Garðabær

Garðabær

Mannfjöldi: 20.116 (2025). Flatarmál: 46 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hörð and­staða í­búa við rekstur veislusalar

Íbúar á Álftanesi hafa kært afgreiðslu skipulagsnefndar, sem staðfest var af bæjarstjórn, til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál á samþykkt byggingarleyfis fyrir breyttri notkunar húsnæðisins fyrir Hlöðuna á Álftanesi. Íbúar segja undarlegt að óskað sé grenndarkynningar á húsnæði sem þegar er byggt og gera miklar athugasemdir við hávaða og ónæði sem þau finna fyrir frá veislusalnum. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Leigu­bíl­stjóri lét hnefana tala

Lögreglu barst tilkynning í gær eða í nótt um leigubílstjóra sem átti að hafa kýlt annan. Ræddu fulltrúar við meintan árásarmann og fórnarlamb. Málið er í rannsókn en myndefni af vettvangi gaf góða mynd af því hvað átti sér stað. 

Innlent
Fréttamynd

Tvö um­ferðar­slys og þrír fluttir á sjúkra­hús

Lögreglunni á varðsvæði 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi, var tilkynnt um umferðarslys á tíunda tímanum í dag en tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið. Þá barst lögreglunni á stöð 4 tilkynning um umferðarslys um klukkan tólf en umdæmi hennar nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl.

Innlent
Fréttamynd

Hefur þú á­huga á náms­árangri og líðan barna í Garða­bæ?

Það er fátt sem skiptir samfélagið meira máli en hvernig okkur tekst að búa börnin okkar undir framtíðina. Þar gegna grunnskólarnir lykilhlutverki. Þeir eiga að skapa börnum færni, sjálfstraust og verkfæri til að takast á við samfélag sem tekur sífelldum breytingum. Þeir eiga líka að efla þekkingu barna með þeim hætti að hægt sé að mæla árangurinn og fylgja honum eftir.

Skoðun
Fréttamynd

Skakkur á stolnum strætó

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að stela strætisvagni og aka honum undir áhrifum kannabiss í mars síðastliðnum.

Innlent
Fréttamynd

Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörgu að snúast í gærkvöldi og í nótt en á varðsvæði stöðvar tvö, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, barst lögreglunni tilkynning um hugsanlegan ölvunarakstur. Ökumaðurinn hafði ekið bifreið sinni yfir kant og upp á gras. Þegar laganna verði bar að garði hafði bifreiðinni svo verið ekið á ljósastaur en ökumaðurinn var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum áfengis sem og ávana- og fíkniefna.

Innlent
Fréttamynd

Þor­steinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garða­bænum

Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi ráðherra hefur sett hús sitt í Hnoðraholti í Garðabænum á sölu. Hann segir að til standi að færa sig til innan hverfisins og segir að sólarlögin gerist ekki fallegri en í hverfinu.

Lífið
Fréttamynd

Bíl ekið á ljósa­staur

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í gærkvöld eða nótt tilkynnt um að bíl hefði verið ekið á ljósastaur. Í dagbók lögreglu kemur fram að engin slys hafi orðið á fólki en bíllinn hafi verið tjónaður. Ekki kemur fram hvar áreksturinn átti sér stað en tilkynning barst til Stöðvar 2 sem sér um Garðabæ, Hafnarfjörð og Álftanes.

Innlent
Fréttamynd

Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á á­ætlun og verði búin í lok októ­ber

Íbúar nærri framkvæmdasvæðinu Arnarlandi í Garðabæ hafa margir hverjir lýst því að sprengingar á svæðinu finnist vel á heimilum sem skelfi öll. Þá heyrist ekki nægilega vel í hljóðmerkjum sem eigi að koma á undan og á eftir hverri sprengingu. Sprengistjóri segir að leitast sé við að valda sem minnstu ónæði en hann skilji vel að það sé ekki spennandi að hafa þetta í þéttbýli.

Innlent
Fréttamynd

Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í ein­kunn

Grunnskólakennari spyr í hvaða vitleysu einkunnakerfi hérlendis séu stödd. Reglugerð um nýja einkunnagjöf sem eigi að vera innleidd í vor sé ekki úthugsuð en það þurfi fyrst að breyta aðalnámskrá og því næst eigi að setja upp kvarða sem passi fyrir þá aðalnámskrá. Það sé skammsýni að telja að nýr kvarði verði breyting til hins betra.

Innlent
Fréttamynd

Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði

Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. 

Innlent
Fréttamynd

Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kíló­metra hraða

Mikið áhyggjumál er að börn allt niður í ellefu ára bruni um á allt að hundrað kílómetra hraða um götur og holt og hæðir víða á höfuðborgarsvæðinu að mati lögreglunnar. Börnum á rafmagnskrossurum bregður oftar fyrir en áður sem sé foreldravandamál að mati aðstoðaryfirlögregluþjóns umferðardeildar.

Innlent
Fréttamynd

Barn á raf­magn­s­krossara sótt af for­eldrum sínum

Lögreglu barst tilkynning um glæfralegan akstur bifhjóls í Mosfellsbæ í gær. Ungur ökumaður ók þar um á rafmagnskrossara, ekki með skráningarnúmer. Því mátti hann ekki aka á akbraut. Lögregla stöðvaði akstur hans en hann var ekki með aldur til að vera í umferðinni. Foreldrar komu og sóttu hann á vettvang. 

Innlent
Fréttamynd

Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg

Lögreglunni á stöð fjögur, sem sinnir verkefnum í Grafarvogi, Mosfellsbæ og í Árbænum, barst tilkynning um bíl utan vegar en í ljós kom að ökumaður hafði misst stjórn á bílnum og hafnað á vegg. Sá hinn sami hlaut þó einungis minni háttar áverka en fjarlæga þurfti bílinn með kranabifreið. Ekki liggur fyrir hvort um hraðakstur eða grun um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna hafi verið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Tuttugu lögðu ó­lög­lega

Lögreglan þurfti að sinna fjölda ökumanna í nótt sem voru í órétti. Að undanskildu einu innbroti er dagbók lögreglu í dag undirlögð umferðarlagabrotum.

Innlent
Fréttamynd

Tíma­mót hjá Heklu: Kveðja Lauga­veginn eftir rúma sex ára­tugi

Bílaumboðinu Heklu hefur verið lokað á Laugaveginum en á mánudag opnar fyrirtækið á nýjum stað í Þorraholti í Garðabænum. Flutningarnir eru mikil tímamót í sögu umboðsins en verslunin hafði staðið í 65 ár við Laugaveg og var þar áður á Hverfisgötu. Nú lýkur því rúmlega 90 ára skeiði sem reksturinn hafði búsetu í Reykjavík og nýir tímar taka við.

Neytendur
Fréttamynd

Fluttur á lög­reglu­stöð til að sanna hver hann væri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti í dag útkalli þar sem ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Sá reyndist einnig vera með hníf á sér og án ökuréttinda. Þegar farþegi í bílnum neitaði að framvísa skilríkjum var hann fluttur á lögreglustöð eitt til þess að sanna hver hann væri.

Innlent
Fréttamynd

Eftir­lýstur og með vopn á sér

Eftirlýstur einstaklingur var handtekinn og vistaður í fangaklefa Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að lögregla hafði af honum afskipti og fann á honum vopn.

Innlent
Fréttamynd

Sex gistu í fanga­geymslu í nótt

Tveir voru handteknir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir söludreifingu fíkniefna og ólöglega dvöl. Alls gistu sex í fangageymslu lögreglunnar í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Mikið út­kall vegna elda­mennsku á Álfta­nesi

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á Álftanes á tólfta tímanum vegna elds í íbúð í fjölbýlishúsi á Álftanesi. Allar stöðvar voru sendar af stað vegna elds sem átti eftir að koma í ljós að var vegna eldamennsku. Tekist hafði að slökkva eldinn þegar fyrsti bíll mætti á vettvang.

Innlent