Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Allir prestar og fylgjendur Bræðralags Píusar X (SSPX) hafa verið bannfærðir, eftir að bræðralagið stóð fyrir vígslu fjögurra biskupa í Sviss í gær. Vígslan fór fram gegn vilja Leó páfa, sem hafði varað hreyfinguna við því að valda frekari sundrung innan kirkjunnar. Erlent 2.7.2026 11:24
Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þúsundir söfnuðust saman fyrir utan þorpið Écône í Sviss í gær til að verða vitni að því þegar fjórir meðlimir Bræðralags Píusar X (SSPX) voru vígðir til biskups. Allir mega eiga von á því að verða bannfærðir. Erlent 2.7.2026 08:06
Forsetinn á fund páfans Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, mun funda með Leó XIV, páfa, í Vatíkaninu í dag. Hún er stödd á Ítalíu í vinnuferð en seinna í dag mun Halla einnig hitta æðsta embættismann Páfagarðs og forseta Ítalíu. Innlent 4.5.2026 09:06
Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Leó fjórtandi páfi bað fyrir því að Úkraína og Rússland myndu finna hugrekki til að ljúka friðarvæðrum þeirra í fyrsta jóladagsávarpi sínu. Þá bað hann einnig fyrir fólkinu á Gasa. Erlent 25. desember 2025 12:27
Óttast að María sé að stela athyglinni frá Jesú á samfélagsmiðlum Páfagarður hefur gefið frá sér yfirlýsingu, samþykkta af Leó páfa, þar sem segir að Jesús einn hafi frelsað mannkynið og bjargað því frá helvíti. María hafi ekki átt þar þátt. Erlent 6. nóvember 2025 07:12
Tölvuleikjaspilandi táningur tekinn í dýrlingatölu Ítalskur piltur sem lést einungis fimmtán ára gamall árið 2005 úr hvítblæði var tekinn í dýrlingatölu af kaþólsku kirkjunni í dag. Hann er þar með fyrsti dýrlingurinn af þúsaldarkynslóðinni. Erlent 7. september 2025 19:18
Vara við eggjum í kleinuhringjum Matvælastofnun biðlar til fólks með eggjaofnæmi að varast tiltekna tegund kleinuhringja frá Lindabakaríi. Neytendur 29. júlí 2025 13:00
Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Ýmsir embættis- og ráðamenn hafa tjáð sig í dag um árásir Bandaríkjanna á Íran. Flestir tóku í sama streng og sögðu að Íranir ættu ekki að eiga neins konar kjarnorkuvopn. Erlent 22. júní 2025 14:24
Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og Lilja Rafney Magnúsdóttir þingkona Flokks fólksins hlutu blessun Leós fjórtánda páfa í Páfagarði í dag. Lífið 21. júní 2025 13:30
Leó orðinn páfi Leó fjórtándi var vígður sem páfi í dag í messu á Péturstorgi sem markar formlegt upphaf páfatíðar hans. Áður en messan hófst heilsaði hann tugþúsundum ferðamanna í bílferð um Péturstorg á Páfabílnum. Í messunni sagði páfinn að í heiminum væru of mörg sár vegna haturs og ofbeldis. Erlent 18. maí 2025 09:43
Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Leó fjórtándi, nýr páfi, heldur sína fyrstu messu í Vatíkaninu í dag. Hún er haldin í Sixtínsku kapellunni og eru kardinálar þeir einu sem fá að sitja hana. Erlent 9. maí 2025 09:01
Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans John Prevost býst við góðum hlutum af bróður sínum, Robert Francis Provost, eða Leó fjórtánda, sem kjörinn var páfi í gær. John segir valið hafa komið sér og fjölskyldu sinni gífurlega á óvart. Erlent 9. maí 2025 07:40
Hvað vitum við um Leó páfa? Kardínálar kaþólsku kirkjunnar kusu sér í dag nýjan páfa, þann 267. í röðinni, á öðrum degi páfakjörs. Bandaríkjamaðurinn Robert Francis Prevost varð fyrir valinu og valdi sér páfanafnið Leó. Hann er fjórtándi páfinn til að kjósa sér það nafn, og mun því ganga undir nafninu Leó fjórtándi. Erlent 8. maí 2025 19:39
„Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það mikinn heiður að nýr páfi, Leó XIV, sé bandarískur og segist hann hlakka til að hitta hann. Erlent 8. maí 2025 18:09
Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Nánast fram á sitt síðasta reyndi Frans páfi að koma skikki á fjármál hins vellauðuga smáríkis, Vatíkansins. Þrátt fyrir miklar tilraunir í rúman áratug átti páfinn ekki erindi sem erfiði. Rekstrarhalli Páfagarðs þrefaldaðist í valdatíð Frans og stendur eftirlaunasjóður smáríkisins frammi fyrir allt að tveggja milljarða evra skuldbindingum sem óvíst er hvort hægt sé að greiða. Erlent 8. maí 2025 06:02
Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar Páfakjör hefst í dag og munu kardínálar kaþólsku kirkjunnar setjast niður í Sixtínsku kapellunni síðdegis og hefja leit að nýjum páfa. Prestur kaþólikka á Norðurlandi segir líklegt að kjörið dragist á langinn. Ólíklegt sé að einn þeirra sem gangi inn í kjörið sem páfaefni standi uppi sem næsti páfi. Innlent 7. maí 2025 12:05
Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Kardinálar kaþólsku kirkjunnar hafa valið sér nýjan páfa, Bandaríkjamanninn Robert Francis Prevost sem tekur sér nafnið Leó XIV. Vísir fylgist með gangi mála á sérstakri páfakjörsvakt en einnig er hægt að horfa á beina útsendingu frá Páfagarði. Erlent 7. maí 2025 08:53
Kardinálarnir læstir inni á morgun Kardinálar kaþólsku kirkjunnar munu á morgun setjast niður í Sixtínsku kapellunni og hefja leitina að nýjum páfa. Þar verða 133 kardinálar frá sjötíu löndum innilokaðir þar til hvítan reyk ber frá páfagerði, til marks um að nýr páfi hafi verið kjörinn. Erlent 6. maí 2025 11:35
Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Páfinn er dáinn! Kardínálar ferðast til Rómar þar sem þeir eru læstir inni í Sixtínsku kapellunni til að kjósa nýjan leiðtoga kaþólsku kirkjunnar. Kardínálarnir eru breyskir eins og aðrir menn, syndga, slúðra og láta kappið jafnvel bera fegurðina ofurliði. Gagnrýni 6. maí 2025 07:00
Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Einum svokallaðra páfabíla Frans páfa heitins verður breytt í færanlega heilsugæslu fyrir börn á hinu stríðshrjáða Gasasvæði. Bílinn notaði páfinn meðal annars á ferðalagi sínu til Betlehem árið 2014. Erlent 5. maí 2025 13:35
Birti mynd af sér í páfaskrúða Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær mynd af sér á samfélagsmiðlum klæddum páfaskrúða. Kaþólikkar sem og aðrir hafa tekið misvel í þetta uppátæki hans og þykir mörgum hann vanvirða minningu Frans páfa sem féll frá nýlega. Erlent 3. maí 2025 09:35
Páfakjör hefst í næstu viku Kardinálar kaþólsku kirkjunnar hafa ákveðið að páfakjörsfundur til þess að velja eftirmann Frans páfa hefjist miðvikudaginn 7. maí. Þeir vilja ná að kynnast betur og ná samhljómi um nýjan páfa áður en kjörið hefst. Erlent 28. apríl 2025 12:18
Sixtínsku kapellunni lokað vegna páfakjörs Yfirvöld í Vatíkaninu hafa nú lokað Sixtínsku kapellunni, einum mest sótta ferðamannastað heims, til þess að efna til páfakjörs eftir fráfall Frans páfa á dögunum. Erlent 28. apríl 2025 06:58
Gröf Frans páfa opin gestum Frá og með deginum í dag geta gestir barið gröf Frans páfa í Maríukirkju í Róm augum. Páfinn var borinn til hinstu hvílu í gær. Erlent 27. apríl 2025 11:16
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent