Fréttir
Fílabeinsströndin rambar á barmi borgarastyrjaldar Fílabeinsströndin rambar á barmi borgarastyrjaldar. Þetta segja uppreisnarmenn í landinu en töluvert hefur verið um mótmæli og árásir á friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna þar í landi síðustu dag. Erlent 18.1.2006 13:06
Gazprom dregur úr gassölu til Evrópu Rússneska gasfyrirtækið Gazprom hefur minnkað gasflæði til Ungverjalands og Bosníu-Hersegóvínu svo fyrirtækið geti annað innlendri eftirspurn en afar kalt er í Rússlandi þessa dagana. Erlent 18.1.2006 12:51
Milosevic óskar eftir læknisaðstoð frá Moskvu Stjórnvöld í Moskvu skoða nú hvort þau geti orðið við beiðni frá Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, þess efnis að hann fái að leita til rússneskra lækna vegna hjartveiki sinnar. Erlent 18.1.2006 12:47
Staðarhaldari á Hótel Valhöll á fund forsætisráðherra Kristbjörg Kristinsdóttir, staðarhaldari á Hótel Valhöll á Þingvöllum, gekk á fund forsætisráðherra fyrir hádegi vegna þeirra hugmynda um að Hótel Valhöll skuli verða rifið að hluta eða öllu leyti. Áform eru uppi um að halda samkeppni um hönnun nýs húss ef ákvörðun um niðurrif verður tekin. Innlent 18.1.2006 12:42
Steingrímur J. Sigfússon boðar til blaðamannafundar Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hefur boðað til blaðamannafundar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi klukkan 15 í dag. NFS mun senda beint út frá fundinum. Innlent 18.1.2006 12:37
Verðmæti fyrirtækja í úrvalsvísitölu komið yfir 2000 milljarða Verðmæti fyrirtækja í úrvalsvísitölu Kauphallarinnar er komið yfir 2000 milljarða króna, og spáð er að það hækki um hátt í 30% í ár. Innlent 18.1.2006 12:32
Engin þörf fyrir Norðlingaölduveitu Engin þörf er fyrir Norðlingaölduveitu til að fullnægja raforkuþörf stækkaðs álvers í Straumsvík. Þrjár til fjórar nýjar virkjanir í Þjórsá, sem þegar hafa fengið umhverfismat, gætu fullnægt orkuþörf fyrirhugaðrar stækkunar álversins í Straumsvík. Innlent 18.1.2006 12:24
Dómarafélagið gæti farið í mál við ríkið Dómarafélagið tekur ákvörðun um það hvort farið verði í mál við ríkið vegna laga á Kjaradóm, eftir að Alþingi hefur afgreitt málið frá sér. Dómarar líta það alvarlegum augum ef framkvæmdavaldið, og eftir atvikum löggjafarvaldið, fari að hlutast til um laun sem óháðir aðilar hafa ákveðið. Innlent 18.1.2006 12:13
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri SA Stjórn Samtaka atvinnulífsins hefur ákveðið að ráða Vilhjálm Egilsson í stöðu framkvæmdastjóra samtakanna. Vilhjálmur er ráðinn í stað Ara Edwald sem senn tekur við stöðu forstjóra 365 miðla. Innlent 18.1.2006 10:42
Kauphöllinni í Tokyo lokað fyrr en vanalega Kauphöllinni í Tokyo var lokað í morgun tuttugu mínútum fyrr en venja er. Þetta er í fyrsta sinn sem það er gert en óttast var að tölvukerfið í kauphöllinni kynni að hrynja vegna mikilla viðskipta. Erlent 18.1.2006 09:38
Þrennt slasaðist í Bláfjöllum í gærkvöldi Þrennt slasaðist í Bláfjöllum í gærkvöldi og voru allir fluttir með sjúkrabílum á slysadeild, þar sem gert var að sárum þeirra. Innlent 18.1.2006 09:35
Japönum fækkar Japönum fækkaði í fyrra, í frysta sinn síðan árið 1945.Fæðingatíðni í landinu fer ört lækkandi og er talið að hún fari allt niður í eitt og eitt fjórða barn á konu á þessu ári, en til samanburðar eignast hver íslensk kona að meðaltali rúmlega tvö börn á ævi sinni. Erlent 18.1.2006 09:30
Hóta að drepa bandarískan blaðamann Uppreisnarmenn í Írak hafa hótað að taka bandarískan blaðamann sem þeir hafa í haldi af lífi ef ekki verður orðið við kröfum þeirra um að öllum konum í írökskum fangelsum verði sleppt innan þriggja sólarhringa. Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera greindi frá þessu í gær og birti myndband af konunni en gaf ekki upp hvernig það hefði borist stöðinni. Erlent 18.1.2006 08:04
Japönum fækkar í fyrsta sinn í rúm 60 ár Japönum fækkaði í fyrra, í fyrsta sinn síðan árið 1945. Fæðingatíðni í landinu fer ört lækkandi og er talið að hún fari allt niður í 1,25 börn á konu á þessu ári, en til samanburðar eignast hver íslensk kona að meðaltali rúmlega tvö börn á ævi sinni. Erlent 18.1.2006 07:44
Uppreisnarmenn handteknir í Írak Danskar og írakskar hersveitir handtóku þrjátíu og sex uppreisnarmenn í víðtæku áhlaupi á vígi uppreisnarmanna norðan við borgina Basra í Írak á mánudaginn. Erlent 18.1.2006 09:14
Hjálparstarf í Kasmír lamað Dynjandi úrkoma og aurskriður hafa lamað hjálparstarf í fjöllum Kasmír síðan um helgina. Eftirlifendur jarðskálftans sem hafast við hátt uppi í fjöllum eru algerlega afskiptir. Erlent 18.1.2006 09:10
Fuglaflensufaraldur getur dregið milljónir til dauða Sameinuðu þjóðirnar og Alþjóðabankinn hafa varað þjóðir heims við því að hugsanlegur fuglaflensufaraldur geti dregið milljónir til dauða og telja að þörf sé á 90 milljörðum dollara á næstu þremur árum til að takast á við flensuna í fátækari ríkjum heims. Erlent 18.1.2006 09:05
Mannfall og mannrán í Írak Íraskir byssumenn myrtu í morgun tíu lífverði og rændu verkfræðingi frá Malawi í höfuðborginni Baghdad. Erlent 18.1.2006 09:03
Tilnefnd til íslensku þekkingarverðlaunanna Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) hafa tilnefnt þrjú fyrirtæki til Íslensku þekkingarverðlaunanna: Avion Group, Actavis og Bakkavör. Innlent 18.1.2006 07:19
Grýlukerti hættuleg Grýlukerti eru algeng sjón um þessar mundir enda kalt í verði og aðstæður kjörnar til myndunar þeirra. Grýlukerti myndast á húsum sem eru illa einöngruð og oftast við sperrur og þök. Þau myndast þegar nægjanlega hlýtt loft streymir út og bræðir snjó í dropa sem svo falla. Innlent 18.1.2006 08:05
Friðargæsluliðar drepnir í Haítí Tveir jórdanskir friðargæsluliðar voru skotnir til bana og sá þriðji særðist í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí í gær. Ráðist var á þá á varðstöð í borginni en þar hefur verið róstursamt að undanförnu. Erlent 18.1.2006 07:21
Komið upp um áform um að ræna syni Blairs Bresk lögregla hefur komið upp um ráðabrugg manna um ræna Leo, yngsta syni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands. Frá þessu greinir götublaðið Sun. Erlent 18.1.2006 07:24
Snjóflóð féllu í Óshlíð Ófært er um Óshlíð á Vestfjörðum vegna snjóflóða eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Beðið er með mokstur í Ísafjarðardjúpi og Steingrímsfjarðarheiði vegna veðurs. Á sunnanverðum Vestfjörðum er ekkert ferðaveður, ófært og stórhríð á fjallvegum, þungfært og stórhríð með ströndinni. Innlent 18.1.2006 08:14
Bandarísk blaðakona í haldi andspyrnumanna Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera sýndi í gærkvöldi myndband sem sýnir bandaríska blaðakonu sem er í haldi andspyrnumanna í Írak. Ekkert hafði heyrst til Jill Carroll síðan henni var rænt 7. janúar síðastliðinn í Bagdað. Myndbandið er um 20 sekúndur. Með því fylgdu þau skilaboð að bandarísk stjórnvöld hefðu 3 sólahringa til að láta lausar þær írösku konur sem væru í fangelsi í Írak ellegar yrði blaðakonan myrt. Erlent 18.1.2006 06:52
Fuglaflensa hugsanlega komin upp í Írak Grunur leikur á að mannskæði stofn fuglaflensunnar sé kominn upp í norðurhluta Íraks. Embættismaður úr röðum Kúrda sagði í morgun að verið væri að rannsaka hvort rekja mætti nýlegt dauðsdall í Norður-Írak til fuglaflensunnar. Erlent 18.1.2006 07:28
Blint í éljum á Reykjanesbrautinni Mjög blint er í éljum á Reykjanesbrautinni og hafa ökumenn lent í vandræðum nú undir morgun. Einn bíll fór út af á sjöunda tímanum og björgunarsveit var kölluð út til að hjálpa fólki í bíl, sem lenti útaf á Sandgerðisvegi. Þá hefur fólk lenti í vandræðum vegna ófærðar við Grindavík. Þá gátu snjóruðningsmenn ekkert aðhafst á norðaustanveðrinu í gærkvöldi vegna óveðurs og er þar víða ófært Innlent 18.1.2006 06:46
Eyða kókaplöntum í Kólombíu Þúsundir hermanna voru sendir í þjóðgarð í Mið-Kólumbíu í gær til að eyða kóka plöntum sem þar eru að finna og notaðar eru til kókaínframleiðslu. Svæðið þar sem plönturnar er að finna er 4.600 hektarar og ráða FARC skæruliðar þar lögum og lofum. Erlent 18.1.2006 06:55
Dómstóll í Tælandi dæmir tvo menn Dómstóll í Tælandi hefur sakfellt tvo þarlenda fiskimenn fyrir að hafa nauðgað og myrt breskum ferðamanni. Mennirnir, sem eru báðir á þrítugsaldri, réðust á rétt rúmlega tvítuga konu á ferðamannaströnd á eyjunni Koh Samui. Mennirnir eiga yfir höfði sér dauðadóm og hefur Tahksin Shinawatra, forsætisráðherra Tælands, hvatt til þess að þeir hljóti þyngstu refsingu fyrir ódæðið. Glæpurinn hafi skaðað ímynd landsins og kunni að hafa afar slæm áhrif á ferðamannaiðnaðinn á Tælandi. Erlent 18.1.2006 06:47
Samkomulag um að skjóta áformum um Norðlingaölduveitu á frest Samkomulag varð um það á fundi fulltrúa Landsvirkjunar og Skeiða-og Gnúpverjahrepps, auk fleiri hreppa sem eiga land að Þjórsá, að skjóta frekari áformum um Norðlingaölduveitu á frest. Innlent 18.1.2006 07:04
Leyfa líknardráp Hæstiréttur í Bandaríkjunum staðfesti í gær lög sem leyfa læknum í Oregon ríki að aðstoða dauðvona sjúklingum að deyja. Þar með hafnaði rétturinn tilraunum Bush Bandaríkjaforseta til að refsa læknunum og banna þeim að fremja líknardráp. Sex dómarar af níu staðfestu lögin en meðal þeirra þriggja sem voru í minnihluta var John Roberts, nýskipaður forseti réttarins. Niðurstaðan er sögð áfall fyrir Bandaríkjaforseta Erlent 18.1.2006 06:50