Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fram fóru 16. maí 2026.

Fréttamynd

Sam­fylkingin mót­mælti til­lögu borgar­stjóra

Svo virðist sem parísarhjólið muni rísa á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn í þriðja sinn í sumar. Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu þess efnis að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf. til viðræðna um framlengingu samnings um afnot af svæðinu til að reka parísarhjól, þrátt fyrir mótmæli Samfylkingar.

Innlent
Fréttamynd

Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn

Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokksins segir að áður en viðræðum var slitið við Framsókn hafi samningar tekist um að Valdimar Víðisson yrði næsti bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Þeir hafi handsalað það að halda viðræðum áfram daginn eftir, en svo hafi skrítin atburðarás farið af stað sem lauk með því að Sjálfstæðisflokkur sleit viðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Vil­hjálmur verður bæjar­stjóri

Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, verður bæjarstjóri en hann og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, skrifuðu í dag undir málefnasáttmála nýs meirihluta. Gunnlaugur verður formaður bæjarráðs.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“

Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði og bæjarstjóri segir af og frá að hann hafi sett upp leikrit og komið óheiðarlega fram í meirihlutaviðræðum. Hann hafi komið fram af heilindum og komið því á framfæri við oddvita Sjálfstæðisflokksins í morgun. Framsókn sé enn reiðubúin í meirihlutaviðræður verði þess óskað.

Innlent
Fréttamynd

Skraf Sjálf­stæðis­manna í húsi Snarfara

Fundur kjörinna borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins hófst um tuttugu mínútur yfir þrjú. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fundaði með oddvitum Viðreisnar, Framsóknar og Miðflokks í gær.

Innlent
Fréttamynd

Hyggjast halda sam­starfinu á­fram

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur hafa formlega hafið viðræður um myndun meirihluta í Múlaþingi. Flokkarnir hafa unnið saman síðustu kjörtímabil.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn líst hvorki á Fram­sókn né Miðflokk

Oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði segir samstarf við Framsókn ekki lengur spennandi kost vegna meints trúnaðarbrests oddvita flokksins. Þá segir hún erfitt að sjá fyrir sér meirihluta með Miðflokki. Möguleikar Framsóknar á að komast í meirihluta í bænum virðast því úti.

Innlent
Fréttamynd

Kristinn verður á­fram bæjar­stjóri

Í Snæ­fells­bæ var Sjálf­stæðis­flokkurinn einn í fram­boði og var því sjálf­kjörið í sveitar­stjórn. Til að fagna kjör­deginum og gera fólki daga­mun hélt fram­boðið kosninga­kaffi á kjör­dag.

Innlent
Fréttamynd

Tíðindi í vændum: Boðar borgar­stjórnar­flokkinn á fund

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun boða  borgarfulltrúa flokksins á fund sinn í dag til skrafs og ráðagerða. Það er í fyrsta skipti eftir úrslit sveitarstjórnarkosninganna sem oddvitinn hittir fulltrúana formlega. Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu borgarfulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum eða þrjá fleiri en í síðustu kosningum. Ekki er ósennilegt að von sé á fleiri tíðindum í dag eða á morgun. 

Innlent
Fréttamynd

Nokkrir hlut­falls­lega á pari við Heiðu

Töluvert var strikað yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, fráfarandi borgarstjóra, í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Fréttastofa kannaði útstrikanir í nokkrum sveitarfélögum og ef litið er hlutfallslega á niðurstöðurnar eru nokkrir á pari við Heiðu.

Innlent
Fréttamynd

Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti

Vel fór á með oddvitum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, Miðflokks og Viðreisnar á tveggja tíma hádegisfundi að sögn Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins. Hún segir þó enga sérstaka niðurstöðu liggja fyrir hvað varðar myndun meirihluta og segist þurfa að ráða ráðum sínum hvað varðar næstu skref.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgun hælis­leit­enda í Reykja­nes­bæ sé engin

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ segir skýra kröfu frá samfélaginu að málefni hælisleitenda í sveitarfélaginu séu tekin föstum tökum. Fjölgunin hælisleitenda sé engin en klára þurfi verkefnið og passa að vandamálið vaxi ekki á ný. Skoðað verði hvort sett verði á fót öryggisteymi í sveitarfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­menn verði að hætta að vera litlir í sér

Meðal ástæðu þess að dregist hefur að mynda tveggja flokka meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í borginni er að sumir Sjálfstæðismenn eru enn hræddir við „vókið,“ að mati Björns Inga Hrafnssonar aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins. Hann telur að þegar Sjálfstæðismenn nái jarðsambandi muni þeir mynda tveggja flokka meirihluta í Reykjavík með Miðflokknum og segir menn verða að hætta að vera litlir í sér. Geri þeir það ekki gætu þeir allt eins myndað meirihluta með Samfylkingunni.

Innlent