Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Wenger kallaður inn á teppi Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, verður kallaður inn á teppi hjá enska knattspyrnusambandinu eftir að hann kallaði aðstoðardómarann í úrslitaleiknum í deildarbikarnum lygara. Wenger segir aðstoðardómarann hafa sagt að Emmanuel Adebayor hafi kýlt Frank Lampard, en bæði knattspyrnusambandið og Frank Lampard sjálfur hafa neitað þessu. 1.3.2007 14:48
Blackburn í 8-liða úrslit - Arsenal úr leik Arsenal féll úr leik í annari bikarkeppninni á nokkrum dögum í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir Blackburn í 16-liða úrslitum enska bikarsins. Það var Suður-Afríkumaðurinn Benni McCarthy sem tryggði Blackburn sigurinn með frábæru marki á 87. mínútu og mætir liðið Manchester City í næstu umferð. Hann segir Blackburn hafa slegið út besta liðið í úrvalsdeildinni. 28.2.2007 21:50
Eiður kom inn sem varamaður í sigri Barca Barcelona er komið í 8-liða úrslit spænska konungsbikarsins eftir 2-1 útisigur á Zaragoza í síðari leik liðanna í kvöld. Barca tapaði fyrri leiknum 1-0 en fer áfram á útimörkum. Xavi og Iniesta skoruðu mörk Barcelona í kvöld en Eiður Smári Gudjohnsen kom inn sem varamaður á 85. mínútu leiksins. 28.2.2007 22:43
Newcastle fær aðeins milljón vegna meiðsla Owen Alþjóða knattspyrnusambandið FIFA hefur boðið enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle eina milljón punda í skaðabætur vegna meiðsla sem Michael Owen varð fyrir í leik Englendinga og Svía á HM síðastliðið sumar. 28.2.2007 22:15
Þjálfari Sevilla borinn rotaður af velli Leikur Real Betis og Sevilla í spænska konungsbikarnum í kvöld var flautaður af í upphafi síðari hálfleiks eftir að þjálfari Sevilla rotaðist þegar aðskotahlut var kastað í höfuð hans. Liðin eru einir hatrömmustu erkifjendur í spænsku deildinni, en Sevilla var marki yfir þegar flautað var af. Juande Ramos þjálfari var fluttur á sjúkrahús eftir atvikið, en er sagður hafa rankað við sér í sjúkrabílnum á leiðinni þangað. 28.2.2007 22:05
Ótrúleg sigurganga Inter stöðvuð Udinese náði í kvöld að stöðva 17 leikja sigurgöngu Inter Milan í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu þegar liðin skildu jöfn 1-1 í Mílanó. Chris Obodo kom gestunum yfir 1-0 með frábæru marki, en varamaðurinn Hernan Crespo jafnaði fyrir heimamenn. Inter er þrátt fyrir þetta með örugga forystu í A-deildinni og ekkert nema stórslys getur komið í veg fyrir að liðið verði meistari í vor. 28.2.2007 21:58
Þriggja mánaða bann fyrir steranotkun Framherjinn Marco Borriello hjá AC Milan hefur verið dæmdur í þriggja mánaða keppnisbann af aganefnd ítalska knattspyrnusambandsins eftir að hafa fallið á lyfjaprófi í nóvember. Ólöglegir sterar fundust við lyfjaprófið og því má leikmaðurinn ekki spila á ný fyrr en þann 21. mars, en hann hefur þegar setið af sér hluta bannsins. 28.2.2007 20:30
Eiga ekki skilið að klæðast treyju West Ham Nokkrir af stuðningsmönnum West Ham í ensku úrvalsdeildinni hafa nú fengið sig fullsadda á ömurlegu gengi liðsins í deildinni í vetur. Í gær fór af stað undirskriftalisti meðal traustra stuðningsmanna félagsins þar sem lagt er til að kjörinu á leikmanni ársins hjá félaginu verði aflýst á þessu ári því enginn sé þess heiðurs verðugur. 28.2.2007 19:03
Arftakar Cafu og Carlos til United í sumar Manchester United gekk fyrir nokkru frá samningi við unga tvíbura frá liði Fluminese í Brasilíu, en þeir ganga í raðir liðsins í sumar þegar þeir verða 18 ára gamlir. Þeir heita Fabio og Rafael da Silva og eru vinstri og hægri bakverðir. Það er mál manna í Brasilíu að þeir bræður verði arftakar Roberto Carlos og Cafu hjá brasilíska landsliðinu. 28.2.2007 18:54
Santa Cruz: Komið og náið í mig Framherjinn Roque Santa Cruz hjá Bayern Munchen er orðinn hundleiður á að sitja á varamannabekknum hjá þýsku meisturunum og skorar á lið í ensku eða spænsku úrvalsdeildinni að kaupa sig. 28.2.2007 18:15
Chelsea að kaupa Portúgala Sky sjónvarpsstöðin greinir frá því í dag að Chelsea hafi gengið frá kaupum á portúgalska varnarmanninum Manuel da Costa frá PSV Eindhoven í Hollandi. Costa þessi er sagður valda því að spila hvaða stöðu sem er í vörninni og hefði liðið vel geta notað mann með þá hæfileika í vetur. Costa er tvítugur og samkvæmt portúgölskum fjölmiðlum gengur hann í raðir Chelsea í sumar. 28.2.2007 17:30
Roy Keane: Gráu hárunum fjölgar Harðjaxlinn Roy Keane segist nú vera farinn að njóta þess í fyrsta sinn að starfa sem knattspyrnustjóri. Keane tók við liði Sunderland í bullandi vandræðum í ensku 1. deildinni síðasta haust, en hefur náð að rífa liðið upp í fjórða sæti deildarinnar. 28.2.2007 17:00
Robben ósáttur Arjen Robben hefur nú viðurkennt opinberlega að hann sé orðinn þreyttur á því að halda ekki föstu sæti í liði Chelsea. Robben stóð sig vel í bikarúrslitaleiknum gegn Arsenal um síðustu helgi og lagði þar upp sigurmarkið fyrir Didier Drogba. 28.2.2007 16:32
Blackburn - Arsenal í beinni í kvöld Leikur Blackburn og Arsenal í fimmtu umferð deildarbikarsins verður sýndur beint á Sýn klukkan 20 í kvöld. Hér er um að ræða aukaleik liðanna eftir að fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli. Arsenal verður án fjölda lykilmanna í kvöld eins og Thierry Henry, Tomas Rosicky og Kolo Toure. 28.2.2007 16:15
Gerrard heimtar sigur á United Steven Gerrard fyrirliði Liverpool heimtar sigur og ekkert annað þegar lið hans tekur á móti toppliði Manchester United á laugardaginn. Hann segir sigur United fara langt með að tryggja liðinu titilinn og það vill hann ekki sjá gerast á Anfield. 28.2.2007 15:41
Tap á rekstri Man City Knattspyrnufélagið Manchester City hefur tilkynnt 7,1 milljón punda tap á rekstri félagsins á síðari helmingi fjárhagsársins 2006. Þetta eru mun lakari tölur en á sama tíma árið áður, en þá var hagnaðurinn nær 17 milljónir punda eftir söluna á Shaun Wright-Phillips til Chelsea. 28.2.2007 14:20
Ferguson: Eftirlaunin geta beðið Sir Alex Ferguson hjá Manchester United segist staðráðinn í að vinna í tvö ár í viðbót. "Ég ákvað að hætta árið 2002, en sá mikið eftir því og mér leið miklu betur eftir að ég skipti um skoðun ákvað að halda áfram. Eftirlaunin geta beðið," sagði Skotinn. 28.2.2007 13:54
Fowler í viðræðum við félag í MLS Steve Nicol, fyrrum leikmaður Liverpool og núverandi þjálfari New England Revolution í MLS deildinni í Bandaríkjunum, segist vera í viðræðum við fyrrum félaga sinn Robbie Fowler um að koma vestur um haf. Fowler er samningslaus hjá Liverpool í sumar. 28.2.2007 13:46
Ferguson: Besta byrjun sem ég hef séð Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með sigurinn á Reading í enska bikarnum í kvöld og sagði byrjun sinna manna hafa verið þá bestu sem hann hefði séð í sinni stjórnartíð. Hann viðurkenndi þó að um hann hefði farið þegar heimamenn minnkuðu muninn. 27.2.2007 23:02
Fimm leikja bann fyrir Rambo-árás Brasilíski miðjumaðurinn Lincoln hjá Schalke var í dag dæmdur í fimm leikja keppnisbann fyrir að veita Bernd Schneider hjá Bayer Leverkusen hnefahögg í leik liðanna í Gelsenkirchen um helgina. Tilþrifum þess brasilíska var lýst sem Rambo árás í þýskum fjölmiðlum. 27.2.2007 22:30
Reading úr leik þrátt fyrir hetjulega baráttu Manchester United er komið í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir 3-2 sigur á Reading í kvöld. United komst í 3-0 eftir aðeins sex mínútur í leiknum en heimamenn minnkuðu muninn fyrir hlé og hleyptu svo spennu í leikinn í lokin með því að minnka muninn í eitt mark skömmu fyrir leikslok. Brynjar Björn Gunnarsson átti skot í slá í lokin, en United slapp með skrekkinn. 27.2.2007 22:00
Nesta vill klára ferilinn hjá Milan Ítalski landsliðsmaðurinn Alessandro Nesta segist vilja ljúka ferli sínum hjá AC Milan og neitar því alfarið að vera á förum frá félaginu. Nesta hefur verið orðaður við sitt gamla félag Lazio undanfarið, en er nú aðeins um þrjár vikur frá því að snúa aftur til keppni eftir að axlarmeiðsli héldu honum frá keppni síðan í nóvember. 27.2.2007 19:15
Rúrik og Emil orðaðir við Viking Stavanger Aftenblad í Noregi heldur því fram að Uwe Rösler hjá Viking sé að reyna að fá Rúrik Gíslason frá Charlton til norska liðsins. Blaðið greinir einnig frá því að liðið hafi áhuga á að fá Emil Hallfreðsson frá Tottenham. 27.2.2007 18:27
Ferguson: Allt í góðu hjá okkur Beckham Sir Alex Ferguson segir að hann og David Beckham séu ágætis vinir þó enn sé talað um að deilur þeirra hafi valdið því að Beckham fór frá Manchester United árið 2003. Þeir félagar munu hittast í sérstökum hátíðarleik á Old Trafford þann 13. mars næstkomandi. 27.2.2007 17:08
Reading - Man Utd í beinni í kvöld Síðari leikur Reading og Manchester United í 16-liða úrslitum enska bikarsins verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:50. Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson verða báðir í byrjunarliði Reading í kvöld, en það var einmitt glæsilegt mark Brynjars á Old Trafford sem tryggði Reading aukaleikinn í kvöld. 27.2.2007 16:37
Hélt að Terry væri dauður Markvörðurinn Manuel Almunia hjá Arsenal segist hafa óttast að John Terry væri dauður þegar hann lá hreyfingarlaus á vellinum eftir að hafa fengið spark í höfuðið í bikarúrslitaleik Chelsea og Arsenal um helgina. 27.2.2007 16:30
Áfrýjun Keane vísað frá Enska knattspyrnusambandið tilkynnti í dag að rauða spjaldið sem Robbie Keane fékk að líta í sigri liðsins á Bolton um helgina muni standa. Keane þótti hafa varið skot Bolton á marklínu með höndinni, en þrátt fyrir mótmæli og áfrýjun Keane þarf hann nú að taka út leikbann með liði sínu. Keane stal senunni í leiknum þar sem hann skoraði tvö mörk, lagði upp eitt og lét reka sig af velli í fyrri hálfleik. 27.2.2007 16:08
Chelsea og Arsenal ákærð Aganefnd enska knattspyrnsambandsins ákærði í dag Chelsea og Arsenal fyrir ólætin í úrslitaleik enska deildarbikarsins um helgina. Emmanuel Adebayor, Kolo Toure og John Obi Mikel voru þá reknir af leikvelli og þá hefur Emmanuel Eboue verið ákærður fyrir að slá til Wayne Bridge. Adebayor hefur svo verið ákærður sérstaklega fyrir glórulausa hegðun sína í kjölfar átakanna þar sem hann neitaði að fara af velli. 27.2.2007 14:33
Bentley framlengir við Blackburn Miðjumaðurinn David Bentley hjá Blackburn hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við félagið til ársins 2011. Bentley er 22 ára gamall og hefur hann spilað mjög vel í vetur. Hann gekk í raðir Blackburn frá Arsenal í janúar í fyrra og hefur skorað sex mörk á leiktíðinni. 27.2.2007 14:29
Hiddink dæmdur fyrir skattsvik Hollenski knattspyrnuþjálfarinn Guus Hiddink var í morgun dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu tæpra fjögurra milljóna króna vegna skattsvika. 27.2.2007 10:15
Ótrúleg byrjun á Madejski Það er sannarlega mikið fjör á Madejski leikvellinum í kvöld þar sem Reading tekur á móti Manchester United í enska bikarnum. United komst í 3-0 þegar innan við sex mínútur voru liðnar af leiknum, en Reading minnkaði muninn eftir 23 mínútur. Saha, Solskjær og Heinze skoruðu fyrir United, en Kitson mark Reading. Leikurinn er í beinni á Sýn og er staðan 3-1 í hálfleik. 27.2.2007 20:29
Fowler vill nýjan samning hjá Liverpool Enski framherjinn Robbie Fowler vonast til þess að fá samning sinn við Liverpool framlengdan þrátt fyrir að hann fái ekki mörg tækifæri hjá liðinu um þessar undir. Hinn 31 árs gamli Fowler skoraði um síðustu helgi sín fyrstu deildarmörk frá því í ágúst, en hann hefur engu að síður mikla trú á sjálfum sér. 26.2.2007 21:14
Arsenal og Chelsea áfrýja gegn rauðum spjöldum Arsenal og Chelsea hafa ákveðið að áfrýja gegn rauðu spjöldunum sem leikmenn þeirra Emmanuel Adebayor og John Obi Mikel.fengu í bikarúrslitaleik liðanna í gær. Tvímenningarnir fengu reisupassann fyrir sinn þátt í uppákomunni sem átti sér stað undir lok leiksins ásamt Kolo Toure. Arsenal sættir sig hins vegar við spjaldið sem hann fékk. 26.2.2007 19:44
Terry man ekkert eftir síðari hálfleik John Terry, fyrirliði Chelsea, man ekkert eftir höfuðhögginu sem hann varð fyrir í úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal í gær. Það síðasta sem Terry man var þegar hann gekk út úr búningsklefanum í hálfleik en síðan vissi hann ekki af sér fyrr en hann kominn á sjúkrahús. Allur tími þar á milli, eða rúm klukkustund, er horfið úr minni Terry. 26.2.2007 19:43
Beckham fær fjórfalt hærri laun en næsti maður Launin sem David Beckham mun fá hjá LA Galaxy fyrir það eitt að spila fótbolta eru um 370 milljónir á ári, eða rúmlega fjórum sinnum meira en næstlaunahæsti leikmaður deildarinnar, Juan Francisco Palencia hjá Chivas USA, fær á þessu tímabili. 26.2.2007 18:00
Arsenal bauð í Robinho Umboðsmaður brasilíska sóknarmannsins Robinho hjá Real Madrid hefur greint frá því að Arsenal og AC Milan hafi viljað fá leikmanninn í sínar raðir þegar leikmannaglugginn var opinn í upphafi ársins. Forráðamenn Real Madrid komu hins vegar í veg fyrir að Robinho færi því félagið ku ekki vera tilbúið að selja Brasilíumanninn. 26.2.2007 15:30
Sigurður valdi 20 stúlkur Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, hefur valið 20 stúlkur til að taka þátt í Algarve-mótinu í knattspyrnu sem hefst í Portgúal þann 5. mars nk. Átta leikmenn Vals eru í hópi Sigurðar. 26.2.2007 15:00
Ibanez: Real Madrid er lélegt lið Pablo Ibanez, varnarmaður Atletico Madrid, segist sjaldan hafa séð eins lélega frammistöðu hjá Real Madrid eins og þegar liðin mættust á föstudagskvöld í spænsku úrvalsdeildinni. Ibanez segir með ólíkindum að Atletico hafi ekki náð að vinna leikinn, en hann endaði með 1-1 jafntefli. 26.2.2007 14:00
Totti heldur áfram að klúðra vítaspyrnum Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, mun halda áfram að taka vítaspyrnur liðsins þrátt fyrir að hafa klúðrað sinni sjöttu vítaspyrnu á leiktíðinni gegn Reggina um helgina. Á sama tíma hefur Totti aðeins skorað úr fjórum vítaspyrnum. Eins ótrúlegt og það hljómar þá ætlar þjálfari liðsins ekki að breyta um vítaskyttu. 26.2.2007 13:00
Ronaldinho: Ég hef aldrei verið í betra formi Ronaldinho, brasilíski snillingurinn hjá Barcelona, kveðst aldrei hafa verið í betra formi og að hann hafi verið staðráðinn í að sýna það í leiknum gegn Atletico Bilbao í gær. Ronaldinho var stórkostlegur í leiknum, en fyrir nokkrum dögum voru birtar myndir sem gáfu til kynna að hann hefði fitnað um nokkur kíló. 26.2.2007 12:28
Adebayor: Ég gerði ekkert rangt Emmanuel Adebayor, framherji Arsenal, kveðst ekki skilja af hverju hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir þátt sinn í ryskingunum sem áttu sér stað undir lok bikarúslitaleiksins gegn Chelsea í gær. Adebayor segist ekki hafa gert neitt rangt. 26.2.2007 11:49
Eto'o: Búinn að bíða lengi eftir þessu marki Samuel Eto'o, framherji Barcelona, er mjög ánægður með að vera búinn að finna skotskóna á ný en hann skoraði eitt marka Barcelona í auðveldum sigri liðsins á Atletico Bilbao í gær, 3-0. Eto'o segist hafa beðið lengi eftir þessu marki, en slæm hnémeiðsli héldu honum frá keppni í tæpa fimm mánuði fyrr í vetur. 26.2.2007 11:02
Eto´o skoraði í öruggum sigri Barcelona Barcelona er komið með tveggja stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir léttan 3-0 sigur á Atletico Bilbao á Nou Camp í kvöld. Xavi og Samuel Eto´o skoruðu mörk Barcelona í leiknum auk þess sem eitt markið var sjálfsmark. Eto´o var óvænt í byrjunarliðinu í kvöld en Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á varamannabekknum. 25.2.2007 22:03
Giggs segir Man. Utd. ekki mega slaka á Ryan Giggs, miðvallarleikmaður Manchester United, segist hafa nægilega mikla reynslu til að fullyrða að barátta liðsins við Chelsea um enska meistaratitilinn eigi eftir að þróast í nýja átt áður en tímabilið er á enda. Giggs segir að þrátt fyrir að Man. Utd. sé með níu stiga forskot á toppi deildarinnar séu úrslit deildarinnar fjarri því að vera ráðin. 25.2.2007 21:00
Schalke tapaði óvænt á heimavelli Topplið þýsku úrvalsdeildarinnar, Schalke, mátti þola að bíða í lægri hlut á heimavelli sínum gegn Bayer Leverkusen í dag, 0-1. Þeim til happs náðu helstu keppinautarnir í Werder Bremen aðeins jafntefli gegn Borussia Moenchengladbach og er því forysta liðsins á toppnum áfram fimm stig. 25.2.2007 20:53