OECD og LÍÚ með svipaða sýn á íslenskan sjávarútveg 23. júní 2011 11:12 „
OECD hefur í megindráttum svipaða sýn á íslenskan sjávarútveg og LÍÚ. Ég vona bara að ríkisstjórnin kynni sér skýrslu stofnunarinnar vel og taki mark á henni. Ég legg til að nú verið farið í það að skrifa nýtt kvótafrumvarp með aðkomu allra hagsmunaaðila," segir Adolf Guðmundsson formaður LÍÚ. Þetta kemur fram á vefsíðu LÍÚ. Þar segir að samkvæmt skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, sé hvatt til þess að skilvirkni núverandi stjórnkerfis fiskveiða á Íslandi verði varðveitt. Í skýrslunni kemur fram að kvótakerfið hafi reynst vel og að ríkur hvati sé í því til ábyrgrar fiskveiðistjórnunar. Hins vegar standi kerfið nú frammi fyrir ógn vegna „meints óréttlætis" við úthlutun aflaheimilda við upphaf kvótakerfisins. OECD bendir á að flestir núverandi handhafar aflaheimilda hafi keypt þær á frjálsum markaði. „Það er ánægjulegt að OECD sjái nauðsyn þess að sjávarútvegurinn hér á landi sé rekinn á hagkvæman hátt og mæli með því að kerfinu verði ekki breytt. Sífellt fleiri þjóðir líta til okkar í tengslum við uppbyggingu sjávarútvegsins og því er sérkennilegt að sjá það að einmitt þessa dagana vilja íslensk stjórnvöld gjörbreyta kerfinu. Allar athugasemdir sem komið hafa fram í tengslum við kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar eru á sama veg, enginn virðist mæla með frumvarpinu. Nú bætist þessi virta stofnun í hópinn," segir Adolf.
Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira