Ráðist að vagnstjóra og strætónum rænt í Garðabæ Strætisvagni var rænt á stoppistöðinni við Vífilsstaði í Garðabæ í kvöld. Þegar vagnstjóri stöðvaði vagninn réðst maður inn í vagninn. Bílstjórinn yfirgaf vagninn og farþegar sömuleiðis og þjófurinn ók á brott. Innlent 27.3.2026 21:05
Ekki er allt sem sýnist í rekstri Garðabæjar Í yfirlýsingum bæjaryfirvalda í Garðabæ er rætt um sterkan rekstur og trausta afkomu. Þegar fjárhagsáætlunin er skoðuð nánar kemur annað í ljós. Tekjumódelið byggir of mikið á sölu lóða til að fegra myndina, og ef byggingamarkaðurinn kólnar, eins og fleiri og fleiri vísbendingar gefa til kynna, mun það bitna á þjónustu bæjarins, sem íbúar reiða sig á. Skoðun 26.3.2026 18:00
Fjölga plássum og breyta nafni eins leikskóla Fjölga á leikskólaplássum á Hjallastefnuleikskóla í Garðabæ um 30 á næsta ári. Garðabær og Hjallastefnan hafa undirritað samkomulag um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Innlent 25.3.2026 13:27
Smalaholtskógur: Náttúruperla eða fórnarkostur skipulags, og hver á að borga? Skoðun 16.3.2026 09:00
Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu. Innlent 13. mars 2026 08:52
Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Efstu sex sæti Miðflokksins í Garðabæ hafa verið staðfest af stjórn kjördæmafélags Suðvesturkjördæmis. Lárus Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, verður áfram oddviti flokksins. Innlent 12. mars 2026 13:34
Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Meðalbiðtími eftir næsta lausa tíma hjá heimilislækni á höfuðborgarsvæðinu er að jafnaði 27 dagar samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Aðeins tvær heilsugæslur standast viðmiði landlæknis. Innlent 12. mars 2026 06:02
Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar. Innlent 11. mars 2026 11:12
Ógnaði fólki með hníf og beitti svo lögreglumann ofbeldi Einn var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í nótt eftir að hafa ógnað fólki með hnífi. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann beitti svo lögreglumann ofbeldi. Samkvæmt dagbók lögreglu eru bæði málin til rannsóknar og í ferli. Innlent 8. mars 2026 07:19
Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Hafnarfjarðarvegi var lokað um stund í kvöld vegna áreksturs þegar þrír bílar runnu saman vegna hálku á veginum. Enginn er illa slasaður. Innlent 7. mars 2026 21:06
Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Guðlaugur Kristmundsson bæjarfluttrúi, Harpa Þorsteinsdóttir varabæjarfulltrúi, Jón Bjarni Steinsson lögfræðingur, skipa efstu þrjú sætin á lista Viðreisnar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 5. mars 2026 19:31
Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Slæm hola í Elliðavatnsvegi í Hafnarfirði tók fjóra bíla úr umferð í morgun. Búið er að gera við holuna en vegfarandi segir að viðhald á vegkaflanum sé lítið sem ekkert. Hann vonast til að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og Vegagerðin gyrði sig í brók. Innlent 4. mars 2026 22:28
Rannsaka frelsissviptingu og fíkniefnavörslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar frelsissviptingu og vörslu fíkniefna. Málið heyrir undir umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ. Innlent 4. mars 2026 16:48
„Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Bróðir Margrétar Löf, sem var dæmd í sextán ára fangelsi fyrir að hafa orðið föður þeirra að bana, skilur að upp hafi vaknað spurningar um meint aðgerðaleysi hans vegna heimilisofbeldis sem faðir hans varð fyrir en samband hans við fjölskylduna hafi ekki verið hefðbundið fjölskyldumynstur. Hann gagnrýnir aðgerða- og úrræðaleysi heilbrigðisstéttarinnar. Innlent 3. mars 2026 11:43
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3. mars 2026 06:34
Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Nýr skóli fyrir einhverf börn, Þorláksskóli, verður opnaður í Garðabæ í haust. Vigdís Gunnarsdóttir hefur unnið að stofnun skólans frá því í fyrra en sonur hennar verður einn fimm nemenda skólans. Vigdís segist snemma hafa gert sér ljóst að sonur hennar, sem hefur sína skólagöngu í haust, myndi ekki þrífast í umhverfi hefðbundins skólahverfis. Innlent 25. febrúar 2026 10:17
Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Sigurbjörn Bárðarson hestaþjálfari segist hafa orðið vitni að því þegar Margrét Halla Hansdóttir Löf beitti móður sína ofbeldi. Nokkrum dögum síðar hafi hún myrt föður sinn. Sigurbjörn leigði fjölskyldunni bás í hesthúsi sínu og segist lengi hafa furðað sig á því hversu illa Margrét hafi komið fram við foreldra sína. Innlent 24. febrúar 2026 00:17
Þrír sinueldar á innan við sólarhring Tveir sinueldar komu upp á höfuðborgarsvæðinu á öðrum tímanum í nótt en greiðlega gekk að slökkva eldana. Annar þeirra kviknaði í Norðlingaholti í Reykjavík og náði yfir um fimm hundruð metra langt svæði. Tveir dælubílar voru sendir á staðinn sem slökktu eldinn frá sitt hvorum enda. Innlent 22. febrúar 2026 07:31
Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Lögmaðurinn Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir og Gerald Häsler Aðalsteinsson, viðskiptastjóri hjá Arion banka, hafa sett 179 fermetra raðhús sitt við Hörgslund 17 í Garðabæ á sölu. Ásett verð er 172 milljónir. Lífið 19. febrúar 2026 16:11
Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn. Innlent 18. febrúar 2026 13:30
Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Meirihluti kjörinna fulltrúa telur að bætt götuhreinsun muni stemma stigu við mikilli svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, miðað við svör til fréttastofu um málið. Fulltrúarnir skiptast í tvo hópa, þá sem telja að þrifin skipti máli og svo þá sem benda á að nagladekk og samgöngur séu helsta vandamálið. Sumir kenna meirihlutanum í borgarstjórn um vandann en aðrir íhaldsmönnum sem dragi lappirnar að taka á nagladekkjavanda. Öll líta málið alvarlegum augum. Innlent 17. febrúar 2026 15:40
Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Hlynur Bæringsson, sem setti körfuboltaskóna á hilluna eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Stjörnunni síðasta vor, segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann gefi kost á sér fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Innlent 17. febrúar 2026 11:11
Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, mun áfram leiða lista Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Næstu sæti skipa Björg Fenger, formaður bæjarráðs, og Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar. Innlent 16. febrúar 2026 20:30
Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi og eigandi Extraloppunnar, vill áfram leiða lista Framsóknar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún var oddviti flokksins í kosningunum 2022 og tók í kjölfarið sæti í bæjarstjórn. Innlent 16. febrúar 2026 15:59
Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. Innlent 16. febrúar 2026 13:10
Foreldrar segja lögreglu gera lítið úr meintu kynferðisbroti á barni sínu á leikskólaaldri Innlent