Lífið

Apinn Bubbles fannst í dýragarði

Michael Jackson og Bubbles eru eitt eftirminnilegasta tvíeykið í sögu skemmtanabransans.Nordic Photos/Afp
Michael Jackson og Bubbles eru eitt eftirminnilegasta tvíeykið í sögu skemmtanabransans.Nordic Photos/Afp

Einn nánasti vinur poppstjörnunnar Michaels Jackson er fundinn. Hann er við hestaheilsu þrátt fyrir háan aldur en mun að öllum líkindum ekki mæta í jarðar­förina.

Þetta er simpansinn Bubbles sem Michael Jackson hafði með sér hvert sem hann fór á tíunda áratug síðustu aldar. Bubbles hvarf síðan af sjónarsviðinu fyrir nokkrum árum og margir aðdáendur Jacksons hafa velt vöngum yfir því hvað hafi eiginlega orðið um þennan fræga apa. Breska blaðið Daily Mail upplýsti lesendur sína um að Bubbles dveldi í góðu yfirlæti í Centre for Great Apes í Wauchula í Flórida. Hann myndi þó ekki mæta í jarðarför fyrrverandi eiganda síns. Starfsfólk dýragarðsins hefur leyft sjónvarpsvélunum að mynda Bubbles sem sönnun fyrir því að hann sé á lífi. „Það besta sem við getum gert til að heiðra minningu Michaels Jackson er að hugsa enn betur um Bubbles því við vitum að Michael þótt einstaklega vænt um hann,“ sagði forstjórinn Patti Ragan.

Jackson bjargaði Bubbles frá krabbameinsrannsóknum undir lok níunda áratugarins og þeir félagar ferðuðust um allan heiminn saman. Vinátta þeirra var svo djúp að þeir deildu hótelsvítum saman og Bubbles hafði sitt eigið rúm í svefnherbergi Michaels. Bubbles átti einnig sitt sæti í upptöku­verinu þar sem Bad var tekin upp. Þá var hann líka sá eini sem fékk að nota salerni Michaels. Þegar Bubbles varð eldri átti hann það til að verða árásargjarn og var því sendur í dýragarð enda óttaðist Michael að hann gæti hugsanlega skaðað Prince Michael II. Michael gætti þess þó vandlega að vel væri hugsað um Bubbles og hann skipulagði meðal annars afmælisveislu fyrir apann þar sem öðrum frægum dýrum var boðið, þeirra á meðal hundunum Benji og Lassie og simpansanum Cheeta sem sló í gegn í Tarzan.

En nú hefur Bubbles sem sagt verið í dýragarðinum í Flórída síðastliðin fjögur ár og kann víst vel við sig í kringum hin dýrin, sem tengjast reyndar öll skemmtanabransanum með einum eða öðrum hætti. „Hann er mjög góður api, hann leyfir hinum yngri að drekka á undan sér og er bara mjög ljúfur og góður,“ segir Patti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.