Viðskipti innlent

Kreditkort ætlar að kæra til áfrýjunarnefndar

Mynd úr safni
Kreditkort ætlar að kæra til áfrýjunarnefndar neytendamála þá niðurstöðu Neytendastofu að framkvæmd greiðsludreifingar sem korthöfum hefur verið boðið upp á frá 1991 brjóti i bága við ákvæði laga um neytendalán.

Martha Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri Kreditkorts, segir í yfirlýsingu að ef niðurstaða Neytendastofu verði staðferst af áfrýjunarnefndinni hefur hún í för með sér verulegt óhagræði fyrir neytendur. Það sé ekki aðeins Kreditkost sem hefur boðið korthöfum upp á framkvæmd greiðsludreifingar með þessu hætti, heldur allir kortaútgefendur MasterCard og Visakorta.

„Við höfum litið svo á að með umræddri greiðsludreifingu sé verið að veita viðskiptavinum greiðslufrest. Til þessa hafa korthafar getað gengið frá greiðsludreifingu símleiðis en ef niðurstaða Neytendastofu verður staðfest verður slík þjónusta ekki lengur í boði. Korthafar verða þá að mæta til viðkomandi kortafyrirtækis og ganga frá sérstökum lánasamningi, svipuðum og raðgreiðslusamningi hjá kaupmönnum, ef þeir þurfa greiðsludreifingu á kortareikningi sínum. Þessu mun fylgja mikið óhagræði fyrir viðskiptavini og meiriháttar kerfisbreyting fyrir alla útgefendur kreditkorta, sem í 20 ár hafa boðið upp á framkvæmd greiðsludreifingar með fyrrnefndum hætti,“ segir hún ennfremur í yfirlýsingunni.


Tengdar fréttir

Kreditkort brýtur gegn lögum um neytendalán

Greiðsludreifing sem Kreditkort býður upp á brýtur bæði gegn lögum um neytendalán, og lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með greiðsludreifingunni. Þetta er niðurstaða Neytendastofu en vegna fjölda kvartana frá neytendum tók hún til skoðunar umrædda greiðsludreifingu. Í henni felst að ef neytandi getur ekki greitt kreditkortareikninginn sinn í einu lagi er honum boðið upp á að skipta reikningnum og greiða hann á fleiri en einum gjalddaga. Neytendastofa gerir ekki athugasemdir við að neytendum sé boðið upp á þessa leið en stofnunin telur greiðsludreifinguna vera neytendalán sem gera verður sjálfstæðan skriflegan samning um þar sem fram kæmu allar þær upplýsingar sem lánveitandi á að veita neytanda samkvæmt lögum um neytendalán.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×