Fleiri fréttir

Sjarmör á skítugum skóm

Leikarinn Keanu Reeves splæsti í afar lekker grá jakkaföt þegar nýjasta mynd hans Generation Um var frumsýnd vestan hafs. Skótauið skemmdi lúkkið örlítið.

Ekki í stuði fyrir paparassa

Fyrirsætan Abbey Crouch var ekki par hrifin af því þegar paparassar mynduðu hana í bak og fyrir á stefnumóti með eiginmanni sínum, knattspyrnumanninum Peter Crouch.

Hérna er Lindsay í meðferð

Partípían Lindsay Lohan tékkaði sig nýverið inn í meðferð en hún var dæmd til að eyða níutíu dögum þar eftir að hún laug að lögregluþjónum sem rannsökuðu bílslys sem hún lenti í síðasta sumar.

Kelidýrið David Beckham

Fótboltakappinn David Beckham eyddi afmælisdeginum sínum í París, borg ástarinnar. Hann var myndaður í bak og fyrir ásamt eiginkonu sinni Victoriu og dóttur þeirra, Harper sem er 21 mánaða gömul. Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að David fær ekki nóg af því að knúsa dóttur sína.

Hönk með húmor

Leikarinn Gerard Butler heimsótti Washington í Bandaríkjunum fyrir stuttu og var duglegur að setja myndir af ferðalagi sínu á Twitter.

Sigruðu frumkvöðlakeppni kvenna

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar MIA, sigurvegarinn í frumkvöðlakeppni kvenna sem Íslandsbanki, Félag kvenna í atvinnulífinu og Opni háskólinn í Reykjavík stóðu fyrir, hlaut tveggja milljóna króna styrk frá Íslandsbanka. Þær Bylgja Bára Bragadóttir og Álfheiður Eva Óladóttir standa að baki MIA en þær þróuðu hugmynd sem felst í framleiðslu á fljótandi sápum og froðusápum.

Ekki múta börnum með mat

Alison Sweeney, þáttarstjórnandi raunveruleikaþáttarins Biggest Loser, vill að börnin sín eigi í heilbrigðu sambandi við mat.

Íslenskur drykkur gegn timburmönnum

Sigurður Haukur Traustason, Björgvin Sólberg og Tómas Þórsson framleiða drykkinn B.Okay sem inniheldur efni sem tapast úr líkamanum við áfengisneyslu.

Stuð á stuttmyndahátíð

Stutt- og heimildamyndahátíðin Reykjavík Shorts & Docs Festival verður haldin 9. til 16. maí í Bíó Paradís, Kex Hostel og í Slipp Bíó / Reykjavík Marina. Þetta er í 11. sinn sem hátíðin er haldin og að venju er fjölbreytt úrval íslenskra og erlendra stutt- og heimildamynda.

Cooper leikur leyniskyttu

Bradley Cooper hefur tekið að sér aðalhlutverkið í næstu mynd Stevens Spielberg, American Sniper.

Létu loka Disneylandi og giftu sig - aftur!

Mariah Carey og Nick Cannon giftu sig í annað sinn í Disneylandi af öllum stöðum í heiminum. En skemmtigarðinum var lokað á meðan þau endurnýjuðu hjúskaparheitin að viðstöddum nánustu vinum og ættingjum. Eins og sjá má í myndskeiðinu var engu til sparað. Þá má sjá tvíburana þeirra Moroccan og Monroe, 2 ára, sem voru klædd eins og foreldrarnir.

Trufla þessar anorexíu myndir þig?

Brasilíska auglýsingastofan Revolution útbjó nýlega myndir sem hafa vakið upp hörð viðbrögð og sýnist sitt hverjum. Myndaröðinni er ætlað að varpa ljósi á það vandamál sem anorexía er og þá sérstaklega i í fyrirsætugeiranum. Á myndunum má sjá fyrirsætu og henni við hlið er teikning sambærileg við ljósmyndina. Það er eitthvað við þetta sem truflar ekki satt ?

Hún er 42 ára gömul - hvernig fer hún að þessu?

Naomi Campbell, 42 ára, sem hefur starfað sem fyrirsæta í hvorki meira né minna 25 ár verður betri með hverju árinu. Það er eins og hún yngist ef eitthvað er ef marka má myndirnar af henni. Hún pósar á forsíðu brasilíska Vogue með ljósa lokka eins og sjá má á myndunum.

Eitthvað sem allar konur ættu að eiga

Anna Rún Frímannsdóttir íslensku- og fjölmiðlafræðingur var alveg til í að segja okkur hvað hún er með í snyrtibuddunni og getur ekki verið án.

Löguleg í latex

Þúsundþjalasmiðurinn Carmen Electra er ekki feimin við að sýna áhangendum sínum á Twitter hitt og þetta úr sínu daglega lífi.

Ekki sjón að sjá hana

Leikkonan Melanie Griffith var mynduð í bak og fyrir þegar hún heimsótti garðyrkjustöð til að byrgja sig upp af fallegum plöntum um daginn.

Ég tilbið karlmenn

Leikkonan Zoe Saldana hætti nýverið með leikaranum Bradley Cooper en segir í viðtali við breska InStyle að hún trúi enn á ástina.

Lindsay er vond þegar hún er full

Partípíurnar Tara Reid og Lindsay Lohan voru einu sinni bestu vinkonur þó ellefu ára aldursmunur sé á þeim. Tara vandar Lindsay ekki kveðjurnar þessa dagana.

Grænmetisætur á Íslandi stofna samtök

"Sumir halda að við lifum bara á kálblöðum og tómötum en það er hlutverk samtakanna að uppfræða almenning,“ segir Sigvaldi Ástríðarson, einn stofnmeðlima.

Lést úr lifrarbilun

Jeff Hanneman, gítarleikari þungarokkshljómsveitarinnar Slayer, lést í gær.

Semur fyrir maltneska söngkonu

"Ég er svo heppinn að hafa unnið með Valla [Valgeiri Magnússyni] áður. Hann sér um þessa glæsilegu söngkonu og spurði mig í haust hvort ég vildi vinna lag með henni. Ég er alltaf opinn fyrir nýjum verkefnum og sagði já,“ segir tónlistarmaðurinn Haffi Haff um nýtt lag sem hann samdi og syngur ásamt maltnesku söngkonunni Chiara. Lagið heitir Zarbun sem þýðir skór á maltnesku.

Kamelljónið Rihanna

Söngkonan Rihanna er þekkt fyrir litríkan og áberandi fatastíl sinn. Hún nýtur liðsinnis stílistans Lysu Cooper, sem tók útlit söngkonunnar í gegn fyrir plötuna Good Girl Gone Bad sem kom út árið 2007, en sú hefur einnig unnið náið með Beyoncé, Bruno Mars og Elizabeth Hurley. Tískuspekúlantar hafa hrósað söngkonunni fyrir flottan stíl og nú er það orðið svo að litið er á Rihönnu sem eina helstu tískufyrirmynd dagsins í dag. Sjálf segist söngkonan helst kjósa flíkur „með áhugaverðar útlínur“.

Heldur stofutónleika í beinni á netinu

Lay Low býður upp á fría tónleika á netinu á morgun, laugardag, klukkan 21. Tónleikarnir verða haldnir í stofunni heima hjá henni í Ölfusi og sendir út beint á netinu í boði Símans og Inspired by Iceland.

Stundar jóga fyrir brúðkaupið

Jennifer Aniston hefur stundað jóga að undanförnu til að búa sig undir brúðkaupið sitt. Hún gengur upp að altarinu með handritshöfundinum og leikaranum Justin Theroux í sumar.

Órafmögnuð plata á árinu

Bandaríski tónlistarmaðurinn Beck ætlar að gefa út órafmagnaða plötu á þessu ári. Hún varð til er hann var að ljúka við gerð nótnaplötunnar Song Reader í fyrra. Beck ætlar að spila órafmagnað á nokkrum tónleikum í Norður-Ameríku í sumar þar sem nýja efnið verður frumflutt. Síðasta hljóðsverplata Bhans, Modern Guilt, kom út 2008. Fyrir ári síðan gaf hann út lagið I Just Started Hating Some People Today með Jack White sem upptökustjóra.

Úr svefnherberginu í sólskinsbylgju-reggí

Reggílagið Aheybaró með Kött Grá Pje, sem er hugarfóstur Atla Sigþórssonar, hefur fengið fín viðbrögð að undanförnu, þar á meðal á Rás 2. Svo gæti farið að það verði sumarslagarinn í ár, eða alla vega einn af þeim.

Að skapa í augnablikinu

„Leikstjórinn er búinn að vera miðlægur í allri leiklist á 20. öld og mér sýnist hann ætla að halda áfram að vera það,“ segir Sveinn Einarsson, einn kunnasti leikhúsmaður landsins til áratuga. Út er komin bókin Af sjónarhóli leikstjóra í ritstjórn Trausta Ólafssonar, þar sem Sveinn lýsir eigin sviðsetningum á nokkrum verkum, frá Yvonne Búrgúndarprinsessu í Iðnó 1968 til Cavalleria Rusticana og I Pagliacci í Gamla bíói 2008. Þetta kvað vera fyrsta bók sinnar tegundar á Íslandi í fyrirhugaðri ritröð um íslenska leikstjóra.

Brjálað að gera hjá tvífara Britney Spears

Michaela Weeks 25 ára sem starfaði áður sem þjónn hefur nóg að gera sem tvífari Britney Spears. Stúlkan rukkar tæpar 600 þúsund íslenskar krónur fyrir það eitt að mæta í gervi poppprinsessunnar og viti menn - það er brjálað að gera hjá henni. Sjá í meðfylgjandi myndskeiði hvernig Michaela auglýsir tvífara-þjónustuna.

Sjáðu Kim Kardashian fríka út

Kim Kardashian fór í fiska-fótsnyrtingu í heilsulind í Grikklandi þar sem hún er stödd ásamt fjölskyldu sinni og tekur upp allt það sem þau dunda sér við að gera fyrir sjónarspsraunveruleikaþátt fjölskyldunnar sem sýndur er á E! sjónvarpsstöðinni. Eins og sjá má fríkaði hún bókstaflega út þegar fiskarnir byrjuðu að japla á henni.

Ber að ofan – og ekki í fyrsta sinn

Leikkonan Rose Byrne situr fyrir ber að ofan á nýjum myndum í tímaritinu Manhattan. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rose sést ber að ofan því hún var það líka í kvikmyndinni Troy þar sem hún faðmaði Brad Pitt eftirminnilega.

Sambandið stendur á brauðfótum

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell og auðkýfingurinn Vladimir Doronin eru búin að vera saman í fimm ár en hafa nú tekið sér smá pásu frá ástinni.

"Kom mér á óvart hversu miður mín ég var"

"Það kom mér á óvart hversu miður mín ég var. Auðvitað er þetta bara hlutur það er að segja bíll sem má bæta en mér sárnaði svo að einhverjum fyndist þetta skemmtilegt," segir Tobba Marínós rithöfundur sem varð fyrir þeirri ömurlegu reynslu þegar hún ætlaði í vinnuna í morgun að búið var að rispa bílinn hennar í skjóli nætur. "Eins er ég alin upp á bílasölu og hef mikinn metnað fyrir því að eiga góðan bíl og passa vel upp á hann. Ég hafði ekki rænu á að athuga hvort fleiri bílar höfðu fengið sömu útreið en tvær erlendar konur stóðu og störðu á bílinn þegar ég kom og klöppuðu mér á öxlina," segir Tobba. "Ég ven mig á að bjóða ókunnugum far í vondu veðri þar sem allir eru ekki svo lánsamir að geta átt bíl. Ég mun gera það áfram."

Helga Arnar barnshafandi

Helga Arnardóttir fréttakona og matreiðslumaðurinn Reynir Örn Þrastarson eiga von á barni. Helga sem hlaut hlaut blaðamannaverðlaun fyrir umfjöllun ársins í Íslandi í dag um Geirfinnsmálið í fyrra er gengin þrjá og hálfan mánuð með sitt fyrsta barn.

Sú kann að pósa fyrir myndavélina

Leik- og söngkonan Miley Cyrus er heldur betur reffileg á myndum sem teknar voru fyrir V magazine. Hún prýðir forsíðu blaðsins og er óhrædd við að sýna smá hold.

270 lúkk á 90 dögum

Ærslabelgurinn Lindsay Lohan byrjar í níutíu daga meðferð í dag en hún var dæmd til að dúsa í henni eftir að hún laug að lögreglumönnum sem rannsökuðu bílslys sem hún lenti í síðasta sumar. Lindsay ætlar aldeilis ekki að vera lummó í meðferð.

Witherspoon tjáði sig ekki um sakarefnið

Stórleikkonan Reese Witherspoone ákvað að tjá sig ekki um sakargiftir þegar mál hennar var tekið fyrir hjá dómara. Eiginmaður hennar, Jim Toth játaði hins vegar sök. Toth var sakaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og Witherspoone var sökuð um að hafa truflað framgang réttvísinnar þegar maðurinn hennar var handtekinn fyrir ölvunaraksturinn. Þau voru bæði handtekin þann 19. apríl síðastliðinn.

Besta nóttin var á Íslandi

David Grohl, einn af stofnendum Foo Fighters og fyrrverandi trommari í Nirvana, segir að ógleymanlegasta nótt lífs hans hafi verið sumarnótt á Íslandi. Þetta segir hann í samtali við vefinn high life þar sem hann er spurður spjörunum úr.

Frysti úr sér egg

Leikkonan Sofia Vergara er í forsíðuviðtali við nýjasta tölublað bandaríska Cosmopolitan. Þar kemur ýmislegt fram og meðal annars að hún er búin að láta frysta úr sér egg. "Ég er búin að láta frysta úr mér egg til að halda möguleikanum um barneignir opnum.“

Deila hart um dauða Michaels Jackson

Lögfræðingur fjölskyldu Michaels Jackson heldur því fram að tónleikahaldarinn AEG Live hafi ekki staðið sig í stykkinu þegar læknirinn Conrad Murray var ráðinn til að annast popparann sáluga.

Auglýsing Reynis á vefsíðu Shots

Auglýsing sem Reynir Lyngdal leikstýrði fyrir þýska auglýsingastofu hefur vakið mikla athygli á vefsíðu fagtímaritsins Shots, sem er eitt það þekktasta innan auglýsingabransans.

Íslenski fáninn og sjóðheitur Hollywood koss

Eins og sjá má á myndunum af Hollywoodleikkonunni Keiru Knightley og unnusta hennar James Righton þar sem þau kysstast eins og enginn sé morgundagurinn á flugvelli í Frakklandi er silfruð ferðataska á hjólum. Sagan segir að parið ætli að ganga í heilagt hjónaband næstu helgi að viðstöddum hundrað manns en það sem okkur þykir hinsvegar mun merkilegra er að einn af mörgum límmiðum á tösku brúðgumans er íslenski fáninn.

Sjá næstu 50 fréttir