Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Milljarða kröfur á hendur stjórnar Eik Banki og Deloitte Stjórn hins færeyska Eik Banki og Deloitte endurskoðendur bankans horfa nú fram á a.m.k. eins milljarðs danskra kr. eða 22 milljarða kr. skaðabótakröfur í dómsmáli sem bankasýsla Danmerkur (Finansiel stabilitet) ætlar að höfða gegn þeim. 23.6.2011 12:51
Öldrykkja Dana minnkar um 26% á áratug Öldrykkja Dana hefur minnkað um 26% eða rúman fjórðung á síðustu tíu árum. Þetta kemur fram í nýjum tölum um áfengisneyslu Dana frá dönsku hagstofunni. 23.6.2011 12:33
Aflaverðmæti makríls gæti farið yfir 20 milljarða Kraftur er nú kominn í makrílveiðarnar suður og austur af landinu og eru mörg skip þegar byrjuð veiðar. Aflaverðmæti af vertíðinni gæti farið yfir tuttugu milljarða króna. 23.6.2011 11:52
Sala atvinnuhúsnæðis minnkar um 1,5 milljarð milli mánaða Sala á atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu minnkaði um 1,5 milljarð kr. milli apríl og maí í ár. Fasteignamat seldra eigna í maí nam rúmum 3 milljörðum kr. en í apríl nam matið rúmum 4,5 milljörðum kr. 23.6.2011 11:26
OECD og LÍÚ með svipaða sýn á íslenskan sjávarútveg „OECD hefur í megindráttum svipaða sýn á íslenskan sjávarútveg og LÍÚ. Ég vona bara að ríkisstjórnin kynni sér skýrslu stofnunarinnar vel og taki mark á henni. Ég legg til að nú verið farið í það að skrifa nýtt kvótafrumvarp með aðkomu allra hagsmunaaðila," segir Adolf Guðmundsson formaður LÍÚ. 23.6.2011 11:12
Stjórnendur draga óvænt úr verðbólguvæntingum Stjórnendur á meðal stærstu fyrirtækja landsins vænta þess nú að vísitala neysluverðs muni hækka um 3,9% yfir næstu 12 mánuði. Þetta má sjá í niðurstöðum könnunar Capacent Gallup sem Samtök atvinnulífisins birti í gær. Hefur því dregið aðeins úr verðbólguvæntingum stjórnenda frá því að síðasta könnun var gerð, sem var í mars síðastliðnum, en þá bjuggust þeir við að árstaktur verðbólgu yrði 4,2%. 23.6.2011 10:44
Fasteignamat íbúða hækkar um 9% og verður 2.850 milljarðar Alls eru skráðar tæplega 125.000 íbúðir á Íslandi. Samanlagt fasteignamat þeirra er um 2.600 milljarðar króna en verður um 2.850 milljarðar króna samkvæmt mati ársins 2012. Fasteignamatið hækkar með öðrum orðum um 9%. 23.6.2011 10:24
Olíuverð lækkar eftir nýja bandaríska hagvaxtarspá Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í morgun í fyrsta sinni í vikunni. Ástæðan er að bandaríski seðlabankinn hefur dregið úr væntingum sínum um hagvöxt þar í landi á þessu ári. 23.6.2011 10:00
Ástarbréf Seðlabankans voru þyngsta höggið í hruninu Samkvæmt OECD er beinn kostnaður íslenska ríkisins vegna bankahrunsins 2008 sá mesti sem nokkuð ríki tók á sig í bankahruninu, að írska ríkinu undanskildu. Segir stofnunin að þyngsta höggið hafi átt sér stað nokkuð fyrir hrun sem var þegar Seðlabanki Íslands lánaði gömlu bönkunum gegn veði af vafasömum gæðum, ástarbréfin svokölluðu, sem aðallega voru kröfur á aðra íslenska banka. Var þar verið að veðja á að bankarnir kæmust í gegnum storminn. 23.6.2011 09:43
Yfir 100 danskir minkabændur hafa áhuga á Íslandi Yfir 100 danskir minkabændur sóttu kynningarfund á Jótlandi í þessum mánuði þar sem þeim voru kynntir möguleikarnir á að fjárfesta í minkarækt á Íslandi. 23.6.2011 09:21
Aflaverðmætið eykst um milljarð milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 37,4 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2011 samanborið við 36,4 milljarða kr. á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 1 milljarð kr. eða 2,8% á milli ára. 23.6.2011 09:04
Kaupmáttur launa eykst Vísitala kaupmáttar launa í maí 2011 er 105,9 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,9%. 23.6.2011 09:01
Hafnaði rökum Seðlabankans Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti í gær ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að beita Seðlabankann dagsektum vegna vanrækslu á afhendingu gagna og upplýsinga um útlán banka. 23.6.2011 09:00
Nær 80% stjórnenda telja efnahagsaðstæður slæmar Ekki er hægt að segja annað en að enn ríkir mikil svartsýni á meðal íslenskra stjórnenda á ástandið í efnahagslífinu og hefur afstaða þeirra til þess lítið batnað frá bankahruni. Nær 80% stjórnenda telja að aðstæðurnar séu slæmar. 23.6.2011 08:33
Airbus gerir risasamning í París Indverska lággjaldaflugfélagið IndiGo hefur lagt inn stærstu flugvélapöntun allra tíma hjá Airbus verksmiðjunum. Samningurinn var undirritaður á flugsýningunni í París sem nú stendur yfir en félagið hefur keypt 180 farþegaþotur af Airbus gerð. 23.6.2011 08:24
Sérfræðingar spá yfir 4% verðbólgu í júní Greiningar Arion banka og Íslandsbanka gera báðar ráð fyrir því að verðbólgan muni mælast yfir 4% í þessum mánuði. Nokkur munur er á spám þeirra, greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að verðbólgan fari í 4,1% en Arion banka að hún fari í 4,3%. Verðbólgan mældist 3,4% í síðasta mánuði. 23.6.2011 08:12
Ríkisskattstjóri rannsakar leynifélög í Lúxemborg Ríkisskattstjóri hefur grunsemdir um að skattur hafi ekki verið greiddur af viðskiptum með íslensk hlutabréf hjá félögum í Lúxemborg. Hefur skattstjóri því sótt ársreikninga 30-40 félaga í eigu Íslendinga, sem skráð eru þarlendis, til að skattleggja arð og söluhagnað hlutabréfa sem runnið hafa til félaganna. Viðskiptablaðið skýrir frá þessu. 23.6.2011 08:00
Hjálpardekk losað af vestra Bandaríski seðlabankinn tilkynnti í gær að hann muni kaupa síðasta skammtinn af ríkisskuldabréfum í lok mánaðar í næstu viku. Eftir það muni ljúka þessum stuðningi hins opinbera við banka og fjármálafyrirtæki þar í landi sem varað hefur síðastliðin þrjú ár. 23.6.2011 08:00
Seðlabankinn íhugar að vísa dagsektum til dómtóla Seðlabankinn íhugar nú hvort óhjákvæmilegt sé fyrir bankann að vísa til dómstóla dagsektum sem úrskurðað var að bankinn skyldi greiða. Það var áfrýjunarnefnd samkeppnismála sem ákvað að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um dagsektir skyldu standa þar sem bankinn hafði hafnað því að veita eftirlitinu umbeðnar upplýsingar um útlán banka og sparisjóða. 23.6.2011 07:51
Allt mun fara í opnu söluferli Landsbankinn ætlar að bjóða til sölu allar eignir sem hann hefur fengið við yfirtöku eins fljótt og unnt er í opnu og gegnsæju söluferli á almennum markaði. Skilyrði er þó sett um það að salan brjóti ekki gegn lögvörðum hagsmunum viðskiptavina bankans. 23.6.2011 06:00
Breskir bankamenn óttast tillögurnar Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) er sögð íhuga að innleiða kynjakvóta í stjórnum banka og fjármálafyrirtækja. 23.6.2011 05:00
Snúa sér til Evrópu Talið er að kínversk stjórnvöld hafi dregið úr kaupum á bandarískum ríkisskuldabréfum á fyrstu fjórum mánuðum ársins og séð hag sínum borgið með kaupum á evrópskum ríkisskuldabréfum. 23.6.2011 00:00
Plastiðjan höfðar mál á hendur Sp-fjármögnun Plastiðjan hefur höfðað mál á hendur Sp-fjármögnun vegna endurútreiknings á lánssamningi, sem hún segir vera byggðan á röngum forsendum. Niðurstaða dómsins mun hafa ríkt fordæmisgildi, segir lögmaður Plastiðjunnar. 22.6.2011 19:30
Ákærður fyrir stórfelld umboðssvik Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur ákært Viggó Þórisson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfaþjónustu Sparisjóðanna, fyrir stófelld umboðssvik. 22.6.2011 18:37
Fullnustueignir auglýstar og boðnar til sölu á almennum markaði Landsbankinn birtir í dag nýja stefnu um sölu og ráðstöfun fullnustueigna bankans. Í tilkynningu frá bankanum segir að stefnan sé hluti af innleiðingu sjónarmiða samfélagslegrar ábyrgðar í rekstri Landsbankans. „Landsbankinn kynnti aðgerðalista í febrúar og eitt af loforðum á listanum var að tryggja opið og gagnsætt söluferli allra fullnustueigna bankans. Með því að birta og innleiða stefnu um sölu fullnustueigna er bankinn að efna það loforð.“ 22.6.2011 15:00
Picasso verk seldist á milljarða á uppboði Málverk eftir meistarann Picasso seldist í gær á uppboði í London fyrir þrettán og hálfa milljón punda, eða um 2,5 milljarða íslenskra króna. Háskólinn í Sidney nýtur góðs af sölunni en verkið var gefið skólanum á síðasta ári. Sá sem gaf þessa rausnarlegu gjöf vill ekki koma fram undir nafni en söluandvirðið verður notað til þess að rannsaka offitu. 22.6.2011 09:52
Áherslubreytingar OR kynntar á opnum ársfundi Orkuveita Reykjavíkur heldur í fyrsta sinn opinn ársfund, og fer hann fram á morgun milli klukkan 14.00 og 16.00. Ástæða þess að fundurinn er öllum opinn er til að auka gegnsæi í starfseminni og stuðla að upplýstri umræðu um málefni þess. Þess er þó krafist að fólk skrái mætingu á vef Orkuveitunnar. Á fundinum verða kynntar áherslubreytingar í rekstri, skipulagi og þjónustu OR, drög að nýrri eigendastefnu fyrir fyrirtækið og staða úttektar eigenda á tildrögum fjárhagsvanda fyrirtækisins. Ársskýrslu Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2010 og Umhverfisskýrslu 2010 verður dreift á fundinum á rafrænu formi og verða þær aðgengilegar á vef OR eftir fund. Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur. 22.6.2011 09:32
Qantas fær skaðabætur frá Rolls Royce Ástralska flugfélagið Qantas hefur komist að samkomulagi við vélaframleiðandann Rolls Royce, sem smíðaði hreyflana í Airbus þotur félagsins en einn slíkur sprakk á flugi á síðasta ári. 22.6.2011 08:49
Starfsmenn Klafa boða til verfalls Starfsmenn þjónustufyrirtækisins Klafa, sem sér um upp- og útskipun fyrir álver Norðuráls og Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga samþykktu með öllum greiddum atkvæðum að boða til verkfalls fimmta júlí, ef ekki semst fyrir þann tíma. 22.6.2011 08:44
Verðbólga eykst fram á haustið Greiningardeild Arion banka býst við verðbólgukúfi fram eftir hausti og gerir ráð fyrir að hún fari í 5,2 prósent í september. Deildin gerir ráð fyrir að verðbólga fari úr 3,4 prósentum í maí í 4,3 prósent nú. 22.6.2011 08:00
Byr átti að skila ársuppgjöri í mars „Það tekur langan tíma að búa til fyrsta ársreikninginn eftir svona mikil umskipti. Það er umfangsmeira verk en alla jafna,“ segir Jón Finnbogason, forstjóri Byrs. 22.6.2011 06:00
Kreditkort ætlar að kæra til áfrýjunarnefndar Kreditkort ætlar að kæra til áfrýjunarnefndar neytendamála þá niðurstöðu Neytendastofu að framkvæmd greiðsludreifingar sem korthöfum hefur verið boðið upp á frá 1991 brjóti i bága við ákvæði laga um neytendalán. 21.6.2011 20:56
Uppgjörið við hrunið hér á landi án fordæma í heiminum Stjórnarformaður Bakkavarar gagnrýnir bæði rannsóknaraðila bankahrunsins og rannsóknarskýrslu alþingis harkalega. Hann segir uppgjörið við hrunið hér á landi án fordæma í heiminum. 21.6.2011 19:00
OECD: Íslendingar hraði afnámi gjaldeyrishafta OECD leggur til að Íslendingar hraði afnámi gjaldeyrishafta og standi vörð um fiskveiðistjórnunarkerfið. Stofnunin er á meðal þeirra sem hömpuðu bankakerfinu fyrir hrun, en segist hafa lært mikið síðan þá. 21.6.2011 18:56
Sendinefnd AGS á Íslandi vegna sjöttu endurskoðunar sjóðsins Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er nú stödd í Reykjavík vegna sjöttu endurskoðunar sjóðsins. 21.6.2011 16:32
Kreditkort brýtur gegn lögum um neytendalán Greiðsludreifing sem Kreditkort býður upp á brýtur bæði gegn lögum um neytendalán, og lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með greiðsludreifingunni. Þetta er niðurstaða Neytendastofu en vegna fjölda kvartana frá neytendum tók hún til skoðunar umrædda greiðsludreifingu. Í henni felst að ef neytandi getur ekki greitt kreditkortareikninginn sinn í einu lagi er honum boðið upp á að skipta reikningnum og greiða hann á fleiri en einum gjalddaga. Neytendastofa gerir ekki athugasemdir við að neytendum sé boðið upp á þessa leið en stofnunin telur greiðsludreifinguna vera neytendalán sem gera verður sjálfstæðan skriflegan samning um þar sem fram kæmu allar þær upplýsingar sem lánveitandi á að veita neytanda samkvæmt lögum um neytendalán. 21.6.2011 15:35
Fær viðbótarfrest til að fjármagna kísilver í Helguvík Íslenska kísilfélagið hefur fengið tveggja mánaða viðbótarfrest frá helstu viðsemjendum, til 15. ágúst, til að fjármagna smíði kísilverksmiðju í Helguvík. Til stóð að framkvæmdir hæfust fyrri hluta sumars en nú er ljóst að það markmið næst ekki. 21.6.2011 13:37
Flugmenn funda enn um kjaramál Samninganefnd Félags Íslenskra atvinnuflugmanna situr enn á fundi með samningsaðilum en fundur hófst klukkan níu í morgun. Flugstjórar hafa boðað til ótímabundins yfirvinnubanns á föstudag klukkan tvö semjist ekki fyrir þann tíma. 21.6.2011 12:05
Afnám gjaldeyrishafta mikilvægt skref - evran verði tekin upp sem fyrst Afnám gjaldeyrishafta er veigamikil forsenda þess að íslensk fyrirtæki komist aftur á alþjóðlega fjármálamarkaði. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslu efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD um Ísland. 21.6.2011 12:01
OECD mælir með óbreyttu kvótakerfi Efnahags- og framfarastofnunin OECD mælir með að ekki verði hróflað við núverandi kvótakerfi hér á landi, heldur verði auðlindagjaldið hækkað. Það sé vænlegra til að tryggja að fiskveiðikerfið verði áfram arðbært, skilvirkt og sjálfbært, fremur en að stjórnvöld láti undan þrýstingi almennings um grundvallarbreytingar á stjórnun fiskveiða hér við land, breytinganna vegna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar sem fjallar almennt um landshagi og framtíðarmöguleika hér á landi. Kynning á skýrslunni hófst nú klukkan tíu í innanríkisráðuneytinu. 21.6.2011 09:57
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan júní 2011 er 109,9 stig sem er hækkun um 2,3% frá fyrri mánuði. Þar af vegur þyngst 6,7% hækkun launa vegna kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands sem undirritaðir voru 5. maí 2011. Vísitalan gildir í júlí 2011. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 7,6%. 21.6.2011 09:10
Kísilfélagi tókst ekki að uppfylla fyrirvara Íslenska kísilfélaginu, sem hyggst reisa kísilver í Helguvík, tókst ekki fyrir tilskilinn frest þann 15. júní að uppfylla fyrirvara sem voru í samningum um verkefnið og hefur neyðst til að biðja um lengri frest. Ekkert bólar á framkvæmdum. 20.6.2011 19:45
Lady Blunt seldist fyrir metfé Lady Blunt, ein þekktasta Stradivarius fiðla heimsins,var seld á uppboði fyrir metfé í dag eða yfir 1,8 milljarða kr. Fyrirfram var búist við að fiðlan yrði seld á yfir 1,1 milljarð kr. sem raunar einnig hefði verið metfé fyrir Stradivarius fiðlu. 20.6.2011 22:53
Seðlabankinn gæti hagnast um hundruð milljóna Seðlabanki Íslands hefur sett hámarksverð við gjaldeyriskaup í seinni legg fyrsta gjaldeyrisútboðs bankans. Það merkir að bankinn gæti fengið hundruð milljóna í hreinan hagnað af útboðinu ef þátttaka er góð. 20.6.2011 12:17
Hækkanir á íbúðaverði hafa mikil áhrif á verðbólguna Verðþróun íbúðarhúsnæðis setur umtalsvert mark á verðbólguna í landinu en á milli maí og apríl hækkaði íbðaberð um 2,7 prósent og er það mesta hækkun sem mælst hefur frá því fyrir bankahrun. Fjallað er um íbúðaverð í Morgunkorni Íslandsbanka og þar segir að verðhækkunin sé þannig ekki „eins mikil gjöf og hún virðist í fyrstu fyrir íbúðaeigendur sem skulda verðtryggt en þannig eru jú flestir íbúðaeigendur.“ 20.6.2011 12:14