"Kom mér á óvart hversu miður mín ég var" Ellý Ármanns skrifar 2. maí 2013 11:15 „
Það kom mér á óvart hversu miður mín ég var. Auðvitað er þetta bara hlutur - það er að segja bíll sem má bæta en mér sárnaði svo að einhverjum fyndist þetta skemmtilegt," segir Tobba Marínós rithöfundur sem varð fyrir þeirri ömurlegu reynslu þegar hún ætlaði í vinnuna í morgun að búið var að rispa bílinn hennar í skjóli nætur.Hugguð af erlendum nágrannakonum „Eins er ég alin upp á bílasölu og hef mikinn metnað fyrir því að eiga góðan bíl og passa vel upp á hann. Ég hafði ekki rænu á að athuga hvort fleiri bílar höfðu fengið sömu útreið en tvær erlendar konur stóðu og störðu á bílinn þegar ég kom og klöppuðu mér á öxlina," segir Tobba. „Ég ven mig á að bjóða ókunnugum far í vondu veðri þar sem allir eru ekki svo lánsamir að geta átt bíl. Ég mun gera það áfram." Minnir okkur á að vera vakandi „Þetta minnir okkur líka á að vera vakandi fyrir umhverfinu og fylgjast með - nágrannavarsla er öflugt tæki. Eins eru komnar myndavélar víða. Ég velti því líka fyrir hvort tryggingafélög eigi að bjóða upp á sérstaka tryggingu á svæðum sem miðbænum gegn uppákomum á borð við þessa en ég vil þó trúa að þetta sé mjög sjaldgæft enda erum við flest gott fólk," segir Tobba.Skilaboðin sem Tobba setti á Facebooksíðuna sína í morgun: "Hey þú sem lyklaðir bílinn okkar í nótt þá hef ég safnað fyrir honum síðan að ég var 12 ára. Öll sumur og eftir skóla var ég í aukavinnu, bar út dv, fermingarpeningarnir fóru allir í sjóðinn, ég fór ekki með vinunum í útskriftar eða sólalandaferðir og ég seldi jafnvel hestinn minn. Vonandi skemmtir þú þér vel við þetta athæfi þitt. Ef einhver varð var við einstakling að lykla bíla í Garðastræti í gær þá vinsamlegast sendið mér línu."
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“