðaltali skilaði það 6-10 milljörðum króna í skatttekjur. Það væri góð byrjun. Með því að efla ferðaþjónustuna, styrkja hana og jafnvel kynna Ísland betur næðum við öllum þeim markmiðum sem ríkisstjórnin stefnir að. Áhættan fyrir þúsundir fjölskyldna og fyrirtækja væri líka mun minni. Ferðaþjónustan er atvinnugrein sem hefur vaxið og dafnað, og það algjörlega á eigin verðleikum. Nú er svo komið að Suðurland getur tekið á móti gestum sínum með miklum sóma, enda fyrirtækin sjálf bætt og eflt innviði. Ferðamenn leita lengra út á land eftir því sem fyrirtækin þar styrkjast og eflast, eins og þeir hafa gert á Suðurlandi síðustu ár. Þetta gerist þegar greinin fær að vaxa í friði. Ég vona því að ríkisstjórnin sjái ljósið og átti sig á því að betra er að setja útsæðið niður en að éta það. Ef rétt er haldið á málum má jafnvel auka uppskeruna, svo að bæði ríkissjóður og almenningur komist klakklaust í gegnum þær áskoranir sem fram undan eru. Höfundur er oddviti sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grímsnes- og Grafningshreppur Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Skoðun Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun