Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Beguiristain: Hentar okkur vel að sækja Txiki Beguiristain, yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, segir það liðinu í hag að þurfa að sækja gegn Liverpool á Anfield annað kvöld. Hann segir heldur ekkert benda til þess að Barcelona eigi ekki að geta unnið á Anfield. 5.3.2007 17:30
Iniesta: Þetta verður stríð Miðjumaðurinn Andres Iniesta hjá Barcelona blæs í herlúðra fyrir leikinn gegn Liverpool á Anfield annað kvöld þar sem Börsunga bíður erfitt verkefni eftir 2-1 tap á heimavelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 5.3.2007 16:45
Helmingslíkur á að Henry verði með Arsene Wenger segir helmingslíkur á því að Thierry Henry komi við sögu í síðari leik Arsenal og PSV Eindhoven í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudagskvöldið. Henry á við erfið meiðsli að stríða og gerði þáttaka hans í fyrri leiknum lítið til að laga þau. 5.3.2007 16:32
Eggert: Curbishley er maðurinn Eggert Magnússon hefur nú tekið af allan vafa með framtíð Alan Curbishley, knattspyrnustjóra West Ham. Eggert ítrekaði í dag að Curbishley væri ráðinn til framtíðar - óháð því hver staða liðsins verði í sumar. 5.3.2007 16:21
Mourinho: Heppni United veitir okkur von Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir sína menn ekki ætla að gefast upp fyrr en í fulla hnefana í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn. Hann segir Chelsea ekki hafa í hyggju að færa Manchester United titilinn á silfurfati og segir heppni United-liðsins í síðustu leikjum veita sér von. 5.3.2007 15:45
Barcelona þarf að brjóta 40 ára hefð Evrópumeistarar Barcelona eiga erfitt verkefni fyrir höndum annað kvöld þegar liðið sækir Liverpool heim í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Barcelona hefur ekki náð að komast áfram í útsláttarkeppni eftir að hafa tapað fyrri leiknum á heimavelli síðan árið 1966. 5.3.2007 14:57
Xavi: Við mætum grimmir til leiks Miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona segir sína menn ætla að mæta grimma til leiks og sækja til sigurs annað kvöld þegar liðið sækir Liverpool heim í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Liverpool vann frækinn 2-1 sigur í fyrri leiknum á Spáni. 5.3.2007 14:52
Beckham og Reyes missa af leiknum við Bayern David Beckham og Jose Antonio Reyes verða ekki í leikmannahópi Real Madrid í síðari leik liðsins gegn Bayern Munchen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudag. Báðir meiddust þeir á hné í deildarleik gegn Getafe í gær og þá verður framherjinn Gonzalo Higuain tæplega með heldur eftir að hann meiddist í sama leik. Real hefur nauma 3-2 forystu fyrir leikinn á miðvikudag, sem fram fer í Munchen. 5.3.2007 14:31
Sheringham boðinn samningur í Sydney Gamla brýninu Teddy Sheringham hjá West Ham hefur verið boðinn eins árs samningur af ástralska A-deildarliðinu Sidney FC samkvæmt frétt frá breska sjónvarpinu. Sheringham verður 41 árs gamall í næsta mánuði og leikur með West Ham í ensku úrvalsdeildinni. 5.3.2007 14:27
Nolan framlengir við Bolton Fyrirliðinn Kevin Nolan hjá Bolton hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við félagið. Samningurinn er framlenging á eldri samningi hans og gildir þessi til ársins 2011. Nolan er 24 ára gamall og vísar því á bug að hann hafi hugleitt að fara frá Bolton til að eiga meiri möguleika á að komast í enska landsliðið eins og fullyrt hefur verið í fjölmiðlum á Englandi. 5.3.2007 14:23
Curbishley verður ekki látinn fara Breska sjónvarpið hefur eftir heimildamanni sínum hjá West Ham að Alan Curbishley verði ekki rekinn úr starfi knattspyrnustjóra þó liðið falli í 1. deild í vor. West Ham tapaði fyrir grönnum sínum í Tottenham í gær og situr á botni deildarinnar. 5.3.2007 14:21
Klíkumyndun og fjárhættuspil sögð ástæða slaks gengis West Ham Klíkumyndun og fjárhættuspil fyrir tugi þúsunda punda innan leikmannahóps West Ham er meðal þess sem sagt er hrjá félagið en það stendur nú í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni. Þetta kemur fram í grein á vef Guardian í gær. 5.3.2007 11:34
Curbishley: Við erum að falla á tíma Alan Curbishley knattspyrnustjóri var að vonum niðurlútur eftir að hans menn í West Ham töpuðu 4-3 fyrir Tottenham í æsilegum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann segir liðið vera að falla á tíma í botnbaráttunni og sagði vanþroska leikmanna hafa kostað liðið sigur í dag. 4.3.2007 21:30
Real tapaði stigum Real Madrid tókst ekki að komast upp að hlið Valencia í spænska boltanum í kvöld þegar liðið náði aðeins 1-1 jafntefli gegn lægra skrifuðum grönnum sínum í Getafe á heimavelli. Daniel Guiza kom gestunum í 1-0 eftir 38 mínútur en Ruud Van Nistelrooy jafnaði úr víti á lokasekúndum fyrri hálfleiksins. Heimamenn komust ekki lengra að þessu sinni og þurfa að sætta sig við fjórða sætið - tveimur stigum á eftir Valencia. 4.3.2007 20:07
Ævintýralegur sigur Tottenham Ekkert annað en fall virðist nú blasa við liði West Ham í ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið tapaði 4-3 á heimavelli fyrir grönnum sínum í Tottenham í dag. Leikurinn var vægast sagt dramatískur og geta leikmenn West Ham ekki kennt neinum öðrum en sjálfum sér up tapið. 4.3.2007 18:29
Kalla á David Beckham Umræðan um David Beckham og enska landsliðið kraumar enn á Englandi og í dag létu þeir Gary Lineker og Michael Owen báðir í ljós skoðun sína á málinu. Þeir vilja að Steve McClaren landsliðsþjálfari kalli Beckham aftur inn í landsliðið. 4.3.2007 16:30
Góður sigur hjá Blackburn Blackburn gerði sér lítið fyrir og lagði Bolton 2-1 á útivelli í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var hinn magnaði Benni McCarthy sem skoraði bæði mörk gestanna úr vítaspyrnum á tíu mínútna kafla um miðjan síðari hálfleik, en Nicolas Anelka minnkaði muninn fyrir Bolton skömmu fyrir leikslok. Bolton er í fimmta sæti deildarinnar en Blackburn í því níunda. 4.3.2007 15:28
Hitzfeld: Vörn Real er eins og gatasigti Ottmar Hitzfeld segist vera mjög vongóður um að hans menn í Bayern Munchen slái Real Madrid út úr Meistaradeildinni þegar liðin mætast öðru sinni í 16-liða úrslitunum á miðvikudaginn. Real marði 3-2 sigur í síðustu viku og segir Hitzfeld að ekki einu sinni Fabio Capello geti stoppað upp í lélegan varnarleik spænska liðsins. 4.3.2007 14:53
Berlusconi hefur áhuga á Ronaldinho Silvio Berlusconi, forseti AC Milan á Ítalíu, segist hafa fullan áhuga á að kaupa Brasilíumanninn Ronaldinho frá Barcelona. Þetta gengur þvert á nýlega yfirlýsingu varaforsetans Adriano Galliani, sem sagði félagið ekki hafa efni á honum. 4.3.2007 14:47
Ferguson: Það er líf eftir Larsson Sir Alex Ferguson segir að Manchester United muni spjara sig vel þó framherjinn Henrik Larsson sé brátt á heimleið aftur til Svíþjóðar. Larsson spilar væntanlega sinn síðasta leik fyrir félagið um næstu helgi þegar United mætir Middlesbrough í bikarnum. 4.3.2007 14:42
Rooney þarf í myndatöku Framherjinn Wayne Rooney hjá Manchester United þarf að fara í myndatöku vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Liverpool í gær. Rooney varð fyrir harðri tæklingu frá Jamie Carragher og óttast forráðamenn United að hann muni missa af síðari leiknum við Lille í Meistaradeildinni á miðvikudag. 4.3.2007 14:34
Benitez: Ég á ekki til orð Rafa Benitez, stjóri Liverpool, sagðist hvorki eiga til orð á spænsku né ensku til að lýsa yfir svekkelsi sínu með tapið gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. 3.3.2007 20:30
Owen vandar Real Madrid ekki kveðjurnar Enski framherjinn Michael Owen segist hugsa til tíma síns með Real Madrid með hryllingi og segist fljótlega hafa gert sér grein fyrir því að hann ætti ekki möguleika á að vinna sér fast sæti í liðinu. 3.3.2007 20:00
Chelsea lagði Portsmouth Chelsea saxaði í kvöld á forskot Manchester United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með góðum 2-0 útisigri á Portsmouth. Leikurinn var jafn og harður, en gestirnir kláruðu færin sín betur og það reyndist munurinn á liðunum að þessu sinni. Didier Drogba skoraði 18. mark sitt í úrvalsdeildinni og 29. mark sitt í vetur og varamaðurinn Salomon Kalou innsiglaði sigurinn skömmu fyrir leikslok. 3.3.2007 19:31
Bayern aftur í baráttuna Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen unnu mikilvægan 3-2 útisigur á Hertha Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Bayern hafði tapað fimm útileikjum í röð fyrir sigurinn í dag og er liðið nú aðeins sex stigum á eftir toppliði Schalke sem er í bullandi vandræðum þessa dagana. 3.3.2007 18:17
Defoe vorkennir West Ham Jermaine Defoe, leikmaður Tottenham og fyrrum leikmaður West Ham, segist kenna í brjóst um stuðningsmenn West Ham sem sjá fram á annað fallið í fyrstu deild á nokkrum árum. Defoe er ekki vinsæll á Upton Park síðan hann fór frá liðinu þegar það féll fyrir þremur árum. 3.3.2007 18:15
Inter aftur á sigurbraut Meistarar Inter Milan eru komnir aftur á sigurbraut í ítölsku A-deildinni eftir jafntefli í síðasta leik, en liðið lagði Livorno 2-1 á útivelli í dag eftir að lenda marki undir. Cristiano Lucarelli kom Livorno yfir með marki úr aukaspyrnu en Julio Cruz og Zlatan Ibrahimovic tryggðu Inter sigur. Á sama tíma gerði Roma 1-1 jafntefli við Ascoli og Inter hefur því 16 stiga forystu á toppnum. 3.3.2007 17:33
Útlitið dökknar hjá West Ham Leikjunum sex sem hófust klukkan 15 í ensku úrvaldeildinni er nú lokið og hefur staða West Ham í botnbaráttunni versnað til muna því keppinautar liðsins á botninum kræktu allir í stig í dag. 3.3.2007 17:06
Ferguson: Maður þarf heppni til að vinna titla Sir Alex Ferguson viðurkenndi fúslega að hans menn í Manchester United hefðu haft heppnina með sér þegar þeir stálu 1-0 sigri á Liverpool í dag. Hann sagði heimamenn hafa spilað betur, en bendir á að menn verði að hafa heppnina með sér ef þeir ætli að vinna titla. 3.3.2007 16:01
O´Shea tryggði United öll stigin Manchester United tók mjög stórt skref í áttina að enska meistaratitlinum í dag þegar liðið lagði erkifjendur sína í Liverpool 1-0 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. John O´Shea skoraði sigurmark United í uppbótartíma eftir að Paul Scholes hafði verið vikið af velli. United hefur nú 12 stiga forskot á toppi deildarinnar en Chelsea á tvo leiki til góða. 3.3.2007 14:46
Markalaust í hálfleik á Anfield Staðan í stórleik Liverpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni er jöfn 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Heimamenn hafa verið heldur sprækari framan af. Liverpool er í þriðja sæti deildarinnar en United á toppnum. 3.3.2007 13:42
Tímamót hjá goðsögninni Giggs Velski vængmaðurinn Ryan Giggs leikur sinn 700. leik með Manchester United í dag er liðið sækir Liverpool heim í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur verið í eldlínunni með United síðan 1991 og unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliði. 3.3.2007 13:00
Til La Manga með Álasundi Guðjón Baldvinsson mun fara með Álasundi í vikuæfingaferð til La Manga á Spáni í næstu viku. Hann hefur verið að æfa með liðinu undanfarna daga og átti góða innkomu í tapleik liðsins gegn Djurgården í fyrrakvöld. 3.3.2007 12:00
Yrði dauðadómur fyrir félagið Ensk knattspyrnuyfirvöld rannsaka nú hvort ólöglega hafi verið staðið að skráningu Argentínumannanna Carlos Tevez og Javier Mascherano þegar þeir gengu til liðs við West Ham í haust. 3.3.2007 11:45
Bellamy: Missti stjórn á skapi mínu Skapofsamaðurinn Craig Bellamy hefur í fyrsta skipti tjáð sig um það sem gekk á milli hans og John Arne Riise en Bellamy var sagður hafa lamið Riise í fæturna með golfkylfu eftir gott kvöld í Portúgal. 3.3.2007 11:15
Robinho lánaður til heimalandsins? Umboðsmaður brasilíska framherjans Robinho segir að forráðamenn Real Madrid ættu að fara að ákveða sig hvort þeir ætli að nota leikmanninn á næstunni, því hann sé með fjölda tilboða á borðinu um að fara sem lánsmaður til Brasilíu. 3.3.2007 11:15
Keyptu hlut í Millwall Bandarískt fjárfestingafélag hefur keypt hlutabréf í enska 2. deildarfélaginu Millwall fyrir fimm milljónir punda. Félagið hefur því bæst í hóp með Liverpool, Manchester Untited og Aston Villa sem eru reyndar öll í eigu Bandaríkjamanna. 3.3.2007 10:30
Blóðug barátta Það verður háð stríð á Anfield klukkan 12.45 í dag þegar hinir fornu fjendur Liverpool og Man. Utd mætast. 3.3.2007 10:00
Blackburn lækkar miðaverð Forráðamenn Blackburn í ensku úrvalsdeildinni hafa ákveðið að lækka meðalverð á ársmiðum fyrir stuðningsmenn liðsins á næsta ári. Lækkunin þýðir að Blackburn verður af milljón punda í tekjum. 3.3.2007 09:45
Á leið til Fjölnis Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun framherjinn Davíð Þór Rúnarsson vera á leið til 1. deildarliðs Fjölnis. Hann lék síðast með Víkingum en hefur verið samningslaus um nokkra mánaða skeið. Davíð lék síðast með Fjölni árið 2004 en hefur einnig verið á mála hjá Tindastóli, Neista á Hofsósi og Hvöt. 3.3.2007 09:30
Terry verður ekki með gegn Porto Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, tilkynnti í gær að fyrirliðinn John Terry verði ekki í leikmannahópi liðsins í síðari viðureigninni gegn Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku. "Ekki fræðilegur möguleiki," sagði Mourinho þegar hann var spurður en sagðist frekar búast við honum fyrir leikinn gegn Tottenham í bikarnum um næstu helgi. 3.3.2007 09:15
Bestu liðin heima væru best í Belgíu Landsliðsmarkvörðurinn Þóra B. Helgadóttir leikur í dag sinn fyrsta leik með belgíska úrvalsdeildarliðinu Oud-Heverlee Leuven þegar það heimsækir lið KFC Lentezon Beerse. 3.3.2007 06:30
Chelsea viðurkennir brot sín Chelsea hefur gengist við ákæru enska knattspyrnusambandsins um að hafa ekki haft stjórn á leikmönnum og / eða starfsmönnum sínum í úrslitaleik Carling bikarkeppninnar. Chelsea hefur þó beðið sambandið um áheyrn til þess að útskýra sína hlið á málinu. Sams konar kæra var lögð fram gegn Arsenal liðinu. 2.3.2007 18:07
West Ham ákært vegna félagaskipta Tevez og Macheranos Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar hefur ákveðið að kæra Íslendingaliðið West Ham fyrir brot á reglum um leikmannakaup í tengslum við komu argentínsku leikmannanna Carlos Tevez and Javier Mascherano til liðsins í ágúst í fyrra. 2.3.2007 17:22
UEFA vísar kæru Lille frá Áfrýjunarnefnd Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) hefur vísað frá kæru franska knattspyrnuliðsins Lille sem vildi að mark Ryans Giggs í leik Lille og Manchester United í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku yrði dæmt ólöglegt. 2.3.2007 16:48