Þrettán ára í dramatískri rullu 2. júlí 2009 05:45 Ólafur ingi ásamt Maríu Þórðar sem leikur Natösju María leikhússtjóri lýsir Ólafi sem ótrúlegu talenti sem fór meðal annars á kostum í Óvitum. En eitt er að leika í Óvitum og annað að leika Volodja í Lilju.
LA hélt nýverið prufur til að velja pilt til að fara með stórt og erfitt hlutverki í Lilju sem byggir á hinni skelfilegu kvikmynd Lilya 4 ever. Ólafur Ingi Sigurðsson varð fyrir valinu. „Ólafur sá auglýstar prufur í Dagskránni og við vissum ekki meira. Hann fór í þær og kom alsæll heim. Það var svo í framhaldsprufum sem honum og okkur var sagt hvaða leikrit þetta væri,“ segir Hafdísi Hrönn Pétursdóttir iðjuþjálfi. Hún er móðir Ólafs Inga Sigurðssonar, þrettán ára drengs, sem nýverið var valinn úr hópi 40 umsækjenda til að fara með hádramatískt og erfitt hlutverk í Lilju sem Leikfélag Akureyrar hyggst setja upp á næsta leikári. Leikritið byggir lauslega á kvikmynd Lukasar Moodysson, Lilya 4 ever, sem vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2002. Lilja er 16 ára og býr í gömlu Sovétríkjunum. Móðir hennar yfirgefur hana og flytur til Bandaríkjanna. Lilja býr til sitt eigið heimili með vinkonu sinni Natösju og 14 ára gömlum dreng, Volodja. Lilja sér fyrir heimilinu með vændi en öll dreymir þau um betra líf vestan járntjalds. Umfjöllunarefnið er hrollvekjandi, fjallar um mansal og vægast sagt bágbornar aðstæður barna í nútíma samfélagi. Það er Jón Gunnar Þórðarson sem skrifar verkið og leikstýrir sýningunni. Jana María leikur Lilju og María Þórðar leikur Natösju. María Sigurðardóttir leikhússtjóri segir að þeim hjá LA hafi verið vandi á höndum, en 40 drengir mættu í hinar auglýstu prufur – margir hæfileikaríkir. Ólafur varð fyrir valinu og María sparar hvergi stóru orðin: „Alveg ótrúlegt talent drengurinn! Hann er reyndar enginn byrjandi í leiklistinni, lék stórt hlutverk í Óvitum leikárið 2007-2008, dansaði og söng í Skoppu og Skrítlu hjá LA um páska. Ólafur spilar á harmonikku, syngur og semur lög, æfir fótbolta og frjálsar íþróttir og ýmislegt fleira er stráknum til lista lagt,“ segir María. Þetta leggst vel í móður Ólafs sem segir fyrir öllu að sonur hennar fái að nýta þá hæfileika sem hann virðist búa yfir. „Ólafur hefur alltaf verið að fara í einhver hlutverk og blómstrar í þessu starfi.“ En eitt er að leika í Óvitum – annað að takast á við dramatískt hlutverk sem þetta. Hafdís Hrönn segir það hafa komið upp í huga foreldranna „hvort við ættum að setja barnið í þetta? En við lítum svo á að hann sé þarna að fá tækifæri til að nýta sína hæfileika. Og ef rétt er að farið geti þetta verið þroskandi. Það verður góð samvinna milli okkar og leikhússins.“ Hafdís segir Ólaf þroskaðan og hún treysti honum vel til að skilja á milli. „Hann hefur alltaf átt auðvelt með að fara í hlutverk og út úr þeim aftur. Málefnið sem um er fjallað er staðreynd. Því miður er raunveruleikinn þannig. Hann þurfti í prufunum að fara með setningar sem hann er ekki vanur að gera dags daglega. En svo gerði hann bara grín að því hér heima.“
Mest lesið Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti Lífið „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Lífið Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Lífið Öldrun í hársverði - Fríða Rut gefur ráð Lífið samstarf Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Lífið Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Tónlist Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Lífið Sögulegur klæðnaður á dreglinum Lífið Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Lífið Hágæða merkjavara á geggjuðum afslætti út föstudaginn Lífið samstarf Fleiri fréttir „Við erum ekki að baða okkur í fortíðinni“ Sweeney sökuð um kynþáttahyggju Sögulegur klæðnaður á dreglinum Myndaveisla frá troðfullri tuttugu ára Bræðslunni Katy Perry og Justin Trudeau á stefnumóti „Þetta var algjört bíómyndamóment“ Samband Gallagher-bræðra sagt á hálum ís Harrý rétti fram eins konar sáttahönd Stjörnulífið: „Who the fuck is Kaleo?“ Ræðir það ekki í fjölskylduboði ef þú hittir frænda þinn á swing-viðburði Gordon Ramsay gerir upp Íslandsævintýri „Ekkert okkar grunaði að hann myndi fara þessa leið“ Destiny's Child með óvænta endurkomu Jóhanna Guðrún og Ólafur giftu sig Myndaveisla: Landinn skemmti sér konunglega í Vaglaskógi Bandaríkjaforseti birtir bull í bunkum Óvæntur Johnny Depp heiðraði Ozzy með Alice Cooper „Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Krakkatían: Dvergarnir sjö, klukkuturn og plánetur Ragga Holm og Elma giftu sig „Seldist upp í rúturnar nánast jafn snarlega og á tónleikana“ Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Líf og fjör í Reykholti í Borgarfirði um helgina á Reykholtshátíð „Það er í raun kraftaverk að hún sé á lífi í dag“ Fréttatía vikunnar: Stórtónleikar, NBA-stjarna á klakanum og heimsfræg lesbía Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina Sjá meira