Skotárásir í Bandaríkjunum

Starfsmaður skotinn til bana vegna of mikils majónes á samloku
Samkvæmt fregnum vestanhafs var starfsmaður Subway skotinn til bana vegna of mikils majónes á samloku kúnna um helgina. Staðurinn sem um ræðir er staðsettur í Atlanta í Bandaríkjunum.

Fimm mánaða stúlka skotin til bana í Chicago
Fimm mánaða stúlka var skotin til bana í aftursæti bíls í South Shore-hverfi Chicago síðdegis í gær. Stúlkan var flutt á spítala eftir að hafa fengið skot í höfuðið og lést hún þar. Maður á fimmtugsaldri hlaut einnig áverka eftir að byssuskot hæfði hann nærri auga.

Biden samþykkir herta byssulöggjöf
Joe Biden Bandaríkjaforseti skrifaði í dag undir lagafrumvarp sem takmarkar rétt Bandaríkjamanna til byssukaupa. Frumvarpið felur í sér hertar bakgrunnsathuganir, takmarkar rétt þeirra sem hafa verið dæmdir fyrir heimilisofbeldi til vopnakaupa og auðveldar ríkjum að fjarlægja byssur af fólki sem er talið hættulegt.

Fimmtán repúblikanar greiddu atkvæði með nýrri skotvopnalöggjöf
Bandaríska öldungadeildin samþykkti í nótt lög um takmörkun á skotvopnaeign en um er að ræða mestu breytingu á slíkum lögum í fjölda ára.

Mega ekki setja takmörk á vopnaburð á almannafæri
Hæstiréttur Bandaríkjanna ógilti lög sem settu takmarkanir við skotvopnaburði í New York sem þýðir að mun fleiri geta gengið um vopnaðir í stærstu borgum landsins í dag. Dómurinn kemur á sama tíma og Bandaríkjaþing er nálægt því að samþykkja nýjar takmarkanir á skotvopn í fyrsta skipti í áratugi.

Hefðu átt að stoppa byssumanninn eftir þrjár mínútur
Yfirmaður almannavarna í Texas segir að lögreglumenn sem brugðust við skotárásinni í Robb-grunnskólanum í Uvalde í síðasta mánuði hefðu átt að geta stöðvað byssumanninn þremur mínútum eftir að hann réðst inn í skólann. Viðbrögð lögreglu hafi verið „ömurlegt klúður“.

Tveir látnir eftir skotárás í pálínuboði eldri borgara
Minnst tveir eru látnir og einn alvarlega særður eftir að karlmaður skaut fólk á færi í pálínuboði í úthverfakirkju í Alabama í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Maðurinn hefur verið handtekinn og færður til yfirheyrslu.

Fjöldamorðinginn í Buffalo ákærður fyrir hatursglæpi
Bandarískri alríkissaksóknarar ákærðu átján ára gamlan karlmann sem myrti tíu manns í stórverslun í Buffalo í síðasta mánuði fyrir hatursglæpi í dag. Yfirvöld telja að kynþáttahatur hafi verið tilefni fjöldamorðsins.

Tilræðismaður Reagan endanlega frjáls og heldur uppselda tónleika í Brooklyn
John Hinckley Jr. sem reyndi að skjóta Ronald Reagan Bandaríkjaforseta til bana árið 1981 verður í dag endanlega frjáls allra sinna ferða. Hann var úrskurðaður ósakhæfur í réttarhöldunum 1982 og hefur verið undir ströngu eftirliti sálfræðinga síðan. Þann 8. júlí næstkomandi heldur hann tónleika í Brooklyn sem er uppselt á.

Komust að samkomulagi um herta byssulöggjöf
Hópur öldungadeildarþingmanna úr báðum flokkum Bandaríkjaþings hafa komist að samkomulagi um drög að nýju frumvarpi varðandi byssueign. Enn á eftir að skrifa frumvarpið en líklegt þykir að stuðningur sé við samkomulagið í öldungadeildinni.

Krafðist aðgerða í tilfinningaþrunginni einræðu
Bandaríski leikarinn Matthew McConaughey hélt tilfinningaþrungna ræðu á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær, þar sem hann grátbað þingmenn um að herða skotvopnalöggjöf í landinu. Hann sýndi blaðamönnum græna skó sem meðal annars voru notaðir til að bera kennsl á eitt fórnarlamba skotárásinnar í Uvalde.

Kennari í Uvalde segir lögreglumenn „raggeitur“
Lögreglumenn sem biðu í klukkustund áður en þeir létu loks til skarar skríða á meðan byssumaður myrti nítján börn og tvo kennara í bænum Uvalde í Texas eru „raggeitur“, að sögn kennara sem særðist í árásinni. Hann segist aldrei geta fyrirgefið lögreglunni.

Telja sig nær því en áður að ná saman um viðbrögð við skotárásum
Þverpólitískur hópur öldungadeildarþingmanna á Bandaríkjaþingi sem vinnur að tillögum til að bregðast við mannskæðum skotárásum síðustu vikna telur sig nú hafa meiri meðbyr en eftir fyrri slíka harmleiki. Hugmyndirnar sem eru til umræðu gagna mun skemur en Joe Biden forseti kallaði eftir á dögunum.

Þrír látnir og ellefu særðir eftir skotárás í Fíladelfíu
Þrír eru látnir og að minnsta kosti ellefu særðir eftir skotárás sem átti sér stað skömmu fyrir miðnætti í miðbæ Fíladelfíu-borgar í gærkvöldi.

Kallar eftir breytingum í kjölfar enn einnar skotárásarinnar
Bandaríska ungstirnið Coco Gauff hvetur til þess að íþróttafólk nýti aðstöðu sína í sviðsljósinu til að berjast fyrir mannréttindum og félagslegum breytingum. Hún kallaði eftir breytingum á byssulöggjöf í Bandaríkjunum á Opna franska meistaramótinu í tennis í gær.

Þingmaður sýndi vopnabúrið á fundi um skotvopnalöggjöf
Greg Steube, fulltrúadeildarþingmaður Repúblikana í Bandaríkjunum, sýndi vopnabúr sitt er hann þótt þátt í nefndarstörfum dómsmálanefndar fulltrúadeildarinnar í gær, þar sem frumvarp um hert aðgengi að skotvopnum og tengdum vörum var til umræðu.

Segja að lögreglustjórinn hafi ekki verið látinn vita af örvæntingarfullum símtölum nemendanna
Lögreglustjórinn sem stýrði aðgerðum þegar byssumaður skaut nítján börn og tvo kennara til bana í Texas var ekki látinn vita af því að börn sem væru föst inni í skólastofu með honum hefðu hringt í neyðarlínu. Viðbrögð lögreglu hafa sætt harðri gagnrýni.

Hryðjuverkamaðurinn í Buffalo lýsir yfir sakleysi
Átján ára karlmaður sem skaut tíu blökkumenn til bana í stórmarkaði í Buffalo í síðasta mánuði lýsti yfir sakleysi sínu þegar ákæra á hendur honum fyrir haturshryðjuverk var tekin fyrir. Saksóknarinn lýsir sönnunargögnunum gegn honum sem yfirgnæfandi.

Kallaði eftir banni gegn árásarskotvopnum
Joe Biden Bandaríkjaforseti kallaði í gær eftir banni gegn árásarskotvopnum eftir röð skotárása í Bandaríkjunum. Forsetinn ávarpaði þjóðina og spurði meðal annars að því hversu mikið blóðbað Bandaríkjamenn væru reiðubúnir til að sætta sig við.

Leitaði uppi lækni vegna bakverkja og skaut hann
Maður sem skaut skurðlækni sinn og þrjá aðra til bana í Tulsa í Bandaríkjunum í gærkvöldi, kenndi lækninum um sársauka sem hann fann fyrir eftir aðgerð á baki. Maðurinn keypti sér hálfsjálfvirkan riffil af gerðinni AR-15 nokkrum klukkustundum fyrir ódæðið.