Fleiri fréttir

Erfitt að segja bless

Johnny Depp segir að erfitt hafi verið að kveðja persónuna John Dillinger sem hann leikur í sinni nýjustu mynd, Public Enemies. Myndin fjallar um frægasta bankaræningja Bandaríkjanna, sem olli miklum usla í kreppunni á fjórða áratugnum. „Að segja bless við Dillinger var eins og að kveðja ættingja,“ sagði Depp. Samt telur hann að einna erfiðast hafi verið að kveðja Edward Scissorhands í samnefndri mynd. „Það var erfitt að búa ekki lengur við öryggið sem fólst í því að að leyfa sjálfum sér að vera svona hreinskilinn og berskjaldaður.“ Depp nefnir einnig persónu sína í The Libertine sem hann þurfti hreinlega að breytast í í rúmlega fjörutíu daga. „Þetta var eins og maraþon og þegar ljósin slokknuðu varð allt svart.“

Hvíta bókin seld til Þýskalands, Noregs og Danmerkur

„Nei, nei, þetta kemur mér ekkert á óvart. Og ég á von á fleirum, það er áhugi frá hinum enskumælandi heimi. Ég held að þeir hafi þá tilfinningu að kannski hafi ég bara hitt naglann á höfuðið hvað þessi mál varðar,“ segir Einar Már Guðmundsson rithöfundur.

Susan Boyle frábær í hljóðverinu

Idol-dómarinn Simon Cowell er afar spenntur fyrir nýrri plötu Susan Boyle sem lenti í öðru sæti í raunveruleikaþættinum Britain"s Got Talent. Upptökur á plötunni standa nú yfir og segist Cowell aldrei hafa verið hrifnari af rödd Boyle en einmitt nú.

Breytast eftir veðri og vindum

Ný fatalína hönnuðarins Jet Korine, #01 Endless Light, verður frumsýnd í versluninni Belleville á Laugavegi í dag. Þetta er fyrsta línan sem hún hannar undir eigin nafni og eru flíkurnar nokkuð sérstakar fyrir þær sakir að þær eru allar unnar á lífrænan hátt. „Ég var búin að starfa í tískubransanum í nokkur ár og fékk svo á endanum ógeð. Ég er með ákveðnar hugmyndir um heiminn og heimilið og vil sjálf hafa sem mest lífrænt og umhverfisvænt í

Heiðruðu Jackson á Hróarskeldu

Hljómsveitin Hjaltalín heiðraði Michael Jackson á tónleikum sínum á Hróarskelduhátíðinni á fimmtudagskvöld með því að spila lag hans Don't Stop 'til You Get Enough. Lagið var það síðasta sem hún tók fyrir uppklapp.

Lindsay afmælisbarn

Kevin Jonas, einn Jonas bræðranna, trúlofaðist fyrir stuttu kærustu sinni, Danielle Delassa. Fjölmiðlar hið vestra greina frá því að Kevin hafi beðið hennar daginn eftir tónleika. „Það var erfitt að koma fram og spila kvöldið áður vitandi að ég væri að fara að biðja þessa mögnuðu stúlku um að giftast mér. Hún sagði já, já, já næstum fimmhundruð sinnum ofur hratt," sagði Kevin um bónorðið. Hann og Danielle kynntust á Bahama eyjum fyrir rúmum tvemur árum síðan.

Jonas bróðir trúlofast

Kevin Jonas, einn Jonas bræðranna, trúlofaðist fyrir stuttu kærustu sinni, Danielle Delassa. Fjölmiðlar hið vestra greina frá því að Kevin hafi beðið hennar daginn eftir tónleika. „Það var erfitt að koma fram og spila kvöldið áður vitandi að ég væri að fara að biðja þessa mögnuðu stúlku um að giftast mér. Hún sagði já, já, já næstum fimmhundruð sinnum ofur hratt," sagði Kevin um bónorðið. Hann og Danielle kynntust á Bahama eyjum fyrir rúmum tvemur árum síðan.

Sirrý: Ég er súrefnisfíkill - myndband

„Ég er að njóta súrefnisins og að vera úti í góða veðrinu. Ég er súrefnisfíkill," segir Sirrý meðal annars í meðfylgjandi myndskeiði þegar Vísir spjallaði við hana í dag. Sirrý, sem er nýkomin frá Spáni, talar meðal annars um námskeiðin hennar, djúpa dali sem fólk tekst á við þegar það horfist í augu við atvinnuleysi og nýja útvarpsþáttinn hennar sem hefst næsta sunnudag á Rás 2. Hér má skoða heimasíðu Sirrýar.

Ásdís Rán og Garðar á djamminu - myndir

„Þetta var árlegt FHM party því þeir eru nýbúnir að gefa út Topp listann yfir heitustu FHM skvísurnar," svarar Ásdís Rán aðspurð um teitið sem hún og Garðar Gunnlaugsson sóttu eins og myndirnar sýna. Á myndunum má sjá ritstjóra FHM og vinkona Ásdísar, Diönu sem er þekkt tískumodel í Búlgaríu. Þá má einnig sjá forsíðustúlku FHM í þessum mánuði Nikoletu en hún var númer eitt á „topp tíu Hot listanum" hjá FHM.

Jackson 2 dögum fyrir dauðann - myndband

Á meðfylgjandi link má sjá síðasta myndbandið sem tekið var af Michael Jackson, 50 ára, þar sem hann æfði sig fyrir Lundúnartúrinn framundan. Myndbandið var tekið 23. júní síðastliðinn en Michael lést tveimur dögum síðar. Hann æfði stíft og var í dúndurformi eins og sjá má á myndbandinu hér.

Aðeins útvaldir í SILVER-partýinu - myndir/myndband

„Gelið kemur á markað í dag á öllum sölustöðum," segir Björgvin Páll Gústavsson handboltakappi í meðfylgjandi myndskeiði sem tekið var við hann rétt í þessu en hann hélt stærsta partí ársins á skemmtistaðnum Oliver síðustu helgi ásamt félaga sínum Loga Geirssyni. Fjöldi manns mætti í partýið þar sem The Silver gelið var kynnt með látum eins og meðfylgjandi myndir sýna. Eingöngu þeir sem fengu boðskort fengu aðgang í partýiið þar sem ekkert ar til sparað.

Vesturport og Nick Cave gera nýja leikgerð af Faust

„Þetta er búið að vera í þróun í svolítinn tíma, hefur fengið að gerjast í hausnum á manni á hliðar­línunni. En núna er vinnan hafin,“ segir Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri. Vestur­portshópurinn vinnur þessa dagana að nýrri leikgerð Faust sem verður jólasýning Borgarleikhússins í ár. Gísli Örn situr nú við að skrifa handritið ásamt þeim Víkingi Kristjánssyni, Birni Hlyni Haraldssyni og Nínu Dögg Filippusdóttur. „Og svo verða Nick Cave og Warren Ellis með tónlistina. Hún spilar stórt hlutverk,“ segir Gísli.

Sigur Rós í maraþonmynd

Lögin Starálfur og Viðrar vel til loftárása með Sigur Rós hljóma í myndinni The Athlete sem er væntan­leg í bíó síðar á þessu ári. Um leikna heimildarmynd er að ræða sem fjallar um eþíópíska maraþonhlauparann Abeke Bikila sem vakti heims­athygli þegar hann vann ólympíugull í Róm berfættur árið 1960, fyrstur Afríkubúa. Níu árum síðar lamaðist hann í alvarlegu bílslysi og barðist hetjulega við að ná heilsu á nýjan leik.

Með hjálm við píanóið

„Ég held að ég spili með hjálm og ég veit ekki hvort ég þarf að vera með hanska,“ segir píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson, sem spilar á hálfgerðum vígslutónleikum í nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsinu ásamt hljómsveitinni Hjaltalín. Samtónn, samtök tónlistar­rétthafa, skipuleggja tónleikana sem verða haldnir í hádeginu á mánudaginn. „Ég verð eigin­lega að fá einhvern til að taka þetta upp á filmu. Ég verð að eiga mynd af mér í verkamannagalla að spila Chopin fyrir fólk.“

Framdi ekki sjálfsvíg

Leikarinn David Carradine framdi ekki sjálfsvíg heldur lést af völdum súrefnisskorts. Þetta kom fram eftir krufningu sem fjölskylda leikarans lét framkvæma fyrir sig. Carradine fannst nakinn inni í fataskápi með snúru um hálsinn og kynfærin á hótelherbergi í Bangkok hinn 4. júní. Talið er að hann hafi dáið í miðri kynlífsathöfn. „Hann lést ekki af náttúrulegum orsökum og ekki vegna sjálfsmorðs. Hann virðist því hafa dáið af slysförum,“ sagði læknirinn sem framkvæmdi krufninguna. Niðurstöðu úr krufningu sem lögreglan í Taílandi lét framkvæma á Carradine er væntanleg á næstu dögum og þar gætu nýjar upplýsingar komið í ljós.

Sorglegur lokaþáttur

Michael Emerson, sem leikur illmennið Benjamin Linus í Lost, spáir því að lokaþátturinn verði sorglegur. „Ég held að endirinn verði ekki á léttu nótunum,“ sagði Emerson. „Ég held að við eigum eftir að sjá miklu fleiri deyja eftir því sem nær dregur endinum. Ég giska á að einhverjar þekktar persónur deyi. Ég er handviss um að endalokin verði fyrst og fremst gerð fyrir fullorðna áhorfendur.“ Sjötta og síðasta þáttaröð Lost verður frumsýnd í Bandaríkjunum á næsta ári og bíða áhorfendur spenntir eftir því að sjá dulúðina sem umlykur þættina leysta upp.

Fimm spila á metalkvöldi

Fimm hljómsveitir koma fram á þungarokkstónleikum á Grand Rokk í kvöld þar sem fjölbreytnin mun ráða ríkjum. Fyrst stígur á svið hljómsveitin Wistaria sem spilar metalcore, næst á dagskrá verða rokkhundarnir í Dimmu og á eftir þeim kemur blackmetal-sveitin Svartidauði. Fjórða sveitin sem stígur á svið nefnist Bastard en hún spilar dauða­rokk og önnur dauðarokksveit, Beneath, lýkur síðan kvöldinu. Húsið verður opnað klukkan 22 og aldurstakmark er 20 ár. Aðgangseyrir er enginn.

Sótthreinsað spítaladrama

Nýtt tónlistarmyndband með hljómsveitinni Gusgus verður frumsýnt í næstu viku og bíða eflaust margir spenntir eftir að berja það augum. Það eru þeir Heimir Sverrisson og Jón Atli Helgason, betur þekktur sem Hárdoktorinn, sem unnu myndbandið í sameiningu. „Þegar nýja platan með Gusgus var að koma út vorum við Jón Atli fengnir til þess að vinna að sérstöku þema fyrir plötuna. Við ákváðum að breyta útliti og ímynd hljómsveitarinnar og unnum áfram með þetta þema í myndbandinu,“ segir Heimir.

Erfitt að fara í skó Ásdísar og Kolfinnu

„Þættinum slátrað? Nei, sko, við gerðum bara tveggja mánaða tilraun með þessar þrjár ágætu stelpur og svo var ákveðið að setja þáttinn í sumarfrí. Sko þáttinn,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsstjóri á ÍNN.

Fleet Foxes vinnur með Al Jardine

Hljómsveitin Fleet Foxes frá Seattle í Bandaríkjunum ætlar hugsanlega að spila á nýjustu plötu Als Jardine, fyrrverandi liðsmanns The Beach Boys. Hinn 66 ára Jardine bauð hljómsveitinni í upptökuver sitt í Los Angeles til að ræða samstarfið. „Þeir eru frábærir. Þeir hafa líka þennan Beach Boys-hljóm og virkilega fallegar raddanir,“ sagði Jardine, en platan hans nefnist A Postcard from California. Robin Pecknold, söngvari Fleet Foxes, hafði gaman af fundinum með Jardine. „Hann var algjör öðlingur, virkilega góður gæi.“ Á meðal annarra gesta á plötunni verða hinn gamli félagi Jardine úr The Beach Boys, Brian Wilson, og leikarinn John Stamos. Löngu týnt lag með Beach Boys, A California Saga, sem þeir tóku upp með Neil Young, David Crosby og Stephen Stills, verður einnig á plötunni.

Apinn Bubbles fannst í dýragarði

Einn nánasti vinur poppstjörnunnar Michaels Jackson er fundinn. Hann er við hestaheilsu þrátt fyrir háan aldur en mun að öllum líkindum ekki mæta í jarðar­förina.

Allavega tuttugu ár í viðbót

„Þegar Andrea Jóns hættir að fara veit ég að ég á tuttugu ár eftir,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2, spurður hvort hann sé ekkert að verða of gamall fyrir Hróarskelduhátíðina í Danmörku.

Fimmtugir og frægir - myndband

Hann er þekktastur fyrir Gleðibankann, rokkið og rauða hárið. Eiríkur Hauksson verður fimmtugur á laugardag og blæs til heljarinnar afmælistónleika í Austurbæ í tilefni dagsins. Af því tilefni hittu liðsmenn sjónvarpsþáttarins Ísland í dag þennan fyrsta Eurovision fara okkar Íslendinga í þætti kvöldsins sem segist loksins hættur að láta sig dreyma um heimsfrægð. Einnig fá áhorfendur að sjá þegar Björn Leifsson, betur þekktur sem Bjössi í World class, hélt sumarfagnað á 50 ára afmælisdaginn. Ísland í dag hefst klukkan 18:55 strax að loknum fréttum Stöðvar 2.

Dolly Parton kveður Michael - myndband

„Ég þekkti Michael og hann var sannur tónlistarsnillingur með hjarta engils. Við söknum hans öll og fráfall hans ætti að minna okkur á að upplifa alla daga líkt og þeir væru okkar síðustu," segir söngkonan Dolly Parton meðal annars í meðfylgjandi myndbandi þar sem hún minnist Michael Jackson sem féll frá 25. júní síðastliðinn. Sjá kveðju Dolly hér.

Siggi Hlö dillar sér - myndband

„Fimmtíu fyrstu sem mæta í eitís göllum fá diskinn áritaðan. Pælið í því," segir útvarpsmaðurinn Sigurður Hlöðversson, eða Sigg Hlö, sem heldur útgáfupartý annaðkvöld á skemmtistaðnum Spot í Bæjarlind í Kópavogi í tilefni af útkomu þreföldu safnplötunnar „Veistu hver ég var?" „Í gamla daga þá dansaði fólk voða mikið svona," segir Siggi og dansar vel eins og sést greinilega í meðfylgjandi myndbandi.

Jude Law á Broadway

Leiksýningin Hamlet með Jude Law í aðalhlutverki verður flutt á Broadway í New York frá West End í London þar sem hún hefur verið sýnd við mjög góðar undirtektir. Fyrsta sýningin verður 6. október og verður sýningatímabilið tólf vikur. Þetta verður í fyrsta sinn sem Law leikur á Broadway síðan 1995. Þá var hann tilnefndur til Tony-verðlaunanna fyrir hlutverk sitt í Indiscretions. Hamlet lýkur göngu sinni í London 22. ágúst og eftir það verða nokkrar sýningar í Danmörku, heimalandi Hamlets.

Þorvaldur Davíð semur smell

Leikaraneminn Þorvaldur Davíð Kristjánsson er ekki við eina fjölina felldur, en hann hefur nýlega sent frá sér lagið Sumarsaga. „Ég byrjaði að læra á gítar til að kúpla mig út úr leiklistinni eftir erfiðan skóladag. Það var það sem ég gerði í vetur, æfði mig á kassagítar, til að verða löggildur í útilegurnar í sumar.“

U2 semur tónlist fyrir mynd Sigurjóns Sighvatssonar

Írska rokkhljómsveitin U2 semur nýtt lag fyrir kvikmyndina Brothers sem Sigurjón Sighvatsson framleiðir. „Þetta er bara eitt lag og kom í gegnum vinskap þeirra og leikstjórans, Jim Sheridan. Þeir hafa unnið áður saman og eru náttúrlega allir frá Írlandi,“ útskýrir Sigurjón í samtali við Fréttablaðið.

Þrettán ára í dramatískri rullu

LA hélt nýverið prufur til að velja pilt til að fara með stórt og erfitt hlutverki í Lilju sem byggir á hinni skelfilegu kvikmynd Lilya 4 ever. Ólafur Ingi Sigurðsson varð fyrir valinu.

Klippimyndir Sigríðar til sölu

Sigríður Níelsdóttir opnar sína fjórðu einkasýningu í 12 Tónum við Skólavörðustíg í dag. Sýndar verða 24 klippimyndir sem hún hefur unnið undanfarið ár. „Þetta eru klippimyndir úr blöðum og öllu sem ég kemst yfir og geri úr því myndir," segir Sigríður, sem er 79 ára og býr á Reyðarfirði.

Trymbill sest í leikstjórastól

Kreppan hefur ekki einungis neikvæð áhrif á land og þjóð og virðist sem margir hafi ákveðið að setjast á skólabekk á ný í kjölfar hennar. Frosti Jón Runólfsson, trymbill hljómsveitarinnar Esju, er á meðal þeirra og stundar hann nú nám við Kvikmyndaskóla Íslands og ber því vel söguna.

Gefa út tónleikadisk

Hljómsveitin Blur er komin aftur á stjá og heldur tvenna tónleika í Hyde Park í London í kvöld og annað kvöld. Tónleikarnir verða gefnir út í takmörkuðu upplagi á geisladiskum og í stafrænu formi og verður hægt að kaupa þá í gegnum heimasíðuna Blur.co.uk. Hægt verður að kaupa tónleikadiskinn með hvoru kvöldi fyrir sig eða báða í einu ásamt ljósmyndum frá tónleikunum. Blur er í fínu formi eftir að hafa lokið Glastonbury-hátíðinni á Englandi um síðustu helgi með glæsibrag. Sveitin spilaði lög frá öllum ferli sínum, þar á meðal There"s No Other Way, Parklife, Country House og Song 2, við góðar undirtektir.

Í hættulegustu borg Indlands

Magnús Atli Magnússon á þrjá mánuði eftir af kvikmyndatökunámi sínu á Indlandi. Magnús er einn þriggja Evrópubúa í Asian Academy of Film and Television í Noida, nágrannaborg Delí. Hann segist hvorki hrifinn af borginni né Bollywood, en námið sé gott.

Flóran ein flottasta bók Evrópu

Bók Eggert Péturssonar, Flóra Íslands, fékk silfurverðlaun í keppni evrópskra hönnuða og auglýsingastofa sem fram fór í Barcelona í júní síðastliðnum. Það voru þær Snæfríður Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir sem hlutu þessi verðlaun en þær höfðu áður hlotið verðlaun FÍT í flokki grafískrar hönnunar fyrir prentmiðla fyrir þessa bók. „Þetta er alveg glæsilegt og árangurinn þýðir að við getum sent bókina í enn stærri keppni,“ segir Hörður Lárusson, formaður FÍT.

Spánn breytti lífi Paltrow

Leikkonan Gwyneth Paltrow segir að Spánn hafi breytt lífi hennar og landið hafi orðið hennar annað heimili eftir að hún bjó þar á unglingsárum sínum. Núna heimsækir hún landið að minnsta kosti einu sinni á ári og leggur áherslu á að börnin hennar Apple og Moses, sem hún á með popparanum Chris Martin, læri tungumálið í leiðinni.

Unnur Birna og Herdís leika á móti Ladda

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær eru tökur hafnar á kvikmyndinni Jóhannes sem skartar þeim Stefáni Karli Stefánssyni og Ladda í aðalhlutverkum. Leikstjóri er Þorsteinn Gunnar Bjarnason og var tökuliðið statt í Breiðholtinu í gær. Um fjölskyldumynd er að ræða en hún segir frá degi í lífi manns þar sem allt fer öðruvísi en ætlað var. Þetta er fyrsta kvikmynd Þorsteins í fullri lengd og því kom mörgum á óvart að honum skyldi takast að fá bæði Ladda og Stefán Karl í mynd til sín.

EP-plata og tónleikaplata

Hljómsveitin R.E.M. gefur hinn 7. júlí út fjögurra laga EP-plötu sem nefnist Reckoning Songs from the Olympia. Á henni eru lög af plötunni Reckoning frá árinu 1984 sem voru tekin upp á tónleikum í Dublin fyrir tveimur árum. Þessi EP-plata tengist tveimur öðrum útgáfum frá R.E.M., annars vegar tveggja diska endurútgáfu af Reckoning sem kom út fyrir skömmu og tvöfaldri tónleikaplötu, Live at the Olympia, sem er væntanleg í haust. Á henni verða lög sem voru einnig tekin upp í Dublin fyrir tveimur árum. R.E.M. er þessa dagana að undirbúa nýja hljóðversplötu sem mun fylgja eftir Accelerate.

Enduruppgötvaði Michael Jackson

Líkt og Fréttablaðið greindi frá í lok síðustu viku þá hefur verslunin Fígúra við Skólavörðustíg verið að selja sérstaka stuttermaboli til heiðurs poppgoðinu Michael Jackson. Guðjón Rúnar Emilsson, eigandi verslunarinnar, segir bolina hafa vakið nokkra athygli, sérstaklega meðal ferðamanna. „Hingað komu tveir Spánverjar sem höfðu þá ekki frétt af andláti Jacksons og þeir urðu því mjög hissa og nokkuð miður sín þegar þeir sáu bolina og fengu að vita að goðið væri látið,“ segir Guðjón sem hefur að eigin sögn enduruppgötvað tónlist Michaels Jackson. „Daginn eftir andlátið ákvað ég að leika aðeins Michael Jackson lög hér í versluninni og uppgötvaði fullt af lögum sem ég hafði ekki heyrt áður.“

Bræðingur úr öllum áttum

Platan Form Follows með Tonik kom út nýverið og er hún fáanleg á öllum helstu tónlistarveitum netsins, þar á meðal iTunes, Bandcamp og Gogoyoko. Tonik er hugarfóstur raftónlistarmannsins Antons Kaldals Ágústssonar og við gerð plötunnar fékk hann til liðs við sig þá Friðrik Sigurbjörn Friðriksson og Steingrím Þórarinsson á bassa og Þórð Hermannsson á selló. Anton segir að gaman hafi verið að vinna með þeim félögum. „Ég er alls ekki að segja að það sé nauðsynlegt að það sé lifandi hljóðfæri í lögunum en á móti kemur að það kemur oft mjög skemmtilegur kontrast í lagið,“ segir hann.

Snæddu kvöldverð

Nýlega sást til leikaranna Renée Zellweger og Bradley Cooper, sem fer með hlutverk í kvikmyndinni The Hangover, þar sem þau snæddu kvöldverð saman og létu vel hvort að öðru. „Hann kyssti hana á handarbakið þegar hann vísaði henni til sætis. Þau voru of náin til að geta talist aðeins vinir. Þau hvísluðu og hlógu allt kvöldið,“ sagði sjónarvottur. Fyrir ekki svo löngu héldu fjölmiðlar að Bradley þessi og leikkonan Jennifer Aniston væru að stinga saman nefjum. Bradley gaf svo frá sér yfirlýsingu í síðustu viku þar sem hann sagði að Aniston og hann væru aðeins góðir vinir.

Hótaði lækni lífláti

Hollenska fyrirsætan Karen Mulder var handtekin í París fyrir stuttu fyrir að hóta lækni lífláti. Fyrir­sætan vildi að lýtalæknir hennar lagfærði aðgerð sem hann hafði gert á henni en læknirinn, sem er kona, neitaði að verða við ósk hennar. Mulder hringdi þá ítrekað í lækninn og hótaði henni lífláti. „Hún öskraði og æpti í símann og var mjög æst. Hún hringdi ítrekað í lækninn, sem var orðin mjög skelkuð,“ var haft eftir einum lögreglumanni sem vann að málinu. Mulder hætti fyrirsætustörfum árið 1998, þá á hátindi ferils síns, og sagði að henni hefði ávallt þótt óþægilegt að láta mynda sig. Árið 2001 brotnaði hún niður í sjónvarpsviðtali þar sem hún sakaði föður sinn um að hafa dáleitt sig sem barn. Hún sagði jafnframt að nafntogað fólk innan tískubransans hefði hana sem kynlífsþræl.

Sjá næstu 50 fréttir